Morgunblaðið - 30.11.2015, Side 23
Þór var í Barnaskólanum í Eyj-
um og Gagnfræðaskólanum, hóf
nám við Vélskólann í Eyjum 1963
og lauk þaðan vélstjóraprófi, hóf
síðan nám við Stýrimannaskólann í
Eyjum 1965 og lauk þaðan hinu
meira fiskimannaprófi 1967.
Þór byrjaði til sjós á vélbátnum
Lagarfossi 1960, starfaði hjá Ár-
sæli Sveinssyni, m.a. í beitningu og
síðan í timburversluninni. Hann
fór aftur til sjós og var vélstjóri og
stýrimaður á ýmsum bátum, var
síðan skipstjóri á Sjöstjörnunni
VE 1968-72, kom í land í gosinu og
sá síðan um verkstjórn hjá Við-
lagasjóði við hreinsun á Heimaey.
Veturinn 1974 kom Þór ásamt
fleirum að því frumkvöðlastarfi að
hirða lognuhrogn úr farmi loðnu-
skipa. Var það upphafið að loðnu-
hrognavinnslu. Þór festi svo kaup
á 50 tonna bát, ásamt öðrum, árið
1974 og gerði hann út til 1979.
Hann hóf störf hjá Vinnslustöðinni
í Eyjum í ársbyrjun 1980, var þar
fyrst verkstjóri og hefur síðan ver-
ið starfsmannastjóri þar.
Þór sat í stjórn íþróttafélagsins
Þórs 1963-66, var formaður félags-
ins 1985-94 og var jafnframt fram-
kvæmdastjóri Þjóðhátíðar 1984 og
1986. Hann sat í nefnd fyrir hönd
íþróttafélagsins Þórs sem vann að
sameiningu Þórs og Týs, varð
fyrsti formaður ÍBV - íþrótta-
félags, við stofnun þess og til 2001.
Hann hefur verið formaður
Íþróttabandalags Vestmannaeyja
frá 2003.
Þór hefur setið í ýmsum nefnd-
um á vegum Alþýðuflokksins í
Eyjum, var varamaður í stjórn
Herjólfs í fjögur ár, sat í stjórn
tómstundarráðs og íþrótta-
miðstöðvarinnar á annan áratug,
stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja í
18 ár og stjórnarformaður í átta
ár. Hann hefur setið í ferðasjóð-
snefnd ÍSÍ frá stofnun, 2007, er fé-
lagi í Akoges frá 1983, er með-
limur í Hrekkjalómafélaginu og í
Golfklúbbi Vestmannaeyja.
„Ég eignaðist hlut í trillu fyrir
nokkrum árum og nýt þess að fara
á skak þegar tími gefst. Svo höfum
við átt sumarbústað við Gíslholts-
vatn í Holtum í 20 ár þar sem fjöl-
skyldan nýtur góðra sam-
verustunda.“
Fjölskylda
Eiginkona Þórs er Sólveig
Adolfsdóttir, f. 1.10. 1946, skrif-
stofukona. Foreldrar hennar voru
Adolf Magnússon, f. 12.2. 1922, d.
29.11. 2005, skipstjóri í Vest-
mannaeyjum, og Þorgerður Sigríð-
ur Jónsdóttir, f. 19.7. 1923, d. 22.3.
2003, húsfreyja.
Börn Þórs og Sólveigar eru
Adolf Hafsteinn, f. 23.4. 1966, eig-
andi Hjólbarðastofunnar í
Vestmannaeyjum og formaður
Björgunarfélags Vestmannaeyja en
kona hans er María Sigurbjörg
Sigurbjörnsdóttir skrifstofukona
og eru barnabörnin Sólveig, f.
1992, sem á dótturina Unu Maríu,
f. 2010, Sigurbjörn, f. 1997, Þor-
gerður Katrín, f. 2004, og Helgi
Þór, f. 2006; María, f. 6.1. 1972,
viðurkenndur bókari og eigandi
Heildverslunarinnar YD design í
Reykjavík en maður hennar er
Einar Guðnason, hárgreiðslumaður
og eigandi hárgreiðslustofunnar
Zoo.is, og eru barnabörnin Þór Ís-
feld, f. 2002, og Ísak Ísfeld, f.
2004; Helga Sigrún, f. 15.11. 1978,
sérkennari í Eyjum en maður
hennar er Jónas Guðbjörn Jóns-
son, pípulagningameistari og eig-
andi Vatnsveitunnar ehf., og eru
barnabörnin Jón Grétar, f. 2005,
og María Sigrún, f. 2012.
Systkini Þórs eru Óli Árni, f.
18.10. 1941, sjúkraliði í Þorláks-
höfn; Sæmundur, f. 6.12. 1948, raf-
magnseftirlitsmaður HS veitna í
Njarðvík; Sigurbjörg, f. 2.11. 1956,
húsfreyja í Eyjum; Vilhjálmur, f.
5.3. 1963, verkstjóri hjá Kubb í
Eyjum.
