Morgunblaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 334. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. „Þeir geta aldrei brotið mig niður“ 2. Verða að sanna samþykki 3. Mikilvægur sigur Liverpool á Swansea 4. Er hann Elvis kannski enn á lífi? »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Dagur íslenskrar tónlistar verður haldinn hátíðlegur á morgun, 1. des- ember, og munu helstu útvarps- stöðvar landsins spila þrjú íslensk lög samtímis kl. 11.15 af því tilefni. Ís- lendingar geta þá sameinast við út- varpið og sungið lög til heiðurs ís- lenskri tónlist og er þetta fimmta árið sem haldið er upp á daginn með þessum hætti. Markmiðið er að fá börn í skólum og leikskólum, fólk á vinnustöðum og alla alls staðar til að kveikja á útvarpinu klukkan 11.15 og syngja með. Lögin þrjú eru „Bláu augun þín“, lag Gunnars Þórðarsonar við texta Ólafs Gauks Þórhallssonar, þjóðlagið „Krummi krunkar úti“ og „Í síðasta skipti“ eftir Pálma Ragnar Ásgeirsson, Ásgeir Orra Ásgeirsson, Sæþór Kristjánsson og Friðrik Dór Jónsson. Söngtexta má finna á Face- book-síðu Syngjum saman: face- book.com/syngjumsaman. Verðlaunin Lítill fugl verða einnig veitt á morgun einstaklingi sem hef- ur þótt skara fram úr í stuðningi við íslenska tónlist á árinu. Morgunblaðið/Ómar Sungið saman á Degi íslenskrar tónlistar  Fyrstu gluggar jóladagatala Nor- ræna hússins og Hönnunarsafns Ís- lands verða opnaðir í dag. Dagatalið í Norræna húsinu er að þessu sinni hannað af listakonunni Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur. Gluggi verður opn- aður kl. 12.34 daglega fram að jólum og dagskráin að vanda leynileg. Í anddyri Hönn- unarsafnsins verður glugga breytt í jóla- dagatal, einn hlutur úr safneign sýndur á dag og er daga- talið tileinkað hönnun kvenna í ár. Jóladagatöl opnuð Á þriðjudag Vaxandi austanátt, hvassviðri eða stormur undir kvöld, fyrst sunnantil á landinu. Snjókoma eða slydda, en úrkomu- lítið norðaustanlands og lengst af mun hægari vindur. Dregur úr frosti og hlánar við suðurströndina. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, 3-10 m/s og él á víð og dreif um allt land. Frost 0 til 7 stig. Kólnar í veðri, einkum norðantil. VEÐUR Íslendingar unnu titil í Kína Mikil spenna ríkti á Íslandsmótinu í listhlaupi á skautum í Skautahöllinni í Laugardal í gær. Tveir síðustu kepp- endurnir í unglingaflokki A, Agnes Dís Brynjarsdóttir og Emilía Rós Óm- arsdóttir, slógu báðar Íslandsmetið sem var í eigu Völu Rúnar B. Magnúsdóttur frá því á Reykjavíkur- leikunum í fyrra. » 7 Íslandsmetið tvíbætt í Skautahöllinni Haukar og ÍBV féllu úr leik í Evrópukeppnum í handknatt- leik karla um helgina. Haukar lutu í lægra haldi fyrir Arnóri Atlasyni og félögum hans í franska liðinu St. Raphael í EHF-keppninni. ÍBV lét hins vegar í minni pokann fyrir portúgalska liðinu Benfica í Áskorendabikarnum. »4 Íslensku liðin féllu úr Evrópukeppnum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Á annað hundrað manns kemur reglulega í getraunakaffi Víkings í kjallaranum í Víkinni á hverjum laug- ardegi. Öflugt getraunastarf hefur vakið athygli og alla jafna er félagið með næsthæstu innkomu íþrótta- félaga á landinu í gegnum getrauna- starfið á eftir Íþróttafélagi fatlaðra. „Þetta er gríðarlega mikilvægt fé- lagslegt atriði hjá okkur. Þetta þjappar félagsmönnum