Víkurfréttir - 13.03.1986, Page 6
)
Fimmtudagur 13. mars 1986
VÍKUR-fréttir
Firmakeppni
í knattspyrnu verður haldin í Íþrótíahúsinu
í Sandgerði, 22. og 23. mars.
Þátttaka tilkynnist fyrir 21. mars í síma
7736.
KKD Reynis
„ VITRETEK
fostmálnM
iiy HUStÐUW&ilZ*' í
NJARÐVÍKINGAR
SUÐURNESJAMENN
Afgreiðum á verksmiðjuverði
hinar geysivinsælu málningarvörur:
VITRETEX plastmálningu
og mynsturmálningu.
GOOD WOOD þiljulökk
og ýmislegt fleira.
Hagsýnir gera verðsamanburð áður en til
framkvæmda kemur.
Framleiðandi á Islandi:
Slippfélagið íReykjavíkhf
Málnmgarverksmiðjan Dugguvogi - Simar 33433 og 33414
Umboðsmaður á Suðurnesjum:
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON
málarameistari
Borgarvegi 30, Njarðvík, sími 2471.
Afgreiðsla: Bolafæti 3, Njarðvík.
Opið alla virka daga kl. 18-20.
Orðvar skrifar:
Stuðningsmannafélag til stórbyggingar
Það má aldrei «ke, að
Sparisjóðurinn í Keflavík
láti þessa myndarlegu bygg-
ingu við Tjarnargötuna af
hendi. Heldur verða allir
sannir Suðurnesjamenn að
taka höndum saman og
stofna stuðningsmannafél-
ag til að hægt verði að Ijúka
við bygginguna á löglegan
hátt til fyrirhugaðra nota.
„Gagnkvæmt traust“ gætu
samtökin heitið og væri vel
við hæfi að starfsfólk Spari-
sjóðsins hefði forgöngu í
málinu. Með fullri virðingu
fyrir tilverurétti peninga-
stofnana allra landsmanna,
þá væri margt öðruvísi hér á
Suðurnesjum hefði Spari-
sjóðsins ekki notið við, oft á
neyðarstund. Margir sætu
uppi með hálfnuð verk.
Sparisjóðurinn er okkar
sverð og skjöldur og nú eig-
um við möguleika á að sýna
samstöðu. Ef nokkur þús-
und einstaklingar leggja
fram 1-10 þúsund krónur
hver er björninn unninn.
Verra er að hjálpa uppá
Njarðvíkinga, sem venju-
lega þykjast eiga allt um-
fram aðraSuðurnesjamenn.
Þeir hafa nú glápt úr sér
augun í leit að skrúðgarðin-
um sínum, sem einhverjir
framsýnir draumóramenn
lofuðu þeim fyrir 28 árum.
Hann er til, en aðeins í hug-
um Sjálfstæðismanna fjórða
hvert ár, og erfitt fyrir flesta
aðra að festa augu á honum.
Hitt sjá allir að skrúðgarð-
ur Keflvíkinga er í Njarð-
víkurlandi og var eitt af fá-
um vel ræktuðum túnum hér
áður fyrr, þar sem gildir
Njarðvíkurbændur heyjuðu
fyrir kýrnar sínar á sumrin.
Einhvern daginn sameinast
öll bæjar- og sveitarfélög
sunnan Hafnarijarðar í eitt.
Þá verður einn skrúðgarður
ekki mikið á milli vina.
Ekki er Njarðvíkingum
þó alls varnað, trúlega eru
þeir einir um það á öllu
landinu að viðhafa raun-
verulegt prófkjör. Með
þessu fyrirkomulagi, að all-
ir þrír flokkarnir hafi próf-
kjör samtímis, á sama seðl-
inum, veldur því að menn
taka varla þá áhættu, að
reyna að hræra í framboðs-
lista andstæðingsins, því þá
missa þeir tækifærið til að
hafa áhrif á sinn eigin lista.
Það eina sem skyggir á
hátiðleikann við þetta allt
um helgina er að gárungarn-
ir í Njarðvík segja að marg-
ir frambjóðendurnir hafi
verið tilnefndir af Hrekkja-
lómafélaginu. Við skulum
samt ekki dæma neinn fyrir-
fram.
