Víkurfréttir - 06.03.1986, Side 16
16 Fimmtudagur 6. mars 1986
VÍKUR-fréttir
3. deild handboltans:
Þrjú rauð
spjöld í
Sandgerði
- er Reynir vann
Ögra 34:20
Reynismenn unnu ör-
uggan sigur á Ögra er liðin
áttust við í Sandgerði sl.
föstudagskvöld. Lokatöl-
ur urðu 34:20 eftir að stað-
an í hálfleik hafði verið
15:7.
Leikurinn einkenndist af
kæruleysi leikmanna og
því ekki mikið fyrir augað.
Það var helst að Reynis-
menn ættu góða spretti í
sókn með þá Elvar og Sig-
urð Sumarliðason í farar-
broddi.
Annars var markverð-
ast í þessum leik að rauð
spjöld voru oft á lofti, eða
alls þrisvar, og það allt
Sandgerðingar sem þau
fengu.
Mörk Reynis. Daníel 6,
Siggi S. 55 Elvar 4, Gísli 4,
Kristinn Á. 3, Hólmþór 3,
Siggi 3, aðrir minna. - ghj.
Óli Tord. var fjarri góðu
gammni er UMFN tapaöi á
Selfossi. Stóð í ströngu i
Sviss eins og sjá mátti í
sjónvarpinu
Tap á
Selfossi
Njarðvíkingar báru
lægri hlut fyrir Selfossi
er liðin áttust við á Sel-
fossi í sl. viku. Lokatöl-
ur 23:15. Staðan í
leikhléi var 9:6 fyrir
heimaliðið.
Leikurinn byrjaði
frekar rólega og var
varnarleikurinn og
markvarslan mjög góð í
fyrri hálfleik og kom
fyrsta markið ekki fyrr
en 9 mín. voru liðnar af
leiknum. Selfyssingar
höfðu ávallt forystuna
og í leikhléi var staðan
9:6 fyrir þá.
I seinni hálíleik virtist
áhuginn hjá UMFN
vera takmarkaður,
nema hvað Jói í mark-
inu varði ágætlega.
Selfyssingar juku for-
skotið um fimm mork í
seinni hálfleik og urðu
lokatölur þvi 23:15 fyrir
Selfoss. - gjh.
Rúnar Georgsson
hefur tilkynnt félaga-
skipti úr Víði og hafið
æftngar með IBK á
nýjan leik. Rúnar gekk
yfir í Garð-liðið á sl. ári
ásamt þeim Gísla Eyj-
ólfssyni og Einari As-
birni Olafssyni. Þeir
dvelja nú í Danmörku
og munu ekki leika
knattspyrnu hér í sumar.
Rúnar lék sem bak-
vörður með Víði en hef-
ur leikið víðar á vellin-
um með ÍBK og þykir
fjölhæfur leikmaður.
pket.
Það mun mikið mæða á Gísla Jóhannssyni og félögum hans í ÍBK á laugardag.
Ljósm.: mad.
Rúnar
aftur í
ÍBK
Fyrsti bikarinn til Keflavíkur?
Hreinn úrslitaleikur ÍBK og Týs V. í 3. deild handboltans
verður í Iþróttahúsi Keflavíkur á laugardag kl. 14.
ínrt
Tvö efstu lið 3. deildar
handboltans, ÍBK og Týr
frá Vestmannaeyjum, eig-
ast við í úrslitaleik um Is-
landsmeistaratitilinn í 3.
deild í íþróttahúsi Kefla-
víkur n.k. laugardag kl. 14.
Bæði þessi lið hafa tryggt
sér öruggt sæti í 2. deild
næsta keppnistímabil.
Næsta víst er þó talið að
breyting í þá veruna að 4 lið
fari upp verði að veruleika.
Um næstu sætin tvö berj-
ast 4 lið: Reynir, Sandgerði;
Akranes, Þór, Akureyri; og
Fyjkir.
IBK er efst i deildinni
með 40 stig, hefur tapað 6
stigum og á eftir einn leik.
Týr er í 2. sæti með 36 stig,
hefur tapað 8 stigum og á
• • r
Oruggur sigur hjá IBK
ÍBK - ÍH 34:21
Keflvíkingar unnu lið ÍH
örugglega er liðin áttust við
í Keflavík sl. sunnudag,
34:21. Staðan í leikhléi var
16:6 fyrir ÍBK.