saman og þarna er hægt að ræða öll heimsins mál,“ segir Haraldur Haraldsson, formaður Víkings. Hann segir að aukinn kraftur hafi verið settur í starfið fyrir nokkrum árum og að dæmi séu um að menn sem lengi hafi verið frá klúbbnum hafi aftur komið að félaginu. „Sér- staklega eru þessir eldri duglegir að koma og hitta menn sem þeir hafa ekki séð í mörg, mörg ár eða ára- tugi,“ segir Haraldur. Að sögn hans hefur getrauna- starfið mest skilað félaginu á sjöundu milljón króna á einu ári. „Þetta er gríðarlega mikilvægt yfir vetrar- mánuðina þegar fjármagnið sem kemur inn er hvað minnst,“ segir Haraldur. Feðgar og feðgin, hjón og systkini Að sögn hans koma bæði konur og karlar í Víkingsheimilið að tippa. „Við sjáum svolítið að feðgar séu að koma saman. Svo eru einnig hjón og feðgin sem tippa saman og systkini,“ segir Haraldur. Hann segir dæmi um að menn hafi nælt sér í stóra vinn- inga. Þá er gjarnan spilað svokallað húskerfi þar sem menn leggja pening í pott. Fyrir nokkrum árum skilaði það þátttakendum nokkrum millj- ónum í heildina í hús. „En þetta snýst ekki síst um kýt- ing manna á milli þar sem þeir eru að segja hvað þessi og hinn er lélegur í tippinu,“ segir Haraldur og hlær. Koma í kaffi, kýta og tippa  Á annað hundrað manns í getrauna- kaffi Víkings  Bakhjarlar í kjallaranum Morgunblaðið/Eggert Dyggir Víkingar Flesta laugardaga mætir stór hópur í Víkina til að ræða málin og efla félagsandann. Frá vinstri eru Eggert Guðmundsson, Brynjar Bragason, Heiðar Gunnarsson, Bjarni Gunnarsson, Gísli Elíasson, Jón Ólafsson, Björn Kristjánsson, Diðrik Ólafsson og Magnús Theódórsson. „Við mætum þarna til að rífa kjaft hver við annan. Þetta er eins konar búningsklefahúmor,“ segir Jó- hannes Tryggvason, einn fastagesta í kjallaranum í Víkinni. Jóhannes lék sjálfur knattspyrnu með Vík- ingum fyrir rúmum fjörutíu árum og segir hann marga þá sem koma til að tippa hafa stundað íþróttir með fé- laginu. „Fjarlægðin gerir fjöllin blá og því lengra sem líður frá því að við spiluðum fótbolta, því betri vorum við. Það eru svo fáir til frásagnar frá þessum tíma,“ segir Jóhannes í gamansömum tón. Hann segir þann elsta sem mæti vera 93 ára en svo komi margir með börnin og barnabörnin, því sé fólk á breiðu aldursbili. „Það eru margir sem eru á milli áttatíu og níutíu ára gamlir. Þetta er það sem er svo skemmtilegt við þetta. Fólk er að mæta með börnin sín og ólíkar kynslóðir hittast þarna,“ segir Jóhannes. Spurður hvort getraunir gefi eitthvað af sér, þá segir hann að eitt árið hafi hann grætt um 600 þúsund krónur. „Við erum með kerfi þar sem þú getur sett pening í pott. Nú síðast var potturinn 500 þúsund sem við lögðum undir. Í hálfleik stóð hann í fimm milljónum en á endanum fengum við bara helming fjárfest- ingarinnar til baka,“ segir Jóhannes. Verða sífellt betri í fótbolta eftir því sem tíminn líður JÓHANNES TRYGGVASON ER FASTAGESTUR Í GETRAUNAKAFFINU Sölvi Geir Ottesen, Viðar Örn Kjartansson og félagar þeirra í Jiangsu Sainty urðu í gær bikarmeistarar í kín- versku knattspyrnunni. Ji- angsu Sainty sigraði þá Shang-hai Shenhua, 1:0, eftir framlengingu, í síðari bikarúrslitaleiknum. Viðar segir í samtali við Morgun- blaðið að um sé að ræða stærsta afrekið á sínum ferli en hann og Sölvi tóku báðir þátt í leiknum. »1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.