Víkurfréttir - 11.12.1986, Blaðsíða 18
18 Fimmtudagur 11. desember 1986
VÍKUR-fréttir
Þessar fjórar ungu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu að
Heiðarbraut 9 í Keflavík til ágóða fyrir Þroskahjálp á Suð-
urnesjum og varð ágóðinn kr. 2.765. Þær heita f.v. Sesselja
Kristinsdóttir, Guðbjörg Rúna Vilhjálmsdóttir, Elín Guð-
mannsdóttir og Harpa Magnúsdóttir. epj.
Aðventutónleikar
í Keflavíkurkirkju 14. og 15. des.
Sunnudagaskóli er að
venju í kirkjunni kl. 11.
Aðventutónleikar Kórs
Keflavíkurkirkju og Karla-
kórs Keflavíkur verða
haldnir í kirkjunni kl. 17
sunnudag. Einsöngvarar
KÆRULEYSI
GETUR SPILLT
HÁTÍÐINNI
Hitaveita Suðurnesja óskar
þér gleðilegrar jólahátíðar.
Hún vill jafnframt minna
á að kæruleysi í meðferð
rafmagns getur spillt
hátíðinni. Láttu það ekki
koma fyrir þig.
Ennfremur er það mikil-
vægt að raforkunotkun sé
dreift sem jafnast á aðfanga-
degi og gamlársdegi. Með því
tryggjum við að allir fái
hátíðarsteikina.
HITAVEITA
SUÐURNESJA
María Guðmundsdóttir,
Steinn Erlingsson og Sverr-
ir Guðmundsson. Undir-
leikarar Gróa Hreinsdóttir
og Ragnheiður Skúladótt-
ir. Samsöngur kóranna og
almennur söngur í lokin.
Tónlistarskólinn heldur
jólatónleika í kirkjunni á
mánudagskvöldið 15. des.
kl. 20.30. Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Óhætt er að fullyrða að
fátt nýtur meiri vinsælda í
menningarlífi Suðurnesja
en tónleikar þeirra kóra
sem hér starfa og hafa borið
hróður byggðarinnar víða
erlendis. Kór Keflavíkur-
kirkju sótti ísrael heim um
síðustu jól og Karlakór
Keílavíkur fór til Kanada
sl. sumar. Nú gefst Suður-
nesjamönnum kostur á að
fagna komu jólanna með
því að hlýða á söng þeirra
Efnisskráin er fjölbreytt.
Karlakórinn syngur m.a.
„Það aldin út er sprungið“,
lag frá 15. öld, ,,Bæn“ eftir
Þórarin Guðmundsson,
„Hátíð að höndum fer ein“,
sem er forn sálmur, og
„Rokkarnir eru þagnaðir",
alþýðuvísu í útsetningu
Emils Thoroddsen.
Kór Keflavíkurkirkju
syngur m.a. „Sjá morgun-
stjarnan blikar blíð“, „Af
himnum ofan boðskap
ber“ og „Ó, Jesúbarn blítt“,
allt lög í útsetningu J. S.
Bach. A söngskránni eru
pólsk jólalög, „María syng-
ur við Jesúbarnið“ og
,,Jólastjarnan“. Sverrir
Guðmundsson syngur
„Ave Maria“ og María
Guðmundsdóttir „Heshall
feed His Flock“ úr Messí-
asi eftir Handel og „Nóttin
helga“ eftir A. Adams í
raddsetningu Guðmundar
Gilssonar. Auk þeirra
syngur Steinn Erlingsson
einsöng með kórnum,
væntanlega „Agnus Dei“
eftir Georges Bizet.
Oft er sagt að uppeldi sé
fólgið í að miðla menning-
unni til uppvaxandi kyn-
slóðar. En það er einnig
fólgið í því að gefa ungu
fólki tækifæri til að nýta
hæfileika sína.
A mánudagskvöldið 15.
des. munu nemar Tónlist-
arskólans í Keflavík halda
jólatónleika í Keflavíkur-
kirkju kl. 20.30 undir leið-
sögn kennara skólans og
skólastjóra, Kjartans M.
Kjartanssonar.
Allir eru velkomnir á
umrædda jólatónleika, sem
gegna því hlutverki að færa
okkur nær hátíð og helgi
jólanna.
Sóknarprestur
Ánægður með
bílavlðskiptin
hjá Bílanesi
Á liðnu ári hef ég skipt
við Bílanes þannig að ég hef
keypt tvisvar nýja bíla og
selt tvisvar gamla bíla.
Þetta skiptir kannski ekki
megin máli, en þar semég er
sjómaður og hef lítinn tíma
til slíkra hluta, þá kom það
ekki að sök, því þjónusta og
heiðarleiki sátu í fyrirrúmi
hjá þessu vaxandi fyrirtæki.
Þúsund þakkir.
3341-0018
Tækifæristékkareikningur
...með allt í einu hejti!
Yfirdráttar
heimild
Meira öryggi gagnvart óvæntum útgjöldum
Með TT-reikningi geturðu sótt uni Þannig geturðu einfaldlega ávísað út
að fá yfirdráttarheimild tengda reikn- af reikningnum þegar óvænt útgjöld
ingi þínum. koma upp.
VCRZIUNRRBRNKINN
-vúuuvi ffteS ftén, !