Víkurfréttir - 06.03.1986, Síða 10
10 Fimmtudagur 6. mars 1986
VÍKUR-fréttir
Knattspyrnufélagið Víðir 50 ára:
„Frammistaða Víðis hefur verið
mikil auglýsing fyrir Garðinnu
- segir Júlíus Baldvinsson, formaður
Formaður Knattspyrnu-
félagsins Víðis er Júlíus
Baldvinsson. Hann er
fæddur Siglfirðingur en
flutti í Garðinn árið 1965 og
var á þeim fræga fundi 15.
sept. 1967 er félagið var
endurvakið eftir nokkurra
ára lægð, ef svo má að orði
komast. Við fengum Júlíus
í stutt spjall í tilefni af 50
ára afmæli Víðis og spurð-
um hann fyrst hvað honum
væri minnisstæðast í sögu
félagsins:
„Fyrir mér er minnis-
stæðast er liðið vann 3.
deildina 1982 og komst þá í
aðra. Svo og leikurinn gegn
UMFN 15. sept. 1984 sem
tryggði Víði sæti í 1. deild.
Það er ógleymanlegt.“
Hverju viltu þakka þennan
góða árangur á síðustu
árum?
„Fyrst og fremst gífur-
legri samstöðu Víðis-
manna. Einnig höfum við
verið heppnir með góða
þjálfara, þá Hauk Haf-
steinsson og Martein Geirs-
son. Við bindum einnig
miklar vonir við Kjartan
Másson.
Stjórn Knattspyrnufélagsins Víðis 1986. Aftari röð f.v.: Tryggvi Einarsson, Jonatan Ingimarsson,
Magnús Þór Magnússon og Tómas Þorsteinsson, meðstjórnendur. Fremri röð f.v.: Heiðar Þorsteins-
son gjaldkeri, Júlíus Baldvinsson formaður, Ásgeir Kjartansson ritari og Guðmundur Jens Knútsson
varaformaður.
REKNMGUR
í tilefni 100 ára afmælis Landsbankans
á þessu ári hefur stjórn bankans ákveðið að gera
sparifjáreigendum freistandi afmælistilboð:
100 ára afmælisreikningurinn er verðtryggður
innlánsreikningur sem gefur 7,25% ársvexti umfram
vísitölu og er aðeins bundinn í 15 mánuði.
Þetta er tilboð sem allir peningamenn
geta mælt með.
BETRI TILBOÐ BJÓÐAST VARLA.
Landsbankinn er banki allra Suðurnesjamanna
Útibúið, Keflavíkurflugvelli, sími 2170
Opið mánudag-föstudags frá kl. 9:I5-16:(K).
Afgreiðsla fyrir farþega í millilandaflugi cropin daglega frá kl. 06:30-18:30.
Útibúið, Grindavík, sími 8179
Opið mánudag-föstudags frá kl. 9:15-12:30 og 13:30-16:00
Útibúið, Sandgerði, sími 7686
Opið mánudag-föstudags frá kl. 9:15-12:30 og 13:30-16:00.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Júlíus Baldvinsson
Hvað þýðir svona lagaðfyrir
lítið bœjarfélag eins og
Garðinn, að vera með lið í 1.
deild?
„Þetta hefur verið mikil
og góð auglýsins , fyrir
bæjarfélagið. Hér snýst
mest allt í kringum knatt-
spymufélagið og fólkið
hérna tekur virkan þátt í.
baráttunni með okkur. Það
sýndi sig vel sl. sumar en þá
fylgdu Víðisliðinu allt upp í
200 manns á útileikina. Það
segir sína sögu.“
Gerðahreppur sá um allar
framkvæmdir við völlinn
nema 'tyrfingu, sem var í
höndum Víðisfélaga.“
Bœjarfélagið, - hefur það
sýnt félaginu þann skilning
og stuðning sem þörf er á?
„Bæjarfélagið hefur stutt
okkur mjög vel á liðnum
árum. Það hefur sýnt þessu
mikinn skilning og ber það
að þakka. En auk þess höf-
um Við notið mikils stuðn-
ings frá aðilum eins og
Keflavíkurverktökum,
Sparisjóðnum og fleirum.
Nú síðast þessi auglýsinga-
samningur við Lýsi hf. en
hann skapaði viss tímamót
hjá Víði. Fyrsti alvöru-
samningur sem félagið
hefur gert og ég á von á að
hann verði áfram næsta
tímabil. En talandi um
stuðning má ekki gleyma
Kvennaklúbb Víðis. Hann
hefur stutt félagið dyggi-
lega á liðnum árum. I klúbb
þessum eru eiginkonur
leikmanna og stjórnar-
manna og sjá þær algérlega
um alla veitingasölu á leikj-
um og ýmislegt fleira. Þær
hafa m.a. keypt mest allt
sem er í Víðishúsinu."
Er ekki kostnaðarsamt fyrir
lítið félag eins og Víði að
standa undir svona rekstri?
„Reikningar, sem lagðir
voru fram á síðasta aðal-
fundi, hljóðuðu upp á 4
milljónir. Stór liður í þejrri
tölu var þó Víðishúsið, en
sýnir engu að síður um-
fangið."
A síðustu árum hafið þið
byggt hús og nýjan grasvöll,
framkvæmdir sem ekki
hefðu mátt bíða öllu lengur?
„Bygging þess húss og
grasvallarins sýnir best
samstöðuna sem hér ríkir.
Búningsaðstaðan í barna-
skólanum var ekki upp á
marga fiska, þó hún hafi
gert sitt gagn, en þegar
maður hugsar eftir á finnst
manni engu að síður skóla-
yfirvöld hafa sýnt ótrúlega
þolinmæði í okkar garð
hvað þetta varðar. Gras-
völlurinn hefði ekkl mátt
koma öllu seinna því kröf-
urnar eru allt aðrar og meiri
strax og komið er í 1. deild.
Það eru því kannski orð að
sönnu sem svo margir hafa
sagt, að þetta sé eins og ein
stór fjölskylda?
„Það má segja svo. Þetta
hefst ekki öðruvísi allt sam-
an, nema að allir leggist á
eitt og leggi lið sitt.“
Að lokum Júlíus. Hvað með
framtíðina, munu Víðis-
menn halda áfram að halda
merki félagsins á lofti og
jafnvel sœkja á brattann í
öðrum íþróttagreinum?
„Vegna aðstöðuleysis er
varla um aðrar íþrótta-
greinar að ræða á næstunni.
Aður fyrr var hér stundað-
ur bæði handbölti og körfu-
bolti en lagðist niður. En
maður á aldrei að segja
aldrei; vonandi verður ein-
hvem tímann af því.“
En í knattspyrnunni?
„Ég hef trú á því að
strákarnir standi sig vel í
sumar. Haldi 1. deildarsæt-
inu og gott betur“ sagði
Júlíus Baldvinsson að
lokum. - pket.
$ÚTBOÐ
Kaupfélag Suðurnesja óskar hér með eftir
tilboðum í jarðvinnu á lóð kaupfélagsins
að Víkurbraut 60, Grindavík. Um er að
ræða jöfnun og þjöppun núverandí yfir-
borðs og um 3500 m3 af fyllingum.
Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofu
Suðurnesja hf., Hafnargötu 32, Keflavík,
gegn 2.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Kaupfé-
lags Suðurnesja, Hafnargötu 62, Keflavík,
að viðstöddum þeim bjóðendum er mættir
verða, föstudaginn 14. mars 1986 kl. 11.00.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA