Víkurfréttir - 06.03.1986, Qupperneq 11
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 6. mars 1986 11
Gatnaaerðar-
gjöld
Hér með er skorað á alla þá sem eru í vanskilum með
gatnagerðargjöld til bæjarsjóðs Keflavíkur, að greiða
þau nú þegar og í síðasta lagi 30 dögum frá birtingu
auglýsingar þessarar, ella má búast við því að beðið
verði um uppboð á viðkomandi fasteign samkvæmt
heimild í lögum nr. 49/1951 um sölu lögveða án undan-
gengins lögtaks.
Keflavík, 6. mars 1986.
Bæjarlögmaður
Sandgerði:
Björgunarbáturinn Þor-
steinn kominn í hús
Næst síðasta laugardag
tókst loks að ljúka því verk-
efni Björgunarsveitarinnar
Sigurvonar í Sandgerði, að
koma fyrsta björgunarbát
Islendinga í hús. Bátur
þessi, sem eins og kunnugt
er ber nafnið Þorsteinn,
verður í framtíðinni hýstur í
gamla björgunarskýlinu,
sem endurbyggt hefur verið
á lóð núverandi björgunar-
skýlis.
Hús það sem hann var nú
settur í, er einmitt það sama
og byggt var yfir hann
þegar hann kom til Sand-
gerðis 1929. Eins og áður
hefur komið fram hér í
blaðinu eiga þeir Sigur-
vonarmenn heiður skilið
fyrir að hafa bjargað bátn-
um frá glötun, en litlu mun-
aði að hann lenti á ösku-
haugum Reykjavíkur.
Undanfarin ár hefur bát-
urinn verið geymdur utan
dyra ofan við Stafnesveg,
en nú verður hann endur-
byggður í upphaflega
mynd. - epj.
Brutu upp
lyfjaskáp
Barðans GK
Fimm menn úr Hafnar-
firði hafa játað að hafa
brotið upp lyfjaskáp í bát í
Sandgerðishöfn næst
síðasta sunnudag. Komust
fimmmenningarnir yfir
talsvert magn af ýmis
konar Lyfjum, tóbaki o.fl.
Bátur þessi er Barðinn
GK 475, sá sami og sagt var
frá í síðasta blaði að grunur
væri um að kveikt hafí verið
i þennan sama dag. Fimm-
menningarnir eru þó ekki
grunaðir um að vera valdir
að brunanum. - epj.
Fagleg þekking
ímatog drykk.
Sjón er
sögu ríkari.
FERSKUR MATSÖLUSTAÐUR
HÖFUM OPNAÐ NÝJAN MATSÖLUSTAÐ
AÐ VESTURBRAUT 17, KEFLAVÍK.
Síðasta embættisverk fráfarandi
formanns Stakks, Þorsteins
Marteinssonar, var að taka húsið í
notkun.
Er Reykjanesið gjaldþrota?
Bú 16 aðila á Suðurnesjum tekið til gjaldþrotaskipta
Stakksfélagar á hátíðarstundu.
Nýtt Stakkshús
tekið í notkun
Með úrskurðum skipta-
réttar umdæmis Skiptaráð-
andans i Keílavík, Njarð-
vík, Grindavík og Gull-
bringusýslu, uppkveðnum
4. febrúar 1986, voru bú 16
aðila tekin til gjaldþrota-
skipta og verða skiptafund-
ir í búunum haldnir í dóm-
salnum, Vatnsnesvegi 33,
Keflavík, dagana 20.-22.
maí n.k. Kemur þetta fram
í auglýsingu embættisins í
Lögbirtingarblaðinu sl.
laugardag.
Skiptast aðilar þannig,
að 13 einstaklingar eru í
hópnum og þrjú fyrirtæki.
Það vekur athygli að meðal
einstaklinganna er Hákon
Aðalsteinsson, ritstjóri og
ábyrgðarmaður Reykja-
nessins.
Samkvæmt upplýsingum
firma- og hlutafélagaskrár
er ekkert hlutafélag á bak
við útgáfu blaðsins, þannig
að á þessari stundu er óvíst
hvort blaðið dregst beint
eða óbeint inn í gjaldþrota-
skipti þessi. - epj.
Á fimmtudag í síðustu
viku var formlega tekið í
notkun nýtt Stakkshús, þ.e.
aðsetur fyrir Björgunar-
sveitarinnar Stakk, að Iða-
völlum 3d í Keflavík. Var
þetta síðasta embættisverk
fráfarandi stjórnar, en síð-
ar um kvöldið fóru fram
stjórnarskipti á aðalfundi
félagsins.
Fjöldi gesta var við
vígslu hússins og voru sveit-
inni færðar gjafir m.a. frá
Kvenfélagi Keflavíkur,
Húsanesi sf., Hjálparsveit
skáta í Njarðvík og þremur
stuðningsmönnum, sem
ekki vildu láta nafn síns
getið.
Hið nýja húsnæði er allt
hið vistlegasta, en eins og
fram kom í síðasta tölu-
blaði er það að mestu unnið
í sjálfboðavinnu einstakra
sveitarmanna. En hvað um
það, látum myndirnar tala,
þær segja meira en orðin.
epj.
Fjöldi gesta var við opnunina.