Víkurfréttir - 13.03.1986, Blaðsíða 1
Málefni langlegusjúklinga:
Tekið fyrir síðar í mánuðinum
- hvort kaupa skal Víkurbæjarhúsið eða taka á leigu hús-
húsnæði Jóns W. Magnússonar undir sjúkrahótel
Á miðvikudag í síðustu
viku var haldinn stjórnar-
fundur hjá Dvalarheimil-
um aldraðra á Suðurnesj-
um. Var þar m.a. til um-
ræðu hvort kaupa skuli
Víkurbæjarhúsið við
Hafnargötu í Keflavík und-
ir langlegudeild.
Einnig var til umræðu
boð frá Jóni W. Magnús-
syni, þar sem hann býður
22 herbergi til leigu í
nýbyggingu sinni, til lengri
eða skemmri tíma.
Var samþykkt að bíða
með frekari ákvarðanir
fram yfir sameiginlegan
fund með sveitarstjórnar-
mönnum á Suðurnesjum,
sem halda skal síðar í þess-
um mánuði, að sögn Finn-
boga Björnssonar, fram-
kvæmdarstjóra Dvalar-
heimilanna.
Málefni langlegusjúkl-
inga voru líka til umræðu í
stjórn Sjúkrahúss Kefla-
víkurlæknishéraðs og
Heilsugæslustöðvar Suður-
nesja nýverið og þar kom
fram hjá Kristjáni Sigurðs-
syni, yfirlækni SK, að 18-20
.... og kannski langlegudeild hér?
rúm á Sjúkrahúsinu væru
fyrir langlegusjúklinga,
þannig að aðeins 4-6 eru
eftir fyrir bráðatilfelli, en
stefnt er að því að það verði
8-10 rúm fyrir bráðatilfelli.
Jóhanna Brynjólfsdóttir
upplýsti á þeim fundi að 11
sjúklingar á vegum heima-
hjúkrunar þyrftu pláss á
sjúkrahúsi sem allra fyrst.
Samþykkt var á fundinum
að hámarksfjöldi langlegu-
sjúklinga verði 18, jafn-
framt að 2 rúm af þessum
18 verði fyrir skammtíma-
vistun aldraðra.
epj.
Nauðungaruppboð á Suðurnesjum:
Gífurleg aukning
Það sem af er árinu hefur
orðið gífurleg aukning á
nauðungaruppboðum hjá
embætti Bæjarfógetans í
Keflavík, Njarðvík,
Grindavík og Sýslumanns-
ins í Gullbringusýslu. En að
sögn Jóns Eysteinssonar,
sýslumanns og bæjarfó-
geta, hafa verið boðnar upp
og seldar 14 fasteignir frá
áramótum.
„Ef til vill er ástandið hér
á Suðurnesjum verra en
annars staðar“ sagði Jón
Eysteinsson „en yfirleitt
eru húseignir ekki boðnar
upp nema þær séu búnar að
vera að þvælast fram og til
baka og margbúið að veita
frest til greiðslu. Og oftast
er um að ræða lélegar og
yfirveðsettar íbúðir sem
ekki er hægt að selja á
frjálsum markaði."
epj-
ÞJÓFUR GÓMAÐUR
A INNBROTSSTAÐ
Sl. laugardagskvöld
fékk lögreglan tilkynningu
um óeðlileg hljóð að Þóru-
stíg 18 í Njarðvík. Erað var
komið gómaði lögreglan
þjóf er brotist hafði inn í
húsið.
Þá var í síðustu viku
stolið peningunt í Grófinni
og hefur málið nú verið
upplýst.
Þá var aðfaranótt annars
laugardags brotist inn hjá
Netaverkstæði Suðurnesja
og smávægilegu stolið.
Að lokum var á þriðju-
dag í síðustu viku stolið úri
úr fataskáp í Sundhöll
Keflavíkur, meðan eigand-
inn var í sundi. Mál þessi
eru í rannsókn. -epj.
A SIGURSTUNDU
Tvær stúlkur
slösuðust í um-
ferðaróhappi
Á laugardag í síðustu
viku varð all harður árekst-
ur milli tveggja bifreiða á
Njarðvíkurbraut í Njarð-
vík. Eftir áreksturinn hafn-
aði önnur bifreiðin á ljósa-
staur. Við áreksturinn
slösuðust tvær stúlkur, fót-
brotnaði önnur, en hin
kvartaði yfir eymslum í
hálsi.
I s.íðustu viku urðu alls 15
umferðaróhöpp í umdæmi
lögreglunnar í Keflavík og
fjórir ökumenn voru teknir
fyrir meinta ölvun við
akstur. - epj.
Keflvíkingar og Njarðvíkingar unnu sæta sigra í handbolta og körfubolta um
sl. helgi. Þeirr fyrrnefndu unnu Tý í úrslitaleik 3.deildar ogjteirsíðarnefndu
urðu Islandsmeistarar i körfuknattleik, þriðja árið í röð. A mynd pket. t.v.
fagna keflvíkingar með kampavini og tilheyrandi fögnuði og á mvnd -mad.
t.h. er Valur einnig að fagna á sama hátt. Brynjar Sigmunds tekur þátt í
gleðinni. Ljósmyndir af leik UMFN og Hauka inn i blaðinu tók -mad.