Víkurfréttir - 06.03.1986, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 6. mars 1986
VÍKUR-fréttir
PRÓFKJÖR
H-listinn í Garði, listi Sjálísíæð-
ismanna og annarrafrjálslyndra
kjósenda, efnir til prófkjörs um
val frambjóðenda á framboðs-
lista sinn við næstkomandi
sveitarstjórnarkosningar.
Prófkjörið fer fram laugardag-
inn 5. og sunnudaginn 6. apríl
n.k.
Hér með er óskað eftir fram-
bjóðendum í nefnt prófkjör.
Frambjóðendurskulu vera kjör-
gengir við n.k. sveitarstjórnar-
kosningar í Gerðahreppi.
Framboðum ber að skila til Sig-
rúnar Oddsdóttur, Nýjalandi,
sími 7028, eigi síðar en sunnu-
daginn 15. mars 1986.
Kjörnefnd H-listans
NJARÐVÍKINGAR
SUÐURNESJAMENN
Afgreiðum á verksmiðjuverði
hinar geysivinsælu málningarvörur:
VITRETEX plastmálningu
og mynsturmálningu.
GOOD WOOD þiljulökk
og ýmislegt fleira.
Hagsýnir gera verðsamanburð áður en til
framkvæmda kemur.
Framleiöandi á Islandi:
Slippféfagið íReykjavíkhf
Málnmgarverksmidjan Dugguvogi - Simar 33433 og 33414
Umboðsmaður á Suðurnesjum:
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
málarameistari
Borgarvegi 30, Njarðvík, sími 2471
Afgreiðsla: Bolafæti 3, Njarðvík.
Opið alla virka daga kl. 18-20.
Minning um meirihluta
Það hefur löngum þótt
við hæfi að þeirra sé ininnst
sem lokið hafa einhverjum
áfanga í lífi sínu. Því te! ég
skyldu mína að segja
nokkur orð um þá vini
mína, sem mynda meiri-
hluta í bæjarstjórn Njarð-
víkur að leiðarlokum, og
rækja um leið frændskap
minn og vinfengi við þá. Þó
mun sá afleiti siður, að
rekja aðeins hið góða af
verkum manna, strax í
upphafi setja þessari minn-
ingargrein afar þröngar
skorður. Hefði þessi siður
hins vegar aflagst í tímans
rás, væri hér mikið efni í
myndarlega bókaútgáfu.
í frjóum huga athafna-
samra sjálfstæðismanna
hefur lengi blundað hug-
mynd um veglegan skrúð-
garð í Njarðvíkum. Vitrir
menn innan sjálfstæðisfé-
lagsins hafa teiknað og
málað og málað og teiknað
í svitakófi og ritað fagrar
lýsingar í kosningabækl-
inga sína á fjögurra ára
fresti um lystigarð þennan,
sem öllum öðrum erfremri.
Og víst er að ýmsum hefur á
undanförnum árum hlýnað
um hjartaræturnar og sett x
við D á kjördag.
Arið 1958 segir svo um
skrúðgarðinn, sem þá er um
það bil að rísa: „Þarna
munu verða íþróttatæki,
vetraríþróttasvæði með
brekkum og skautasvelli,
einnig gróðurreitir fyrir ís-
lenskar jurtir, sem gætu
orðið yngstu íbúunum til
gagnlegs fróðleiks. I fram-
tíðinni mun reynt að fegra
staðinn með myndastytt-
um o.fl.“
Síðan eru liðin 28 ár, og
hvar er skrúðgarðurinn??
Árið 1970 var aftur
brugðið á ieik og talað um
Hilmar Þ. Hilmarsson
skrúðgarð sem geti orðið
stolt sinnar byggðar. Þar
segir m.a.: ..Það er síður en
svo ótrúlegt að við getum
gengið um blómfagran
skrúðgarð í eigin byggð
innan fárra ára“.
Þessi lýsing minnir óneit-
anlega nokkuð á drauma-
Fyrir 20 árum birtir Njarðvíkingur, blað Sjálfstæðismanna í Njarðvík, þessa mynd af skrúðgarðinum,
sem biaðið segir að sé u.þ.b. að rísa.
1982 birtir sama blað þessa mynd og kvartar yfir því að þáverandi vinstri meirihluti hafi ekkert gert,
þrátt fyrir fjárveitingar til framkvæmdanna, og því sé biðin eftir skrúðgarðinum orðin löng.
í dag hefur ekkert skeð, þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ráðið meirihluta bæjarstjórnar Njarð-
víkur sl. 4 ár, nema hvað nokkrum steinum hefur verið velt til.