Morgunblaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2015
Þorsteinn Víglundsson, fram-kvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, bendir á að ef trygg-
ingagjaldið lækki ekki á næsta ári
séu kjarasamningarnir fyrir tímabil-
ið 2016-2018 í uppnámi, en þeir
koma til endur-
skoðunar í febrúar
næstkomandi.
Tryggingagjaldiðer enn hátt
þrátt fyrir að at-
vinnuleysi sé lítið og
Þorsteinn segir að
það skili nú 20-25
milljörðum króna ár-
lega umfram það
sem það ætti að
gera.
Og ekki batnarþað, því að Þorsteinn bendir á
að fjölmargir „kreppuskattar“ hafi
verið lagðir á í tíð fyrri ríkisstjórnar
og skattheimta á atvinnulífið hafi
aukist mikið. Hann heldur áfram:
„Árleg tekjuaukning ríkisins af
þeim völdum nemur 85 milljörðum
en niðurskurður útgjalda hefur ver-
ið mun minni en áformað var. Ekki
er að sjá neinn grundvallarmun á
skattastefnu núverandi ríkisstjórnar
og þeirrar sem á undan henni sat.
Vinstri er hægri og hægri vinstri.“
Þetta er ekki fagur vitnisburðurum þá stefnu í ríkisfjármálum
sem tók við af skattpíningarstefnu
vinstri stjórnarinnar en því miður er
mikið til í honum.
Núverandi stjórnvöld geta hinsvegar byrjað að reka af sér
slyðruorðið í skattamálum með því
að lækka tryggingagjaldið mynd-
arlega um næstu áramót.
Þorsteinn segir engin merki sjá-anleg um að ætlunin sé að
lækka tryggingagjaldið, nú þegar
önnur umræða um fjárlög er fram-
undan. Getur það verið?
Getur verið að
ekkert verði gert?
STAKSTEINAR
Bjarni
Benediktsson
Þorsteinn
Víglundsson
Veður víða um heim 29.11., kl. 18.00
Reykjavík -1 skýjað
Bolungarvík -4 snjókoma
Akureyri -1 alskýjað
Nuuk -13 léttskýjað
Þórshöfn 2 skýjað
Ósló 1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 léttskýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 3 skýjað
Lúxemborg 8 skýjað
Brussel 11 skúrir
Dublin 7 léttskýjað
Glasgow 3 skúrir
London 13 skýjað
París 12 alskýjað
Amsterdam 12 léttskýjað
Hamborg 8 skúrir
Berlín 7 skýjað
Vín 7 alskýjað
Moskva -5 heiðskírt
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 12 heiðskírt
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 11 léttskýjað
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -7 heiðskírt
Montreal -2 snjóél
New York 3 léttskýjað
Chicago 3 skýjað
Orlando 24 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:43 15:51
ÍSAFJÖRÐUR 11:17 15:27
SIGLUFJÖRÐUR 11:01 15:08
DJÚPIVOGUR 10:19 15:14
Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is
Bazar veggljós
Auðlind – minn-
ingarsjóður Guð-
mundar Páls
Ólafssonar nátt-
úrufræðings og
rithöfundar held-
ur fund um nátt-
úruvernd í Þjóð-
minjasafninu á
morgun, 1. des-
ember.
Auðlind er náttúruverndarsjóður
sem hefur endurheimt votlendis að
meginviðfangsefni. Hann var stofn-
aður 1. desember 2008 með það að
markmiði að vera alhliða verndar-
sjóður íslenskrar náttúru. Hann hef-
ur þó einbeitt kröftum sínum að
endurheimt votlendis, en eyðing
þess er langmesti einstaki orsaka-
valdur aukins útblásturs
gróðurhúsalofttegunda hérlendis,
segir í fréttatilkynningu.
Til að gefa dæmi um árangur af
endurheimt votlendis og kynna sjóð-
inn verður haldinn styrktarfundur
þriðjudaginn 1. desember kl. 17 í sal
Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu.
Þar mun Vigdís Finnbogadóttir
kynna Auðlind og Sigurkarl Stef-
ánsson segja frá og sýna þann ár-
angur sem orðið hefur af endur-
heimt votlendis, sem styrkt var af
Auðlind. Hlynur Óskarsson flytur
hugleiðingar um votlendi, Andri
Snær Magnason rithöfundur heldur
ræðu og Sif Tulinius flytur tónlist.
Öllum er heimill ókeypis aðgangur.
Auðlind heldur
kynningarfund
Vigdís
Finnbogadóttir
Í ályktun 47. þings Farmanna- og fiskimanna-
sambands Íslands, sem haldið var í síðustu
viku, kemur fram að þingið telur brýnna en
nokkru sinni að stórauka veiðarfæra-, haf- og
fiskirannsóknir. „Aukin þekking á þessum svið-
um er algjör grunnforsenda fyrir betri nýtingu
á auðlindum hafsins. Ómæld verðmæti fara for-
görðum að óbreyttu ástandi. Það er algjör lág-
markskrafa að tryggt sé að rannsóknarskip
stofnunarinnar séu nýtt til rannsókna af fullum
krafti allt árið, en liggi ekki í höfn langtímum
saman vegna fjárskorts,“ segir í ályktun um
Hafrannsóknastofnun.
Sömuleiðis er skorað á stjórnvöld að tryggja
Landhelgisgæslu Íslands nægjanlegt fjármagn
til reksturs skipa stofnunarinnar.
Fagna yfirlýsingu Rannsóknarnefndar
Í ályktun um öryggismál er þeirri áskorun
beint til stjórnvalda að þau beiti sér fyrir því
að viðbrögð vegna sjóslysa verði í framtíðinni
með sama hætti og þegar um flugslys er að
ræða. Fagnað er yfirlýsingu Rannsóknar-
nefndar samgönguslysa þar sem lýst er yfir að
taka verði flakið af Jóni Hákoni BA til að ljúka
rannsókn þessa hörmulega slyss og skorað er á
þar til bær yfirvöld að bregðast við þessari
beiðni.
Loks má nefna að þing FFSÍ lýsir sem fyrr
yfir afdráttarlausum stuðningi við hvalveiðar
og varar eindregið við vanmati á þeim áhrifum
sem afrán hvalstofna hefur á þá nytjastofna
sem mesta þýðingu hafa.
Hafrannsóknir verði stórauknar
Viðbrögð vegna sjóslysa verði með sama hætti og þegar um flugslys er að ræða