Foreldrar Þórs: Vilhjálmur
Árnason, f. 19.2. 1921, d. 19.2.
1993, framkvæmdastjóri og eigandi
þvottahússins Straums í Eyjum, og
María Gísladóttir, f. 6.3. 1923, hús-
freyja.
Úr frændgarði Þórs Ísfeld Vilhjálmssonar
Þór Ísfeld
Vilhjálmsson
Júlía Johannesen
húsfr. í Mjóafirði eystri
Karl Ísfeld Guðmundsson
b. í Mjóafirði eystri
Þórunn Ólafía Ísfeld
húsfr. á Norðfirði
Gísli Jóhannsson
verkam. á Norðfirði
María Gísladóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Katrín Gísladóttir
húsfr. á Krossi
Jóhann Marteinsson
b. og form. á Krossi í Norðfirði
Pálína Árnadóttir
húsfr. í Rvík
Guðfinna
Einarsdóttir
húsfr. í Eyjum
og í Rvík
Páll Gíslason bílstj.
og sjóm. í Eyjum
Ingigerður Jóhanns-
dóttir húsfr. í Eyjum
Árni Björn
Jónasson
verkfr. í
Rvík
Einar Elíasson
fyrrv. forstj.
Sets á Selfossi
Gísli Pálsson land-
fræðingur og rith.
Kristín
Þorsteins-
dóttir húsfr.
í Garðabæ
Árni Sigfússon fyrrv. borgarstj.
og bæjarstj. í Reykjanesbæ
Þorsteinn Sigfússon prófessor
Þór Sigfússon fram-
kvæmdastj. Sjávarklasans
Gylfi Sigfússon forstj. Eimskips
Ragna Árnadóttir
aðstoðarforstj.
Landsvirkjunar og
fyrrv. ráðh.
Bergsteinn
Einarsson
forstj. Sets
Guðfinna Árnadóttir
húsfr. á Stuðlum
Sigurður Finnbogason
b. á Stuðlum í
Norðfjarðarhreppi
Sigurbjörg
Sigurðardóttir
húsfr. í Eyjum
Árni Oddsson
umboðsm. Brunabóta-
félags Ísl. í Eyjum
Vilhjálmur Árnason
framkvæmdastj. í
Vestmannaeyjum
Jóhanna Lárusdóttir
húsfr. í Eyjum
Oddur Árnason
b. á Búastöðum í Eyjum
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 2015
Ísleifur Högnason alþingismaðurfæddist 30. nóvember 1895 áSeljalandi undir Eyjafjöllum.
Foreldrar hans voru Högni bóndi
þar Sigurðsson, bónda á Barkar-
stöðum í Fljótshlíð Ísleifssonar og
k.h., Marta Jónsdóttir, bónda á Sól-
heimum í Mýrdal Þorsteinssonar.
Ungur fluttist Ísleifur með for-
eldrum sínum til Vestmannaeyja og
varð kaupfélagsstjóri þar hálfþrítug-
ur árið 1921. Veitti hann síðan for-
stöðu kaupfélagi í Vestmannaeyjum
til ársins 1943, er hann fluttist til
Reykjavíkur og gerðist fram-
kvæmdastjóri Kaupfélags Reykja-
víkur og nágrennis til 1953. Árið
1955 varð hann forstjóri Kaupstefn-
unnar í Reykjavík og hafði það starf
á hendi til æviloka.
Ísleifur varð ungur einn forustu-
manna í öflugri verkalýðshreyfingu í
Vestmannaeyjum. Átti hann sæti í
bæjarstjórn þar 1926-1930 og 1934-
1943. Hann var ritstjóri Eyjablaðs-
ins 1928-1943.
Hann var landskjörinn alþingis-
maður á árunum 1937-1942 og sat á
níu þingum alls. Ritstjóri Þingtíð-
inda Sósíalistaflokksins var hann um
skeið á árunum 1941-42, meðan út-
gáfa á blaði flokks hans var bönnuð.
Hann átti sæti í stjórn Samvinnu-
trygginga frá stofnun þeirra 1946 og
í stjórn Líftryggingafélagsins And-
vöku frá 1949.
Um Ísleif segir í minningarorðum
á Alþingi: „Hann var ötull baráttu-
maður og djarfur leiðtogi á þeim
vettvangi félagsmála, þar sem hann
haslaði sér völl, í verkalýðsmálum,
samvinnumálum og stjórnmálum.
Hann hefur hlotið þann dóm þeirra,
sem mest kynni höfðu af honum, að
hann hafi verið traustur samherji,
trúað í einlægni og af heilum hug á
mikilvægi þess málstaðar, sem hann
barðist fyrir, rækt þau störf, sem
honum var til trúað, af stakri prýði.“
Kona Ísleifs var Helga Rafnsdótt-
ir, f. 6.12. 1900, d. 3.5. 1997, húsmóðir
og starfsmaður á Þjóðminjasafninu.
Foreldrar hennar: Rafn Júlíus Sím-
onarson og k. h. Guðrún Gísladóttir.