Jafnræði var með liðun-
um fyrstu fimm mín. af
leiknum, en þá breyttist
leikur IBK-liðsins mjög til
hins betra og skoraði það
hvert markið á fætur öðru
og var varnarleikurinn góð-
ur. Er 20 mín. voru liðnar af
leiknum var staðan orðin
11:4 og er flautað var til
hálfleiks hafði ÍBK 10
marka forskot, 16:6.
Síðari hálfleikur var mun
jafnari en sá fyrri og fengu
allir að spreyta sig hjá ÍBK
og sérlega kom Þórarinn
vel frá sínu hlutverki i
sókninni er hann kom inn á
er 15 mín. voru eftir af
leiknum. Skoraði hann sex
mörk á þeim tíma. En hann
hefði mátt standa sig betur í
vörninni svo og allir í seinni
hálfleik. Ekki var mark-
varslan heldur upp á marga
fiska og á góðum degi hefði
Magnús varið flesta þessa
bolta er láku inn í netið.
Lokatölur í jDessum leik því
34:21 fyrir IBK.
Mörk ÍBK: Freyr 9, Þór-
arinn 6, Einvarður 5, Einar
4, Gísli 3, Elvar 3 og aðrir
minna. - ghj.
Þórarinn Þórarinsson skoraði 6 falleg mörk gegn ÍH.
f------------------------\
„Ætlum okkur ekkert
annað en sigur“
- segir Ragnar Marinósson,
liðsstjóri ÍBK
„Við ætlum okkur
ekkert annað en sigur.
Það hefur ekkert annað
staðið til frá byrjun en að
vinna deildina og það
með glans. IBK hefur
aldrei orðið Islands-
meistari i meistara-
flokki karla i handknatt-
leik í neinni deild. Nú
ætlum við okkur að gera
það að veruleika“, sagði
Ragnar Marinósson, en
hann er ásamt Marel
Sigurðssyni liðsstjóri 3.
deildarliðs ÍBK í hand-
knattleik.
Hverju viltu þakka
þennan árangur IBK í
vetur?
„Fyrst og fremst
góðri þjálfun og frábær-
v
um liðsanda. Hópurinn
allur hefur stefnt að
þessu marki í allan vet-
ur. Þessi góði árangur
liðsins hefur þegar
skilað sér í meiri áhorf-
endafjölda á leikjum
liðsins í vetur. Hand-
boltinn er á uppleið í
Keflavík og ég spái því
að IBK verði komið með
topplið i 1. deild innan
fimm ára. Eg vil bara fá
að nota tækifærið og
hvetja Keflvíkinga og
Suðurnesjamenn til að
koma pg hvetja leik-
menn IBK til sigurs í
leiknum gegn Tý,
þannig að Islandsmeist-
aratitill verði að veru-
leika í fyrsta sinn“, sagði
Ragnar. - pket.
tvo leiki eftir, gegn Reyni
annað kvöld í Sandgerði og
svo IBK. Reynir er í 3. sæti
deildarinnar með 31 stig og
verður að sigra Tý ef liðið á
ætlar að eygja möguleika á
2. deildar^ sæti, þar sem
næstu lið, IA (30 st.) og Þór
(29 st.) eiga tvo leiki eftir.
eftir.
Eins og áður segir er hér
um hreinan úrslitaleik að
ræða, þó sá möguleiki sé
auðvitað fyrir hendi að
Reynir hirði stig af Tý á
föstudag. En þeir þurfa þá
að leika betur en þeir hafa
gert undanfarið.
Við hvetjum Suðurnesja-
menn til að fjölmenna á
þessa leiki og styðja okkar
menn til sigurs. - pket.
Rúnar Georgsson í leik
með IBK
Hvergerð-
ingar lágu
IBK heimsótti Hvera-
gerði í sl. viku í 3. deild
og sigruðu þar 27:23
eftir að staðan hafði
verið jöfn í hálfleik,
14:14.
Mörk ÍBK: Freyr 10,
Jón 01. 6, Teddi 4, Gísli
3, Siggi 3 og Jón Kr. 1.
ghj.