Morgunblaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2015 » Ungir rapparar spreyttu sig í Rímnaflæði, rappkeppni félagsmiðstöðv-anna, á föstudagskvöldið var og tróðu auk þeirra upp Emmsjé Gauti, Herra Hnetusmjör og Sigga Ey. Gylfi Noah Gabriel Fleckinger Örvarsson úr félagsmiðstöðinni Afdrepi í Snæfellsbæ sigraði í keppninni. Gylfi rapp- aði lagið Frjáls. Í öðru sæti var Alex Birgir Bjarkason og Oliver Sveinsson úr félagsmiðstöðinni Hólmaseli með lagið Velkomin í BRH og í þriðja sæti var Sara Mjöll Stefánsdóttir úr Félagsmiðstöðinni Laugó í Reykjavík. Rímnaflæði, rappkeppni félagsmiðstöðvanna, fór fram í félagsmiðstöðinni Miðbergi Sigurvegari Gylfi Noah Gabriel Fleckinger Örvarsson úr Afdrepi í Snæfellsbæ sigraði. Magdalena Keppandi úr Félagsmiðstöðinni 105 í Háteigsskóla rappar. Rappað af kappi Um það bil fjörutíu keppendur tóku þátt í Rímnaflæði Samfés að þessu sinni. Þrjár í Fókus Andrea, Díana og Rakel úr félagsmiðstöðinni Fókus. Morgunblaðið/Eggert Vinsæl keppni Uppselt var á rappkeppni Samfés og hún var sýnd í beinni útsendingu á netsamfelag.is. Blásið verður til hipphopp- og UFC- veislu á Nasa 12. desember nk. því þá koma fram hipphopp-tónlistar- mennirnir R.A. The Rugged Man, A-F-R-O (skammstöfun á All Flows Reachout) og Mr. Green. Sama kvöld fer fram UFC-bardagi Gunn- ars Nelson og Connors McGregor í Las Vegas og verður hann sýndur í beinni á risatjaldi. Um viðburðinn segir í tilkynningu að R.A. the Rugged Man geti talist í hópi merkilegustu hipphopp- tónlistarmanna sem senan hafi alið af sér og hann sé enginn nýgræð- ingur þegar rapp sé annars vegar. „Hann hóf sinn feril aðeins tólf ára gamall og hefur unnið með lista- mönnum eins og Mobb Deep, Wu Tang Clan og Notorius B.I.G svo fátt sé nefnt,“ segir í tilkynningunni. R.A. the Rugged Man sé virtur textasmiður af gamla skólanum og nýjasta plata hans, Legends Never Die, hafi fengið góðar viðtökur. Mr. Green sló í gegn með skemmtilegum myndböndum á You- Tube og mun vera ein skærasta stjarna sk. „lyrical“-hipphopps. Hann þykir magnaður taktasmiður og hefur verið eftirsóttur í hipp- hopp-heiminum. Mr. Green gaf ný- verið út plötu með Malik B úr hljóm- sveitinni Roots og vakti nýlegt verkefni þeirra mikla athygli en það fólst í því að Mr. Green gekk um göt- ur New York-borgar og tók upp tón- list með fólki sem hann hitti og sýndi afraksturinn á YouTube. Ótrúlegur orðaforði Um A-F-R-O segir í tilkynningu að hann hafi slegið í gegn á tánings- aldri, sé einkar hæfileikaríkur, orða- forði hans með ólíkindum mikill og textasmíðin hugmyndarík. „A-F- R-O er undrabarn sem R.A. upp- götvaði í rappkeppninni Definition of a Rap Flow sem hann setti á lagg- irnar. Hefur hann verið að fá mikla athygli á heimsvísu með sínum ótrú- legu hæfileikum. Myndbönd af sögu hans hafa gengið manna á milli á samfélagsmiðlum sem tugmilljónir hafa séð,“ segir í tilkynningunni. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og standa yfir til kl. 04 að morgni en tónlistarmennirnir gera hlé á þeim á meðan bardagi Gunnars Nelson verður sýndur á risatjaldi. Tónleik- arnir eru þeir síðustu í Evrópuferð R.A. The Rugged Man og félaga. R.A. The Rugged Man á Nasa  Þekktir hipphopp-tónlistarmenn og bardagi Gunnars í beinni 12. desember R.A. The Rugged Man Hóf hipphopp-feril sinn tólf ára gamall og hefur unnið með listamönnum eins og Mobb Deep og Notorius B.I.G. A-F-R-O Orðaforði hans þykir með ólíkindum og textasmíðin hugmyndarík. Myndbönd af sögu hans hafa gengið manna á milli á samfélagsmiðlum. HUNGER GAMES 4 2D 5:15,8 THE NIGHT BEFORE 8,10:45 GÓÐA RISAEÐLAN 2D 5:15 SPECTRE 6,9 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.