Fjölbreytt hátíðarhöld í undirbúningi
Rætt við Hönnu Bachmann, formann imdirbúningsnefndar
um hátíðarhöld í tilefhi 100 ára afmæli Miðneshrepps
í sumar verður væntan-
lega gefin út saga Miðnes-
hrepps í tilefni af 100 ára af-
mæli hreppsins, en það er
Asgeir Asgeirsson sagn-
fræðingur sem vinnur að
gerð verksins. Að sögn
Hönnu Bachmann, form.
undirbúningsnefndarinn-
ar að hátíðarhöldum í til-
efni afmælisins, verða há-
tíðarhöldin í tvennu lagi.
„Grunnskólinn byrjar
með sýningu sem tengist
afmælinu“, sagði Hanna,
,,og er hún áætlun viku af
maí. Vinna nemendur að
ákveðnu verkefni í sam-
bandi við sögu og atvinnu-
líf og ýmislegt. Tónlistar-
skólinn mun tengjast þess-
ari grunnskólasýningu með
uppákomum og einnig eru
uppi hugmyndir um ein-
TILKYNNING FRÁ
SÍMASTÖÐINNI í KEFLAVÍK
Fermingarskeytaþjónustan verður með sama
hætti og undanfarin ár.
Sunnudaginn 23. mars verður fermingarskeyta
móttakan opin kl. 10.0019.00
Skírdag 27. mars kl. 10.0019.00
Annan í páskum 31. mars kl. 13.0018.00
Sunnudaginn 6. apríl kl. 10.0019.00
Sunnudaginn 13. apríl kl. 10.0019.00
Geymið auglýsinguna og notið þjónustuna.
PÓSTUR OG SÍMI
KEFLAVÍK
hver skemmtiatriði frá
krökkunum, sem þau vinna
þá sjálf.
Er möguleiki á að það
verði fleiri sýningar þarna,
en það er ekki alveg orðið
ljóst. Við leituðum til allra
félaga hér á staðnum, sem
eru bara furðu mörg, og
þau ráða sjálf hvort þau
velja vorið eða haustið.
Tóku þau öll mjög vel í að
taka þátt í þessu. Var það
markmið okkar í nefndinni
að allir yrðu þátttakendur,
bæði ungir og gamlir í þess-
um hátíðarhöldum og er
það von okkar að það takist
að virkja öll félögin, og er
það mjögjákvætt.
A ég frekar von á því að
meirihluti hátíðarhaldanna
verði ekki fyrr en í haust og
er þá miðað við mánaða-
mótin ágúst/september.
Eru hugmyndir um ýmsar
sýningar, s.s. sjóminjasýn-
ingu og heimilisiðnaðar-
sýningar, kvöldvökur,
íþróttir o.fl.
Höfum við sent bréf til
allra hreppsbúa um tilmæli
um að fegra og hreinsa til í
kringum sig, en eftir fund
um næstu helgi ættu
línurnar að skýrast betur.
En fyrir utan það sem að
ofan er talið erum við að
hugsa um útihátíðarhöld í
formi fjölskylduskemmt-
unar, sem yrði þá líka í
haust“, sagði Hanna að
lokum. - epj.
Kvartar yfir umgengni
unglinga í Fjörheimum
Bæjarstjóri Njarðvíkur
hefur sent Æskulýðsráði
Njarðvíkur bréf varðandi
umgengni unglinga í Fjör-
heimum. Er hér um að ræða
skemmdir sem unnar voru
á salerni og millihurð í
gangi. Hefur bréf þetta ver-
ið tekið til greina og ungl-
ingunum og starfsfólki gerð
grein fyrir þýðingu góðrar
umgengni á staðnum.
A fundi ráðsins kom
fram að 180-220 unglingar
sæki staðinn í viku hverri
og væri því eðlilegt að ein-
hver óhöpp komi upp.
Þótti fundarmönnum um-
gengni unglinganna um
Æskulýðsheimilið ekki
síðri, ef ekki betri, en þeirra
sem sækja stóra sal Stap-
ans og er þá um fullorðið
fólk að ræða í því tilfelli.
Þá kom fram, að því er
segir í bókun fundarins, að
Æskulýðsráð hefur látið
gera gagngerar breytingar á
salernum Æskulýðsheimil-
isins og hefur umgengni
batnað mjög við það.
epj.