Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.02.1988, Page 9

Víkurfréttir - 18.02.1988, Page 9
VIKUR jiuUi .Jveir fjársterk- ir aðiiar eru á bak við mig“ - segir Óskar Ársælsson, veitingahúsaeigandi, í Víkur-fréttaviðtali Hann Óskar hefur ekki farið varhluta af henni Gróu á Leiti að undanförnu, enda kannski ekki að furða eftir þá óvenju Itröðu atburðarás að hafa opnað eða sé að opna 4 veitinga- staði á nokkrum vikum. Auk þess að vera með einkaklúbb oy jafnvel hótel í farvatninu. Hvernig er þetta liægt og hvaða áform eru framundan hjá þessum manni? Til að fá svör við þessu öllu birtum við hér við- tal við Óskar Ársælsson, þar sem hann leysir frá skjóðunni. Fyrsta spurningin er þessi: - Veitingastaðurinn Brekka, Tontma-borgarar, Skyndi- bitastaður við Vatnsnestorg og Kína-torg, - hvað kostar þetta allt? „Það er ljóst að þessar fjórar fjárfestingar nenta unt 24 rnillj. króna“. - Hvernig ferðu að fjár- magna þetta, og ertu einn í þessu? „Tvö stór fyrirtæki á lands- vísu hafa veitt mér stuðning með baktryggingu í þessu. Hafa þau yfirfarið öll ntín áform varðandi staðina fjóra og samþykkt það sem ég er að gera í þeim efnum“. Óskar Ársælsson rekið alla þessa staði og hafa reksturinn á þinni hendi? „Ég er búinn að ráða for- stöðumenn fyrir hvern þessara staða og munu þeir alfarið sjá um reksturinn, enda verður hver rekstrareining að standa undir sér án stuðnings frá ann- arri. Síðan mun ég stofna sér fyrirtæki um hverja rekstrar- einingu. Sjálfur mun ég hafa í nógu að snúast vegna annarra verkefna sem ég er að ráðast í“. - Hvað með einkaklúbbinn? „Ljóst er að ég læ ekki hús- næði í Bústoðarhúsinu og er því að sverma t'yrir öðru hús- næði í Kellavík. Ég þarf á 4- 500 ferm. húsnæði að halda undir klúbbinn, ef ég fæ ekki leiguhúsnæði mun ég ráðast í hótelbyggingu, því ég stefni að því að opna klúbbinn á næstu 6 mánuðum". - Hótelbygging, hvað áttu við? „Vinur minn í London erað kanna möguleika á byggingu 100 herbergja hótels með 5000 manna hljómleikasal, sem byggt yrði við bæjarmörk Keflavíkur og Njarðvíkur. Þetta hótel mun verða byggt upp í kringum klúbbinn og í nán- um tengslum við vel þekkta er- lenda hótelkeðju. Að svo stöddu er ekki hægt að greina frá því hvaða hótelkeðja hér er um að ræða, en þarna verður sundlaug og útiyistarsvæði". - Aætlarðu þá að byggja bæði hótelið og húsnæðið undir klúbbinn upp um leið? „Nei, fyrst verður það hús- næðið undir klúbbinn, hitt keniur svo á eftir“. - Er einhver markaður fyrir rekstur einkaklúbbs? „Já, það verða engin vand- kvæði með rekstrargrundvöll fyrir hann. Þá hefurt.d. Hótel Keflavík ákveðið að styðja við klúbbinn og munu þeir kaupa ákveðið magn að aðgangskort- um, sem þeir munu síðan nýta fyrir hótelgesti sína. Enda getur fólk þá komið hingað til að sjá flottasta einkaklúbbinn á Islandi". - Ertu þá einnig farinn að hugsa út í ferðamannaiðnað- inn? „Já, ég hef ákveðið að setja Keflavík og Njarðvík á kort ferðamannsins og verður því ekki um neitt smástökk að ræða inn í ferðamannaiðnað- inn hér á Suðurnesjum. Þá hef ég ákveðið að verði hagnaður af einhverjum þessara veitinga- staða, svo og klúbbnum, að nota hann til að fegra um- hverfið". - Að lokum, Oskar, þú seg- ist vera búinn að ráða for- stöðumenn, hvernig ætlar þú að lifa á meðan undirbúningur fyrir frekari rekstri stendur yfir, fyrst þú hættir afskiptum af stöðunum? „Ég fæ að borða á einhverj- um staða minna og kannski þjóna um helgar, annars verð ég bara að koma mér vel við mína nánustu meðan þetta er að ganga yfir“, sagði Óskar léttur í bragði". - Hvernig ætlar þú að geta FERMINGAR- HLAÐBORÐ • Sjávarréttir í hlaupi • Fiskipaté m/kaldri fiskisósu • Kaldur soðinn lax • Tvær teg. síld m/brauði og smjöri • Kaldir kjúklingar • Kalt roast beef • Kalt reykt grísalæri • Heitur lambapottréttur m/eplasalati og hrísgrjónum • Heitar og kaldar sósur, grænmeti kartöflur og salat kr. 1.100.- Lánum leirtau ykkur að kostnaðar- lausu. - Leitið nánari upplýsinga í símum 14040 og 14166. Fimmtudagur 18. febrúar 1988 9 Háii vextir Grunnvextir á Kjörbók eru nú 34% á ári og leggjast þeir við höfuðstól tvisvar á ári. Ef innstæóa eða hluti hennar hefur legið óhreyfð i 16 mánuöi hækka vextir í 35.4% og i 36% eftir 24 mánuöi. Þrepahækkun þessi er afturvirk, hámarks ársávöxtun er þvi allt aó 40.2% án verðtryggingar. Verðtrygging Á 3ja mánaöa fresti er ávöxtun kjörbókarinnar borin saman við ávöxtun 6 mánaða bundinna verötryggðra reikninga. Reynist ávöxtun verðtryggðu reikinganna hærri er greidd uppbót á Kjörbókina sem þvi nemur. Orugg og óbundin Þrátt fyrir háa vexti og verðtryggingu er innstæöa Kjörbókar alltaf laus. Vaxtaleiðrétting við úttekt er 0.85%, en reiknast þó ekki af vöxtum tveggja siðustu vaxtatimabila. Kjörbókin er bæði einfalt og öruggt sparnaöarform. Landsbanki íslands Keflavikurflugvelli, Sandgeröi, Grindavík FR-deild 2 Aðalfundur verður haldinn á Víkinni, Hafnargötu 80, Keflavík, n.k. sunnudag kl. 14. Stjórnin

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.