Börn: Ísleifs og Helgu: Erla Guðrún,
Högni Tómas og Gísli Rafn.
Ísleifur lést 12. júní 1967.
Merkir Íslendingar
Ísleifur
Högnason
90 ára
Guðlaug Halldóra
Guðmundsdóttir
Ingólfur Björnsson
85 ára
Ingi Einars Árnason
Marta J. Guðnadóttir
Þorgerður Ólafsdóttir
Örn Sigurgeirsson
80 ára
Margrét Leósdóttir
Margrét Sigurðardóttir
75 ára
Anna Kristín Jóhannsdóttir
Áslaug Kjartansdóttir
Áslaug Sverrisdóttir
Brynhildur Sigurðardóttir
Carl Bjarni Rasmusson
Guðjón Óskarsson
Margrét Jakobsdóttir
Marta A. Þórðardóttir
70 ára
Bjarni Gíslason
Daði Runólfsson
Edda Ingvarsdóttir
Guðmundur Þorleifur
Haraldsson
Hans Guðni Magnússon
Njáll Hannes Kjartansson
Sigríður Hjálmarsdóttir
Sigurður Ingi Þorbjörnsson
60 ára
Árni Sigurðsson
Bernd Lothar
Hammerschmidt
Björg Magnúsdóttir
Daníel Pétur Hansen
Derek Vaughan
Hanna Birna Bjarnadóttir
Ingibergur Helgi Jónsson
50 ára
Agnes Bryndís
Jóhannesdóttir
Andrzej Tesarski
Bjarnheiður J.
Guðmundsdóttir
Geir Geirsson
Gunnar Þór
Jóhannsson
Hafsteinn Bjarnason
Hanna Guðrún
Magnúsdóttir
Heimir Salvar
Jónatansson
Hildur Gunnarsdóttir
Kristján Rafn Sigurðsson
Ólöf Helgadóttir
Pétur Heiðar
Baldursson
Salih Heimir Porca
Sigurjón Harðarson
40 ára
Jeremy David
Sebelius
John Olav Silness
Jón Ægir Baldursson
Óskar Alfreð Beck
Rut Viktorsdóttir
Sigurður Ólafsson
Sigurlaug Rósa Dal
Christiansen
Una Guðný Pálsdóttir
Þorkell Lindberg
Þórarinsson
30 ára
Anna Guðný Arndal
Tryggvadóttir
Arndís Arnardóttir
Jóhann Hrafnkell Líndal
Malgorzata Regina
Olejniczak
Navina Madge Dueck-
Stefansson
Sigurður Magnús
Sigurðsson
Til hamingju með daginn
40 ára Hafdís er fædd og
uppalin á Skagaströnd og
rekur hárstofuna Viva.
Maki: Stefán Sveinsson,
f. 1972, sjómaður hjá
Samherja.
Börn: Daði Snær, f. 2002,
Stefanía Hrund, f. 2006
og Sædís Hrund, f. 2012.
Foreldrar: Ásgeir Ax-
elsson f, 1942, d. 2011,
bóndi á Litla-Felli, og Sig-
rún Guðmundsdóttir, f.
1947, skólaliði, bús. á
Litla-Felli.
Hafdís Hrund
Ásgeirsdóttir
30 ára Jakob er yfirþjálf-
ari hjá knattspyrnudeild
Fylkis og iþróttakennari í
Norðlingaskóla.
Maki: Erla Dögg Halldórs-
dóttir, f. 1985, vinnur hjá
Flyware.
Börn: Karítas Þyrí, f. 2010,
og Patrekur Leó, f. 2014.
Foreldrar: Bjarni Þór Jak-
obsson, f. 1962, rekur
B&B Gluggatjaldahreinsun
og Jóna Þuríður Ingv-
arsdóttir, f. 1963, vinnur
hjá Actavis.
Jakob Leó
Bjarnason
30 ára Sandra er Akur-
eyringur og er mynd-
menntakennari í Gilja-
skóla og myndlistar-
maður.
Maki: Radek Dudziak, f.
1980, líftækninemi í HA.
Börn: Amelia Anna, f.
2007, og Joel Arnar, f.
2014.
Foreldrar: Arnar Yngva-
son, f. 1964, smíðakenn-
ari, og Anna Elísa Hreið-
arsdóttir, f. 1965,
háskólakennari.
Sandra
Rebekka
Velkomin á
Jólahlaðborð Hótel Arkar
Njóttu notalegrar kvöldstundar á jólahlaðborði sem verður í boði dagana
21. og 28. nóvember og 5. og 12. desember 2015.
Verð er 8.900 kr. á mann og borðapantanir eru í síma 483 4700.
Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði / s. 483 4700 / info@hotelork.is / www.hotelork.is
Þetta árið mun Eyjólfur Kristjánsson sjá um
dagskrána á meðan borðhaldi stendur.
Eyfi er löngu orðinn landsþekktur tónlistarmaður og
svíkur engan. Að borðhaldi loknu mun plötusnúður
hússins skemmta fólki fram eftir nóttu.