Víkurfréttir - 13.03.1986, Qupperneq 4
4 Fimmtudagur 13. mars 1986
VlKUR-fréttir
Fasteignasalan
Hafnargötu 27 - Keflavík
KEFLAVÍK:
Glæsilegt einbýlishús viö Háholt ásamt bílskúr 5.500.C00
3ja herb. íbúö viö Heiðarhvamm, losnar fljótlega 1.700.000
2ja herb. íbúö við Heiðarhvamm, losnar fljótlega 1.450.000
Glæsileg 4ra herb. íbúð viö Háteig ásamt bílskúr,
laus strax ............................. 2.600.000
2ja-3ja herb. íbúð við Suðurgötu í mjög góöu
ástandi ................................ 1.275.000
NJARÐVÍK:
Nýtt einbýlishús við Háseylu ásamt bílskúr ... 3.500.000
1
7[- paiáiUbli
Mávabraut 6D, Keflavík:
Raðhús í góðu ástandi.
Hagstætt verð og greiðslu-
skilmálar ..... 2.400.000
Básvegur 4, Keflavík:
Húsið er mikið endurnýjað.
Engar áhvílandi skuldir.
1.400.000
hiss-íW IjlLJ
Heiöargaröur 10, Keflavik: Vandaö hús, 180 m2 m/bíl- skúr. Skipti á 3ja-4ra herb. íbúð kemur til greina. Nán- ari uppl. um söluverð og greiðsluskilmálaáskrifstof- unni.
ntd
Tjarnargata 20, Keflavik:
Hús á tveimur hæðum í
góðu ástandi, ásamt iðnað-
ar- eða verslunarhúsnæði.
Góð eign á góðum stað.
4.700.000
Heiðarbraut 7E, Keflavik:
Nýtt raðhús ásamt bílskúr.
Húsið er mjög vandað, 194
ferm........... 4.500.000
ATH: Höfum kaupanda að nýrri eða nýlegri 3ja
íbúð. Mikil útborgun.
FASTEIG N ASALAN
Hafnargötu 27 - Keflavík - Sími 1420
AÐALFUNDUR
Systra- og bræðrafélags Keflavíkurkirkju
verður haldinn í Kirkjulundi, mánudaginn
17. mars n.k. kl. 20.30.
Stjórnin
Miðnesingar
Sandgerðingar
Dráttarvextir verða reiknaðir á
útsvör og aðstöðugjöld 15.
mars n.k.
Greiðið fyrir 15. og forðist
óþarfa kostnað.
Innheimta Miðneshrepps
Dr. Elísabet M. Guðmundsdóttir frá Útskálum:
Fyrsti kvendoktorinn frá Suðurnesjum
Árið 1985 verður minnis-
stætt hjónunum á Utskál-
um í Garði, séra Guðmundi
Guðmundssyni og frú Stein-
vöru Kristófersdóttur.
Börn þeirra þrjú, Elísabet,
Hrafnhildur og Barði, luku
öll glæsilegum árangri á
árinu.
í desember varð Elísabet
doktor í klinískri lyfjafræði
Dr. Elísabet Guðmundsdóttir
og mun vera fyrsta Suður-
nesjakonan sem hlýtur
doktorsnafnbót. Lauk hún
doktorsprófi við háskóla í
Kaliforníu og fjallaði rit-
gerð hennar um rannsókn
varðandi notkun krabba-
meinslyfja við liðagigt.
Systir hennar, Hrafn-
hildur, lauk á síðasta ári
burtfararprófi í söng frá
Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
söngkona
Tónlistarskólanum í Rvík
og stundar nú framhalds-
nám í söng.
Bróðir þeirra, Barði, út-
skrifaðist einnig í fyrra frá
Leiklistarskóla íslands og
leikur nú hjá Leikfélagi
Akureyrar.
Öll eru þau systkin fædd
að Utskálum.
(Stytt úr Faxa skv. heimild J.T.)
Barði Guðmundsson, leikari
Vilt þú éta
bankastjórann?
Hatar þú bankastjór-
ann fyrir að neita þér urn
lán, eða gætir þú hugsað
þér að éta útibússtjór-
ann, sveitarstjórann,
forstjórann, vélstjórann
eða jafnvel bæjarstjór-
ann? Nú getur þú látið
ósk þína rætast, því
skyndibitastaðurinn
Lang-Best í Keflavík
hefur gefið pizzurn
sínum þessi nöfn og
mörg önnur.
