Víkurfréttir - 11.12.1986, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 11. desember 1986
VÍKUR-fréttir
Jólatónleikar
Tónlistarskólans
Aukin þjónusta í Sparkaup
N.k. mánudagskvöld þ.
15. des. verða jólatónleikar
Tónlistarskólans haldnir í
Keflavíkurkirkju og hefjast
kl. 20.30. Þar munu nem-
endur leika og syngja í litl-
um og stórum hópum á öll
helstu hljóðfæri sem kennt
er á í skólanum. Unglinga-
lúðrasveitin mun leikajóla-
sálma, skólahljómsveitin
Teknir með
flkniefni
Nýlega handtók lögreglan
aðkomumenn sem dvöldu á
í verbúð í Grindavík. Voru
uppi grunsemdir um að þeir
hafi af og til verið að reykja
hass í verbúðinni. Við
handtökuna fannst hjá
þeim óverulegt magn af
hassi, að sögn Oskars Þór-
mundssonar, lögreglufull-
trúa í ávana- og fíkniefna-
deild lögreglunnar í
Keflavík.
Þá var að kröfu deild-
arinnar stöðvaður Banda-
síkjamaður í flughöfninni
á Keflavíkurflugvelli, með
nokkur grömm af fíkni-
efnum á sér. - epj.
mun leika og svo mætti
lengi telja. Tónleikar þess-
ir verða ekki langir en von-
andi hátíðlegir og skorum
við á alla bæjarbúa að taka
sér frí frá „jólastressinu"
og gefa sér tíma til að koma
og hlusta.
Litlu jólin verða haldin í
skólanum miðvikudaginn
17. des. og hefjast kl. 17.
Þar verða einnig stuttir tón-
leikar þar sem aðallega
munu koma fram yngri
nemendur skólans. Að tón-
leikunum loknum fá svo
allir kók og prins og síðan
verður dansað í kringum
jólatréð. Þessi skemmtun er
aðallega ætluð nemendum
skólans og er áætlað að
henni ljúki'um kl. 18.30.
Þar með er jólafríið hafið
hjá öllum nema Unglinga-
lúðrasveitinni sem mun
hafa nóg að starfa yfir há-
tíðirnar, og kennsla hefst
aftur mánudaginn 5. janúar
1987.
Gleðileg jól og
farsælt komandi ár
Kjartan Már Kjartansson,
skólastjóri.
Töluverðar breytingar
hafa átt sér stað í Spar-
kaup að undanförnu. Að
sögn Kristjáns Hansson-
ar, verslunarstjóra, hafa
staðið yfir lagfæringar á
versluninni til að gera
hana aðgengilegri og síð-
ast en ekki síst er nú
komið þar kjötborð.
„Frá því ég kom hing-
að hefur mikið verið spurt
um kjötborð, og nú er það
orðið að veruleika. Vona
ég því að viðskiptavinir
kunni vel að meta það.
Við munum leggja
áherslu á að vera með nýja
og ferska kjöt- og fisk-
rétti. Svo er ætlunin að
vera með tilbúna rétti sem
fljótlegt er að gera“, sagði
Kristján í samtali við
Víkur-fréttir.
Kjötborðið verður oþið
alla daga til kl. 20, nema
sunnudaga.
Á meðfylgjandi mynd
er Kristján Hansson
ásamt einni starfsstúlk-
unni á bak við nýja kjöt-
borðið. - pket.
Jólagjafir fyrir tónlistarfólkið
CASIO hljómborð
Verð frá kr. 2.700
NÓTNABÆKUR
NÓTNASTANDAR
TAKTMÆLAR
NESBÓK
Hafnargötu 54 - Keflavík - Sími 3066
- ein af jólabókunum í ári
JÓLASKRAUT
í miklu úrvali.
Jólakort, jólapappír, jóla-
dagatöl, m.a. með súkkulaði.
Svo eigum bið margt sniðugt
í skóinn . . .
P.S. Við eigum líka fallegar jólasveinahúfur
ENGIN JÓL ÁN SPILA
Mikið úrval af skemmtilegum spilum.
Jólaspilið í ár, „Space Attack", og
mörg fleiri, m.a. Rally-spilin vinsælu.