Víkurfréttir - 13.03.1986, Blaðsíða 24
Fimmtudagur 13. mars 1986
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 4717.
PROFKJOR UM HELGINA:
Övænt úrslit í Sandgerði
-Sigurður Jóhannsson efstur. Bjarni Andrésson í Grindavík.
Um helgina fóru fram
prófkjör hjá Sjálfstæð-
ismönnum í Miðnes-
hreppi og Framsóknar-
mönnum í Grindavík. A
fyrrnefnda staðnum
kusu 359, þar af voru 99
seðlar auðir og 6 ógildir.
En í Grindavík kusu alls
264.
Atkvæði féllu þannig í
Sandgerði: 1. Sigurður
Jóhannsson fékk 51 at-
kvæði í fyrsta sæti og
226 alls, 2. Sigurður
Bjarnason með 83 at-
kvæði í fyrstu tvö sætin
og 241 alls, 3. Reynir
Sveinsson með 101 í
fyrstu þrjú sætin og 226
alls, 4. John E.K. Hill
með 117 atkvæði í fyrstu
fjögur sætin og 220 alls,
5. Guðjón Olafsson með
132 atkvæði í fyrstu
fimm sætin og 207 alls,
6. Jón Erlingsson með
141 atkvæði í fyrstu 6
sætin og 190 alls, 7.
Alma Jónsdóttir með
158 í fyrstu sjö sætin og
177 alls, 8. Jóhann Guð-
brandsson með 141
atkvæði í fyrstu 8 sætin
og 162 alls, 9. Svanbjörg
Eiríksdóttir með 155 í
fyrstu níu sætin og 169
alls, 10. Ragna Proppé
með alls 145 atkvæði.
I Grindavík varð
Bjarni Andrésson efstur
með 107 atkvæði í fyrsta
sæti og 217 alls, 2. Hall-
dór Ingason með 172 at-
kvæði í fyrsta og annað
og 238 alls, 3. Valdís
Kristinsdóttir með 86
atkvæði í fyrstu þrjú
sætin og 172 atkvæði
alls, 4. Hrefna Björns-
dóttir með 122 atkvæði í
fyrstu fjögur sætin og
165 atkvæði alls, 5.
Helgi Bogason með 158
atkvæði í fyrstu fimm
sætin og 179 atkvæði
alls, 6. Dagbjartur Will-
ardsson með 165 at-
kvæði í fyrstu sex sætin
og 177 atkvæði alls.
Annars staðar á síð-
unni birtast viðtöl við
efstu mennina í Sand-
gerði og Grindavík.
epj.
99
Forgangsverkefni að koma fjármál-
um hreppsins í viðunandi horf“
- segir Sigurður Jóhannsson, sem óvænt vann fyrsta sætið
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Miðneshreppi sl. helgi
„Jú, þetta eru óvænt úr-
slit, ég átti alls ekki von á
því að lenda í fyrsta sæti,
frekar að nafni minn
Bjarnason lenti þar“ sagði
Sigurður Jóhannsson, efsti
maður í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Miðnes-
hreppi, við spurningu
blaðsins um það hvað
honum væri efst í huga. „Er
mér efst í huga þakklæti til
þessa fólks sem studdi mig
og vonandi get ég staðið
undir því.“
Hvað heldur þú að hafi
ráðið þessu?
„Ég veit það ekki, það
voru ekki í gangi neinar
kosningavélar varðandi
ákveðin sæti, það hefur
kannski ráðið þessu.“
Hverju mun þú beita þér
fyrir?
„Það er forgangsverk-
efni að koma fjármálum
„Góður, blandaður og mjög
frambærilegur listi“
- segir Bjarni Andrésson, sem varð
efstur í prófkjöri Framsóknar-
manna í Grindavík um helgina
„Ég er mjög ánægður
með útkomuna og góða
þátttöku í prófkjörinu",
sagði Bjarni Andrésson,
sem hlaut efsta sætið í próf-
kjöri Framsóknarmanna í
Grindavík um síðustu
helgi.
Áttir þú von á þessu?
„Ég átti ekkert frekar
von að þetta færi svona,
en útkoman er mjög góður,
blandaður listi og vel fram-
bærilegur“.
Nú er nýtt fólk á listanum,
heldur þú að einhverjar
breytingar verði á málefna-
flutningi flokksins?
„Með nýjum mönnum
Bjarni Andrésson, efsti maður
hjá Framsókn í Grindavik.
munu málefnin breytast“,
sagði Bjarni að lokum.
epj.
hreppsins í viðunandi horf
og algjört frumskilyrði svo
hægt sé að vinna að öðrum
málefnum sveitarfélagsins
og nauðsynlegt, áður en
farið er að huga að öðrum
málefnum og framkvæmd-
um, svo og að ljúka þeim
framkvæmdum sem nú eru
í gangi eftir að búið er að
koma öllum atriðum á
Sigurður Jóhannsson, odda-
maður Sjálfstæðismanna í
Miðneshreppi.
hreint“ sagði Sigurður að
lokum.
epj.
Efstu sætin bindandi
I prófkjöri Sjálfstæðismanna í Miðneshreppi var
bindandi kosning í þrjú efstu sætin, og hjá Framsóknar-
mönnum í Grindavík voru það tvö efstu sætin.
Bindandi kosningu náðu því á fyrr nefnda staðnum Sig-
urður Jc'hannsson, Sigurður Bjarnason og Reynir Sveins-
son. I Grindavík þeir Bjarni og Halldór Ingvason. -epj.
Þeldökkur hermaður:
Oeðlileg samskipti
við ungar stúlkur
Undanfarin misseri
hefur hermaður af Kefla-
víkurflugvelli haft þá iðju
að bjóða ungum stúlkum,
aðallega á aldrinum 11-14
ára, í ökuferð með sér. Hef-
ur þetta viðgengist í flestum
byggðarlögum Suðurnesja.
Hafa kvartanir borist frá
foreldrum vegna þessa og
meðal annars tók barna-
verndarnefndin á Vatns-
leysuströnd málið fyrir,
enda mjög óeðlilegt að full-
orðinn maður stundi slíka
iðju.
Ekki hefur maðurinn þó
gerst sekur um kynferðisaf-
brot, en hins vegar brotið
a.m.k. tvisvar sinnum úti-
vistarlög Varnarliðs-
manna.
Að sögn Friðþórs Eydal,
blaðafulltrúa Varnarliðs-
ins, stendur nú yftr athugun
á máli þessu hjá yfirmönn-
um viðkomandi hermanns
og er reiknað með að mað-
urinn fái tiltal.
epj.
Spumingin:
Ætlar þú að not-
færa þér tolla-
lækkunina til að
kaupa nýjan bíl?
Steinn Þorri Þorvarðarson:
„Nei, það ætla ég ekki að
gera, annars er hún góð
fyrir þá sem eiga peninga".
Hallgrímur Kristmundsson:
„Nei, mér finnst hún
ekki góð fyrir almenning,
hún er aðallega fyrir ein-
staka menn“.
Rúnar Guðmundsson:
„Það getur farið svo,
þessi lækkun á rétt á sér“.
Þorbergur Friðriksson:
„Ég get svarið það, ég var
bara í burtu, ég var á
skíðum og hef því ekki
fylgst með málum og ég les
aldrei gömul dagblöð".