Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.03.1986, Side 17

Víkurfréttir - 13.03.1986, Side 17
Fimmtudagur 13. mars 1986 17 VÍKUR-fréttir Skilafrestur auglýsinga er til kl. 14 á þriðjudögum. Greinar og fréttatilkynningar skuiu berast í síðasta lagi á mánudögum. yfÍKUR Raflagnavinnustofa Sigurðar Ingvarssonar Garði - Sími 7103, 7143 SIEMENS-raftæki KFK gefur IBK bikar - til afhendingar íþróttamanni ársins Átjánda mars n.k. verður íþróttabandalag Keflavík- ur 30 ára en það var stofnað þann dag árið 1956. I tilefni af þessum tíma- mótum afhenti KFK, Knattspymufélag Kefla- víkur, bandalaginu vegleg- an bikar að gjöf og fór af- hendingin fram sl. fimmtu- dag að viðstaddri stjórn ÍBK. Verðlaunagripur þessi skal veittur íþróttamanni ársins ár hvert og afhentur á ársþingi ÍBK. í tilefni af 30 ára afmæli bandalagsins verður sér- stakt afmælishóf haldið þann 27. mars n.k. í Félagsheimilið Stapi, Njarðvík: Illa fylgst með aldri ung- menna á skemmtunum Á fundi Æskulýðsráðs Njarðvíkur nýverið var eftirfarandi bókað: „Mjög mikið hefur bor- ist af kvörtunum til Æsku- lýðsráðs vegna þess hve illa er fylgst með aldri þeirra ungmenna sem sækja al- mennar skemmtanir í stóra sal Stapans. Hefur í þessu sambandi komið fram að 12, 13 og 14 ára börnum hefur verið veittur aðgang- ur að skemmtunum sem aðeins er ætlaðarungmenn- um sem verða 16 ára sama ár og skemmtunin er haldin og þeim sem eru eldri en það. Er í þessu sambandi talað mest um Stuðmanna- ball sem haldið var í vetur og einnig það ball sem hald- ið var á gamlárskvöld. Má geta þess að þessar kvartan- ir hafa bæði komið frá for- eldrum og þeim ungmenn- um sem sækja staðinn og náð hafa tilskildum aldri. Þykir Æskulýðsráði miður að svona er komið og frekar slæmt ef ekki er hægt að reka staðinn án þátttöku barna sem ekki hafa náð til- skildum aldri.“ Undir þessa samþykkt skrifa Arnar Ingólfsson, Eyrún Jónsdóttir og Guð- mundur Sigurðsson. epj. Nýr heilsugæslulæknir Heilbrigðisráðherra hefur skipað Pétur Thor- steinsson í stöðu heilsu- gæslulæknis við Heilsu- gæslu Suðurnesja. Var hann skipaður í stöðu þessa 1. mars s.l. og á hann að taka til starfa n.k. mánu- dag. Fjórir læknar sóttu um stöðu þessa fyrir utan Pétur, þeir Geir Hlíðar Guðmundsson, Krist- mundur Ásmundsson og Ólafur Stefánsson. Við leynilega atkvæðagreiðslu í stjórn Heilsugæslunnar fékk Pétur öll fimm at- kvæðin. Mælti stjórnin því með honum, jafnframt því sem fyrri samþykkt stjórn- arinnar um búsetu lækna HSS á svæði HSS var ítrek- uð. epj. íþróttahúsi Keflavíkur. Á meðfylgjandi mynd er Jón Ólsen, formaður KFK, að afhenda formanni ÍBK, Ragnari Marinóssyni, bik- arinn. -pket. Ath: Eldavélar á kr. 18.950. Þvottavélar - Tauþurrkarar - Rakatæki Allt í eldhúsið. Einnig útvörp, útvarpsklukkur, hárblásarar o.fl. FÉLAGSBÍÓ - SÍMI1960 VÍSINDATRUFLUN FRÁBÆR NÝ GAMANMYND Gary og Wyatt hafa hannað hinn fullkomna kvenmann sem ætlar nú að uppfylla villtustu drauma þeirra um hraðskreiða bíla, villt partý og fallegt kvenfólk. Aðalhlutverk: Anthony Michael Hall (16 candles, Breaktast Club) Kelly LeBrock (Woman in Red) Leikstjóri: JOHN HUGES (16 candles, Breakfast Club)

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.