Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.02.1988, Page 14

Víkurfréttir - 18.02.1988, Page 14
14 Fimmtudagur 18. febrúar 1988 FUNDIR Sálar- rannsóknar- félag Suðurnesja - MANNFAGNAÐIR Enski skyggnilýsingamiðill- inn MEGAN BORROGH mun starfa á vegum félagsins á næstunni. Þeir félagsmenn sem vilja tryggja sér miða, er bent á miðasölu í húsi félags- ins að Túngötu 22 í Keflavík, sunnudaginn 21. feb. frá kl. 14 til 18. Eftir það verða miðarnir seldir öðrum. Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja Almennur skyggnilýsinga- fundur með miðlinum Terry Trace verður í húsi félagsins, Túngötu 22, í kvöld, fimmtu- dag, kl. 20.30. - Öllum heimill aðgangur. Aðalfundur Skíðafélags Suðurnesja verður haldinn n.k. mánudag 22. febr. kl. 21 í Holtaskóla, Keflavík. Minning: Valgerður Pétursdóttir Fædd 7. júní 1912 Dáin 9. febrúar 1988 í gær var kvödd hinstu kveðju frá Keflavíkurkirkju Vaigerður Pétursdóttir, fyrr- um matráðskona Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs, en Valgerður lést skyndilega þann 9. febrúar s.l. Langar mig að minnast hennar með nokkrum fátæklegum orðum. Kynni okkar Valgerðar hóf- ust að marki á árinu 1973 þeg- ar ég og fjölskylda mín flutti í húsið nr. 16 við Vallargötu í Keflavík. Þá um leið gerðumst við næstu nágrannar Völlu og Braga en svo voru þau Val- gerður Pétursdóttir og Bragi Halldórsson ætíð nefnd í vina- hópi. Varð fljótt mikill sam- gangur milii heimila okkar, enda voru þær Valgerður og Svanhildur, konan mín, ná- náskyldar eða systkinabörn. Fijótlega varð mér það ljóst hve mikil afkastakona hér var á ferðinni, þar sem Valgerður var. Samt gekk réttsýni og till- itssemi við þá, sem voru minnimáttar, eins og rauður þráður í eðli Valgerðar. Mun ég minnast Valgerðar fyrir góðvild hennar og alúð við fjölskyldu mína og hvað henni tókst oft að snúa fóiki, mim jútUx sem kom Ieitt til hennar, svo það fór frá henni glaðlynt. Sendi ég og fjölskylda mín eftirlifandi eiginmanni, börn- um, barnabörnum og öðrum ættingjum innilegustu samúð- arkveðjur. Megi Guð hjálpa ykkur og styrkja á erfiðum tímunr. Emil Páli Jónsson Breytingar á Grindavlkurflotanum Frá áramótum hafa orðið nokkrar nafna- og eigenda- breytingar meðal báta í fiski- skipaflota Grindvíkinga. Þær helstu eru að Faxavík GK 727, sem bættist í flotann í haust, hefur verið seld aftur. Jafn- framt hefur eldri Faxavíkin, 36 tonna eikarbátur, verið seld innan sveitar og ber nú nafnið Harpa II GK 101 í eigu Gull- víkur h.f.. Harpa II sem áður var hefur hlotið nafnið Faxa- vík GK 727 í eigu Skúla Magn- ússonar. Sá bátur er 16 tonna eikarbátur. Þá hefur Ingólfur GK 125 frá Grindavík nú verið skírður upp og heitir Tengsæll GK 262 í eigu Jens Óskarssonar o.fl. Sá bátur er 22 tonna eikarbát- ur. Þá hefur bátur Eldeyjarh.f., Vöttur SU 3, fengið nafnið Eldeyjar-Hjalti, en ber enn sama skrásetningarnúmer. Mun sá bátur þó fá nýtt skrán- ingarnúmer GK 42. Og í kringum áramót bættist nýtt skip í flotann, Hákon ÞH, í eigu Gjögurs h.f.. Sá bátur mun þó trúlega lítið vera gerð- ur út frá Grindavík sökum stærðar sinnar, en er nú á loðnuveiðum. Greiðendur fasteignagjalda í Keflavík Bæjarsjóður minnir á að 10% afsláttur er veittur þeim sem greiða fyrir 1. mars n.k. BÆJARSJÓÐUR KEFLAVÍKUR Bláa lónið: Nýr rekstraraðili að baðhúsinu Stjórn Hitaveitu Suður- nesja hefur samþykkt að ganga til samninga við þann aðila sem átti hæsta boðið í rekstur baðhússins við Bláa iónið. Eru hér á ferðinni tvær fjölskyldur sent slógu sanian og buðu 185.600 kr. á mánuði fyrir að sjá um reksturinn. Að sögn Hermanns Ragnarssonar, eins þessara aðila, er það kona hans, Ingibjörg Finnsdóttir, og Guðmundur Guðbjörns- son og Sigurlaug Finns- dóttir, sem standa að tii- boði þessu. Reikna þau með að Guðmundur muni hafa umsjón með þessu að mestu, ef þau fá starfið. Njarðvík: Eigandi nýsmíðar Komið hefur í ljós að ný- smíði sú sem við greindum frá í síðasta tölublaði fyrir Sand- gerðinga, er í eigu Njarðar hf. Miðast samningur þessi, eins og fram kom í síðasta tölu- blaði, við að Fiskveiðasjóður, Byggðasjóður og stjórnvöld samþykki smíði þessa. Er ætlunin að skip þetta komi í stað Blika ÞH, sem Njörður hf. hefur tekið úr notkun. Unt yrði að ráða 26 m langt og 7,5 m breitt skip sem hefði frystiaðstöðu um borð. Eins og fram kom í síðasta blaði yrði það smiðað á Isafirði.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.