Morgunblaðið - 24.11.2015, Side 21

Morgunblaðið - 24.11.2015, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2015 Kíkt í skólatöskuna Stúlkan leitaði einbeitt að einhverju mikilvægu sem hún saknaði í litríkri skólatösku á meðan bílarnir þustu fram hjá með tilheyrandi gný sem fyllti loftið. Golli Í síðustu viku sótti okkur Íslendinga heim bandarískur maður, William (Bill) Browder að nafni. Þessi maður hafði að segja afar merkilega sögu úr sam- tímanum og má kannski segja að atburðarás hennar standi ennþá yf- ir. Hann hafði verið með fjárfestingastarf- semi í Rússlandi fyrir og fyrst eftir síðustu aldamót, allt þar til honum var meinuð för inn í landið á árinu 2005, og fékk hann ekki að koma þangað aftur. Hann átti þar fé í fjárfestingarsjóðum (Hermitage Management Funds) sem var afrakstur af vel heppnaðri fjárfestingastarfsemi árin á undan. Nú var hann fallinn í ónáð hjá Pútín forseta og því úthýst úr landinu. Browder áttaði sig strax á því hvað væri á seyði og lánaðist að koma fjármunum sínum og nánustu sam- starfsmönnum úr landi. Þegar hann gerði sjóði sína upp fyrir brottflutning þeirra leiddi það til greiðslu skatta í rík- issjóð Rússlands sam- tals um 230 milljónir dollara. Lögfræðing- urinn Sergei Mag- nitskí, 35 ára gamall, sem unnið hafði fyrir Browder í Rússlandi, komst að því að rúss- neskir embættismenn höfðu stolið stimplum sem notaðir voru til að auðkenna fyrirtæki Browders. Þeir notuðu þá síðan til að falsa kröfu í nafni fyr- irtækisins um endurgreiðslu fyrr- greindra skatta úr ríkissjóði og fengu þá greidda um hæl. Sergei kærði þetta athæfi til rússneskra yf- irvalda og gaf sakfellandi vitnisburð um athæfi þessara afbrotamanna. Við því var brugðist með því að handtaka Sergei í nóvember 2008 og halda honum föngnum við þröngan kost í rússneskum fangelsum. Til- gangurinn var að fá hann til að falla frá framburði sínum um afbrot hinna rússnesku embættismanna. Báru þær tilraunir engan árangur þó að níðst væri á Sergei í fangels- isvistinni, hann pyntaður og honum neitað um alla læknishjálp. Fór svo að hann andaðist fársjúkur innan múranna 16. nóvember 2009. Frá þessum tíma hefur Bill Brow- der helgað líf sitt baráttunni fyrir því að draga morðingja Sergeis til ábyrgðar fyrir ódæðið. Ekkert gekk að koma því erindi fram í Rússlandi sjálfu og tók hann þá til við baráttu í Vesturheimi til að fá lagt bann við því að hinir rússnesku ódæðismenn, sem hann nafngreindi, fengju að koma til Vesturlanda og höndla þar með illa fengið fé sitt. Leiddi þetta meðal annars til þess að bandaríska þingið setti lög, „The Magnitsky Act“, sem kváðu á um þetta. Brow- der vinnur nú að því að fá sambæri- legar lagareglur lögfestar í Vestur- Evrópu. Síðastliðið vor gaf Bill Browder út bókina „Red Notice“, þar sem þess- ari atburðarás er lýst. Þar er að finna dramatíska frásögn sem jafn- ast á við bestu spennusögur. Þessi bók hefur nú komið út á 25 tungu- málum. Almenna bókafélagið hefur gefið úr íslenska þýðingu bókarinn- ar og ber íslenska útgáfan nafnið „Eftirlýstur“. Bók sína helgar Brow- der minningunni um hinn hugrakka lögfræðing sem fremur vildi láta lífið en að lúta vilja ódæðismannanna sem náð höfðu honum á vald sitt. Þessi atburðarás, sem raunar stendur ennþá yfir, er að mínum dómi afar merkileg, ekki síst vegna þess að hún er um menn með rétt- lætiskennd, sem byggist á hugsjón- um þeirra, og þrek til að standa við þær þótt óþokkar sæki að. Á þetta bæði við um Sergei Magnitskí, lög- fræðinginn unga sem galt fyrir með lífi sínu, og Bill Browder sjálfan sem getur í reynd hvergi gengið óhultur vegna þrautseigju sinnar við að koma einhvers konar réttlæti yfir ódæðismennina. Má segja að hann hafi með þessum verkum sínum gef- ið lífi og andláti Magnitskís merk- ingu, sem er til þess fallin að hafa áhrif til góðs í annars bágborinni veröldinni. Þetta er líka saga um ömurlegt stjórnarfar í alræðisríki eins og Rússlandi og spillingu sem þar þrífst, ekki síst í skjóli æðsta valdamannsins, Pútíns forseta. Ég hvet ungt fólk á Íslandi til að lesa þessa bók og læra af henni hversu gjöfult það getur orðið fyrir lífsandann að vera fús til að standa við og berjast fyrir hugsjónum um réttlæti og heiðarleika, að minnsta kosti ef maður þarf ekki að gjalda fyrir með lífi sínu (jafnvel líka þá!). Gamlingjarnir geta ef til vill líka eitthvað af þessu lært þó að erfiðara sé að kenna gömlum hundum að sitja. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Þessi atburðarás, sem raunar stendur ennþá yfir, er að mínum dómi afar merkileg, ekki síst vegna þess að hún er um menn með réttlætiskennd, sem byggist á hugsjónum þeirra, og þrek til að standa við þær þótt óþokkar sæki að. Jón Steinar Gunn- laugsson Höfundur er lögfræðingur. Saga af hetjudáðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.