Morgunblaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 11
Greiningarvélin Eftirgerð hluta greiningarvélarinnar, The Analytical Eng-
ine, samkvæmt hugmyndum Babbages. Vélin er á Vísindasafninu í London.
hjá Sommerville lýsti sem reiknivél
sem gæti „… ekki aðeins verið
forspá heldur brugðist við for-
spánni“. Í kjölfarið gerðist hún
hvort tveggja nemandi Babbage og
aðstoðarkona. Þeim varð vel til vina,
en höfnuðu bæði þrálátum orðrómi
um ástarsamband sín á milli. Babb-
age kallaði Ödu töfrakonu talnanna.
Ödu megin hafði ástarlífið verið
býsna fjörugt, t.d. var móðir hennar
nýbúin að forða henni frá miklum
skandal þegar hún ætlaði að hlaup-
ast á brott með einum kennara
sinna. Ættingjar mannsins höfðu
komist á snoðir um ráðabruggið og
látið barónessuna vita.
Enginn engill
Mæðgurnar áttu í stöðugum
útistöðum. Ada skar sig töluvert úr
í hinu viktoríska samfélagi sem ætl-
aðist til að konur væru bljúgar, vel
siðaðar, dyggðum prýddar og
hlýðnar. „Ada var enginn engill,“
segir dr. Hannah Fry, stærðfræð-
ingur og sögumaður í heimildar-
mynd BBC, um samskipti fyrsta
forritararns við karlmenn, áfengi og
spilafíkn. Ada lést úr krabbameini
aðeins 36 ára árið 1852, stórskuldug
eftir að hafa í félagi við nokkra
karla lagt mikið undir í spilum sam-
kvæmt misheppnaðri stærðfræði-
formúlu sem þau höfðu búið til og
veðjað á.
En aftur að Ödu í lifanda lífi.
Árið 1835 gekk hún í hjónaband
með baróninum William King og
eignaðist með honum þrjú börn.
Hún var þó ekki lengi Ada King því
þremur árum síðar var bóndi henn-
ar sæmdur nafnbótinni jarl og varð
Ada þá greifaynjan af Lovelace.
Þótt Charles Babbage tækist
aldrei að smíða vélarnar, m.a. vegna
fjárskorts, lýsti Ada árið 1842
hvernig hægt væri að forrita grein-
ingarvélina til að reikna út alls kon-
ar formúlur. Í glósum hennar má
finna það sem kalla mætti fyrsta
forritið sem skrifað var fyrir forrit-
anlega tölvu. Þess vegna telst Ada
Lovelace fyrsti forritarinn.
Hugmyndarík og
framúrstefnuleg
Tildrögin voru þau að Babbage
var boðið að halda fyrirlestur um
vélina við Háskólann í Tórínó á Ítal-
íu. Ungur ítalskur verkfræðingur,
Luigi Menabrea, sem síðar varð for-
sætisráðherra, skrifaði fyrirlest-
urinn upp á frönsku og birti í sviss-
nesku fræðiriti. Ada var beðin um
að þýða greinina á ensku, sem hún
fór létt með og bætti aukinheldur
við eigin pælingum og hugmyndum
þar til að greinin varð þrisvar sinn-
um lengri en sú upphaflega. Þýð-
ingin og punktar Ödu voru birt í
ensku vísindatímariti árið 1843 und-
ir stöfunum A.A.L.
Í greininni lýsti Ada hvernig
hægt væri að búa til kóða þannig að
greiningarvélin réði, auk talnanna,
við bókstafi og tákn. Þá setti hún
fram kenningar um aðferð til þess
að gera vélinni kleift að vinna úr röð
fyrirmæla, ferli sem þekkt er sem
lykkjur og í dag er notað í forritun.
Ada viðraði fleiri framúrstefnulegar
hugmyndir sem henni entist ekki
aldur til að hrinda í framkvæmd,
enda var greiningarvél Babbages
aldrei smíðuð og forrit Ödu ekki
framkvæmt.
Banamein greifynjunnar af
Lovelace var krabbamein í móður-
lífi. Hún var að eigin ósk jarðsett
við hlið föður síns, Byrons lávarðar,
í kirkjugarði St. Mary Magdalene í
Hucknall í Nottinghamskíri.
Arfleifðin
Árið 1979 þróaði bandaríska
varnarmálaráðuneytið forrit og
nefndi það ADA í höfuðið á fyrsta
forritaranum. ADA kom í staðinn
fyrir fjölda forritunartungumála
sem ráðuneytið notaði á þeim tíma.
Breskir vísindamenn réðust ár-
ið 2011 í að byggja greiningarvél
Babbages, milljarðaverkefni sem
kallað er Plan 28. Áætlað er að
ljúka verkinu 2021 á 150 ára dán-
ardægri hans.
Sýning Teikning frá opnun King George III safnsins í London birtist í Ill-
ustrated London News 1. júlí 1883. Líkan af greiningarvélinni fyrir miðju.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2015
1815 Augusta Ada Byron fæddist 10. desember í London.
1829 Ada veikist af mislingum og var í mörg ár að ná heilsu.
1832 Ada hefur nám í stærðfræði og vísindum hjá Mary Sommerville.
1833 Ada byrjar að vinna með Charles Babbage.
1835 Ada giftist William King og verður Ada King.
1838 William og Ada King verða jarlinn og greifynjan af Lovelace.
1842 Luigi F. Menabrea birtir grein um greiningarvél Babbage í
svissnesku fræðiriti.
1843 Ada þýðir grein Menabrea með eigin útskýringum á hvernig
hægt væri að forrita greiningarvélina.
1844 Ada hættir stærðfræðirannsóknum vegna heilsubrests.
1852 Ada lést 27. nóvember.
1979 Bandaríska varnarmálaráðuneytið þróar forritið ADA, sem kom í
stað fjölda forritunartungumála sem ráðuneytið notaði á þeim tíma.
Fyrsti forritarinn
GREIFYNJAN AF LOVELACE
www.arc-tic.is www.arc-tic.is
ertu að leita að rétta úrinu á rétta verðinu?
við kynnum arc-tic Retro
Gilbert úrsmiður kynnir nýtt úr í ARC-TIC Iceland línunni á frábæru verði, úrið er íslensk
hönnun og kemur í ryðfríum 316L 5ATM stálkassa með vönduðu svissnesku quartz
gangverki. Úrið heitir ARC-TIC Retro og kemur í tveimur stærðum, 42 mm og 36 mm
í bæði hvítu og svörtu og fylgir nató ól með öllum úrum í íslensku fánalitunum.
íslensk
hönnun
VERÐ AÐEINS:
29.900,-