Fjölgun
bílaumboða
á Suðurnesjum
Nú hefur Brimborg
hf. opnað umboð á Suð-
urnesjuni fyrir Daihatsu
bifreiðar, nánar tiltekið
við Bolafót í Njarðvík.
Uniboð þetta er að vísu
ekki alveg nýtt á nálinni
hér syðra, því það var
hér áður fyrr að ein-
hverju leyti í höndum
Bílaness og Gljáa í
Njarðvík. Eftir þetta
liafa þrjú bílainnflutn-
ingsfyrirtæki skapað sér
þá sérstöðu að veita Suð-
urnesjamönnum þá
þjónustu að þurfa ekki
lengurtil Reykjavíkurtil
að kaupa nýjan bíl.
Fyrir utan ofangreint
umboð er það Toyota
hjá Bílasölu Brynleifs og
Hekla hf. hjá Bílanesi.
Ha, draumsýni?
Þeir voru margir sem
hlógu dátt er Reykjanes-
ið koni út síðast, því
á forsíðu þess var viðtal
við Ingólf Falsson, þar
sem hann segir að Sjálf-
stæðisflokkurinn i Kefla-
vík stefni á meirihlutann
i bæjarstjórninni og því
yrði 5. sæti listans bar-
áttusætið. Telja menn að
ekki sé hér á ferðinni
bjartsýni í meira lagi,
heldur frekar draum-
sýni. En þegar betur er
að gáð kemur í ljós að
það er léleg barátta hjá
stórum flokki að stefna
ekki á einhverja aukn-
ingu strax í upphafi bar-
áttunnar, því ef fást á
góður kraftur verður
markmiðið að vera hátt
strax í upphafi, annars
getur farið illa.
Grindavík úr SSS
Hin margumrædda
þreyta innan SSS tekur á
sig ýrnsar myndir. Nú í
upphafi kosningabar-
áttunnar í Grindavík er
það t.d. mjög eftirtekt-
arvert að flestir nýju
mennirnir hafa endur-
skoðun á hlutdeild
Grindavíkur innan SSS
eða jafnvel úrsögn bæj-
arfélagsins á stefnuskrá
sinni, ef þeir ná kjöri.
Það skyldi þó aldrei fara
svo að Grindvíkingar
yrðu sér ríki á Suður-
nesjum?
Kjörseðlarnir
sendir heim
Um siðustu helgi fór
fram prófkjör Sjálfstæð-
isfélagsins í Miðnes-
hreppi. Þar eins og ann-
ars staðar á Suðurnesj-
um gáfu núverandi
sveitarstjórnarmenn
flokksins ekki kost á sér
til endurkjörs, en þeir
eru Jón Júlíusson og
Gunnar Sigtryggsson.
Annars staðar í blaðinu
er sagt frá úrslitum próf-
kjörsins, sem var
nokkuð nýstárlegt hér á
Suðurnesjum, því kjör-
seðlarnir voru bornir
heim til stuðnings-
manna flokksins og
sóttir síðan á ný eftir
góðan umþóttunartíma,
en auk þess var opinn
kjörfundur á sunnudeg-
inum fyrir þá sem ekki
fengu heimsenda seðla.
Byggingaval hætt
Byggingavöruverslun-
in Byggingaval við Iða-
velli í Keflavík, hefur nú
hætt starfsemi sinni, en
að undanförnu hefur
verslunin átt í miklum
rekstrarerflðleikum. Ekki
mun vera um gjaldþrot
að ræða, heldur stefna
eigendur að því að semja
við alla skuldunauta og
einnig standa yfir samn-
ingar á sölu á eignum
fvrirtækisins, s.s. lager
þess.
Er eitthvað að
fæðast hjá
Framsókn?
Eftir upplýsingum
Mola virðist eitthvað
vera að ske varðandi
framboðsmál Fram-
sóknarmanna í Kefla-
vik. Hafa heyrst fjögur
nöfn seni þar koma til
greina, þ.e. Drífa Sigfús-
dóttir. Magnús Haralds-
son, Þorsteinn Árnason
og Börkur Eiriksson. Þá
hafa borist fréttir af
þriðja manninum á lista
Gylfa Guðmundssonar.
Er það Kristján Ingi-
bergsson, skipstjóri.