Víkurfréttir - 13.03.1986, Qupperneq 21
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 13. mars 1986 21
Valur Ingimundarson. fyrir-
liði UMFN, hampar Islands-
meistarabikarnum.
íslandsmeistarar Njarðvíkur ásamt þjálfara sínum, Gunnari Þorvarðarsyni,
EKKERT LÁT Á SIGURGÖNGU NJARÐVÍKINGA:
Meistarar 3. árið í röð
„Auðvitað erum við best-
ir“ sagði Valur Ingimund-
arson eftir að UMFN hafði
sigrað Hauka í annað sinn
og þar með tryggt sér Isl-
andsmeistaratitilinn í
körfuknattleik árið 1986.
Fyrri leikur liðanna fór
fram í Njarðvík en þá sigr-
uðu Njarðvíkingar með
miklum yfirburðum eða 94
stigum gegn aðeins 53 stig-
um Hauka.
„Það er mjög erfitt að
vera nýbúinn að sigra lið
með 40 stiga mun og ætla sér
svo að mæta með sama
krafti í næsta leik og vinna
en það tókst“ sagði Gunnar
Þorvarðarson, þjálfari
UMFN, eftir seinni leikinn.
Gunnar hélt áfram: „Eg er
auðvitað í sjöunda himni, því
að þetta er æðsta takmark
körfuknattleiksmanna hér á
landi. Stefnan er að sjálf-
sögðu að bæta við Bikar-
meistaratitlinum, en UMFN
hefur aldrei unnið þann
titil.“
Seinni leikur liðanna fór
fram í Hafnarfirði, en þá
sigruðu Njarðvíkingar 88-
86 eftir æsispennandi loka-
mínútur. Það var UMFN
sem leiddi allan fyrri hálf-
leikinn með fimmtán til
tuttugu stigum. í hálfleik
var staðan 52-34 UMFN í
vil. En með miklu harðfylgi
og krafti tókst Haukum að
jafna þegar um fjórar mín.
voru til leiksloka. En þegar
3 sek. voru til leiksloka
skoraði Valur Ingimundar-
son sigurkörfuna með stór-
glæsilegu skoti og þær 3
sek. sem eftir voru nægðu
Haukum ekki til þess að
skora. Þar með varUrvals-
deildartitillinn kominn í
hendur Njarðvíkinga í
fimmta skiptið á sl. 6 árum
og þriðja árið í röð. Varla
getur slík sigurganga flokk-
ast undir heppni.
„Við eruin besta körfu-
boltaliðið á Islandi í dag.
Helstu ástæðurnar fyrir því
eru þær að við höfum mestu
breiddina af liðum deiidar-
innar, langbesta þjálfara
landsins, nú svo synir sigur-
ganga okkar síðastliðin 6 ár
það ótvírætt að við erum
besta iiðið í dag. Auðvitað
hefur heppnin verið með
okkur. Eins og til dæruis
þegar við unnum IBK tvisvar
í úrslitakeppninni með að-
eins tveimur stigum sem
voru skoruð á síðustu
sekúndunum og það að
Haukarnir þurftu 3 leiki við
Valsmenn í úrslitakeppn-
inni. Það kom sér mjög vel
fyrir okkur. En að vinna
Haukana með 40 stigum
getur ekki talist heppni eða
þá að vinna fimm titla af sex.
Nú verðum við bara að vinna
Bikarkeppnina, það er kom-
inn tími til að vinna þann
titil.“ Þetta hafði Valur
Ingimundarson að segja um
Iið IJMFN og þetta stórgóða
gengi þess í vetur sem og
síðastliðin ár.
-gjó.
BIKARÚRSLITIN í HÖLLINNI í KVÖLD:
VINNA NJARÐVÍKINGAR
FJÓRFALT í ÁR?
Svo gæti farið að UMFN
yrði fjórfaldur meistari í
körfuknattleik á þessu
keppnistímabili. Nú þegar
hefur UMFN tryggt sér
þrjá titla, þ.e.a.s. Reykja-
nesmeistarar, Deildar-
meistarar og íslandsmeist-
arar. Sá möguleiki er þvi
fvrir hendi að ef UMFN
vinnur Bikarkeppnina
núna í fyrsta sinn, þá væri
það fjórði titill liðsins á
keppnistímabilinu. Segja
mætti að ef slíkur árangur
næðist, þá væri það nánast
fullkomnun á árangri eins
körfuknattleiksliðs á ís-
landi.
UMFN leikur til úrslita í
Bikarkeppni KKÍ gegn
Haukum í kvöld, fimmtu-
dagskvöld kl. 21, og þá
verður leikurinn í LAUG-
ARDALSHÖLI.INNI. Á-
stæða er til að hvetja alla
sem vettlingi geta valdið og
lófurn klappað, til að mæta
i Laugardalshöllina og
hvetja UMFN-liðið til að
vinna sinn fyrsta Bikar-
meistaratitil, svo ekki sé
talað um fjórða titilinn á
þessu keppnistímabili.
Að lokum er rétt að geta
þess, að sætaferðir verða
farnar á vegum UMFN á
þennan eflaust stór-
skemmtilega og spcnnandi
leik. Farið vcrður frá í-
þróttahúsinu í Njarðvik og
lagt verðttr af stað kl.
19.45.
,,Má ég halda á honum næst, strákar“, gæti Gunnar Þorvarðarson
verið að segja við þá Ellert og Ingimar.
Njarðvíkingar fögnuðu innilega í leikslok.