Morgunblaðið - 30.11.2015, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2015
Alltaf feti framar
gómsætur feti í salatið ogmeðmatnum
Loðskinnskragar
Loðskinnsvesti
Tryggvagötu 18 - 552 0160
Stöndum öll saman sem ein þjóð
Sýnum kærleik og samkennd í verki.
Við megum ekki gleyma fátæka fólkinu
á Íslandi. Jólasöfnun er hafin hjá
Fjölskylduhjálp Íslands.
546-26-6609, kt. 660903-2590
Hjálpið okkur að hjálpa öðrum.
Margt smátt gerir eitt stórt. Guð blessi ykkur öll
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Íþróttafélagið Mjölnir flytur alla starfsemi sína í hús-
næði Keilhuhallarinnar í Öskjuhlíð á fyrstu mánuðum
2016. Formaður Mjölnis, Jón Viðar Arnþórsson, kynnti
þetta á tíu ára afmælishátíð Mjölnis sl. laugardag.
Nokkuð er síðan forsvarsmenn Mjölnis hófu að leita
að framtíðarstaðsetningu fyrir félagið þar sem gera á
breytingar á gamla Loftkastalanum þar sem Mjölnir
hefur haldið til frá árinu 2011.
Verið er að ganga frá kaupum nýs eiganda á hús-
næði Keiluhallarinnar að sögn Jóns Viðars og er það
sett sem skilyrði fyrir kaupunum að Mjölnir leigi hús-
næðið til lengri tíma. Hann vill ekki gefa upp kaupand-
ann en segir að talað hafi verið um leigusamning til 20
ára.
Sex æfingasalir, útivistarsvæði og bar
Húsnæðið er 3 þúsund fermetrar að stærð og þarf að
ráðast í töluverðar framkvæmdir á húsnæðinu áður en
æfingar geta hafist. Mjölnishöllin, eins og æfingaað-
staðan hefur verið kölluð, verður stærsta bardagaæf-
ingasvæði heims að sögn Jóns Viðars. Stærsta bar-
dagaæfingasvæðið er í dag 2.800 fm að stærð að sögn
Jóns og er það í Bandaríkjunum. Í Mjölnishöllinni
verða sex æfingasalir, skrifstofur Mjölnis auk bars sem
hefur fengið nafnið Drukkstofa Óðins. Þar verður m.a.
hægt að fylgjast með UFC-bardögum.
Jón Viðar segir að búast megi við fjölgun iðkenda
sem búsettir eru í nágrannasveitarfélögum Reykjavík-
ur við flutninginn í nýju aðstöðuna. Þeir hafi margir
sett vegalengdina fyrir sig þrátt fyrir mikinn áhuga á
að æfa hjá Mjölni.
„Við erum komnir á besta stað í borginni og eigum
eftir að stútfylla Mjölnishöllina. Við erum með 1.300
iðkendur og náum auðveldlega tvö, þrjú þúsund manns
þarna,“ segir Jón Viðar og bætir við að mikil uppbygg-
ing sé fyrirhuguð á svæðinu í kring.
Mjölnir býður í dag upp á 100 tíma á viku og segir
Jón Viðar að nú verði hægt að bjóða upp á fleiri tíma á
betri tímum. Eins verður tækjasalur tekinn í gagnið,
sem er nýjung hjá Mjölni.
Eitt gjald fyrir allt verður áfram stefnan hjá Mjölni,
en Jón Viðar segir gjaldið líklega hækka eitthvað, sem
félagsmenn hafi skilning á enda aðstaðan fullkomin.
Ljósmynd/Mjölnir
Mjölnir Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis, greindi frá því að Mjölnir flytti í gömlu Keiluhöllina í Öskjuhlíð.
Verður stærsta bar-
dagaæfingasvæði heims
Mjölnir flytur í húsnæði Keiluhallarinnar í Öskjuhlíð
Einn af kostunum við staðsetn-
inguna í Öskjuhlíðinni er nálægðin
við útivistarperluna sem er að
finna í Öskjuhlíð, að sögn Jóns
Viðars. Hann segir að útivistar-
svæðið verði nýtt til æfinga hjá
Mjölni og því ætli íþróttafélagið að
stórbæta ímynd Öskjuhlíðar.
„Þetta er viðkvæmt svæði en
Reykjavíkurborg er búin að gefa
leyfi fyrir því að Mjölnir fari
þarna inn,“ segir Jón Viðar. Hann
segir að Mjölnir vilji skipta Öskju-
hlíð upp í níu heima goðafræð-
innar og gera þarna frábært úti-
vistarsvæði.
Tekur hann sem dæmi að einn
daginn mæti iðkendur á æfingu í
t.d. Jötunheimum þar sem þeir
lyfta þungu grjóti og drumbum.
Allt í anda hvers heims.
Jón Viðar segir að það eigi eftir
að útfæra hugmyndir um úti-
vistarsvæðið í samráði við borgar-
yfirvöld, en bætir við að almenn-
ingur muni njóta góðs af.
Mynd/Mjölnir
Öskjuhlíð Heimarnir níu eins og Mjölnismenn kynntu þá á laugardag.
Ætla að bæta
ímynd Öskjuhlíðar
- með morgunkaffinu