Víkurfréttir - 11.12.1986, Blaðsíða 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 11. desember 1986 7
Hamagangur
í öskjunni
- þegar menn voru að undirbúa
opnun Vöruhúss Nonna & Bubba
Það var hamagangur í
öskjunni er blaðamaður
Víkur-frétta leit aðeins inn í
hið nýja vöruhús Nonna &
Bubba á mánudaginn, enda
átti að opna morguninn
eftir. Þegar tekist hafði að
króa Jónas Ragnarsson af
smástund, tókum við hann
tali.
Sagði hann að hugsunin
bak við vöruhús þetta væri
að hafa vörur sem ódýrast-
ar og safna sem flestum
vörutegundum á einn stað.
Sagðist hann vonast til að
Þakkir til
Fitjanes-
bræðra
Ég vil hér með koma á
framfæri þakklæti til
þeirra bræðra sem reka
bensínstöðina Fitjanesti.
fólk sæi sér fært að versla
þarna, en lagt yrði upp úr
því að hafa þarna t.d. vörur
með gott geymsluþol.
Einnig sagði hann að
hafðar yrðu þarna árstíða-
bundnar vörur, s.s. nú fyrir
jólin væru það bökunar-
vörur, öl o.fl. Fyrir páska
þær vörutegundir sem helst
væru notaðar þá o.s.frv.
Síðan sagði hann: ,,Það er
markmið okkar að halda
verðmætunum sem mest
heima og því opnum við nú
þennan markað". - epj.
Nýverið er ég var á ferð í
Hagkaup varð bíllinn
minn bensínlaus.
Komu þá þeir bræður
og ýttu bil mínum af mikl-
um rausnarskap yfir á
bensínstöðina. Éiga þeir
sannarlega þakkir skilið
fyrir.
Kona
Eigend'ur Rafbæjar, Jón Pálmi Skarphéðinsson og María Jónsdóttir, í nýja húsnæðinu.
Rafbær flytur um set
Eitt elsta hús á Hafnar-
görunni í Keflavík er búið
að fá nýja eigendur. Hér er
um að ræða Hafnargötu 18,
gömlu Þorsteinsbúð, en
húsið var byggt árið 1907.
Jón Pálmi Skarphéðinsson
og María Jónsdóttir í R AF-
BÆ keyptu húsið og hafa
flutt starfsemina í það. Raf-
bær var síðast í Grófinni.
Nýjum herrum fylgja
nýir siðir, segir einhvers
staðar, og hafa nýju eigend-
urnir tekið húsið allt í gegn
að innan og gefið því „and-
litslyftingu“ að utan.
„Þetta hefur verið versl-
un í tæp 80 ár og mér finnst
ánægjulegt að fylgja því eft-
ir“, sagði Jón Pálmi, sem
hefur opnað verslun á neðri
hæðinni en er einnig með
teiknistofu og ráðgjöf á efri
hæð svo og raftækja- og raf-
lagnaþjónustu. I verslun-
inni er úrval raftækja, bæði
stór og smá, handverkfæri,
vinnuverkfæri, ljós, lamp-
ar og ýmislegt fleira, s.s.
rafmagnsvörur. Starfs-
menn fyrirtækisins eru 7
talsins.
í tilefni opnunarinnar
verður sölusýning á AEG-
heimilis- og raftækjum á
morgun, föstudag og
laugardag. - pket.
Hilla og skrifborö - kr. 10.600
Vagn - kr. 4.200 og stóll - kr. 1.650
BORÐ - Kr. 12.200 STÓLL - Kr. 6.800
STÓLL - Kr. 1.520
BORÐ - Kr. 8.900
TJARNARGATA 2 230 KEFLAVlK P.O. BOX 195 SÍMI 92-3377