Víkurfréttir - 18.02.1988, Side 18
viKim
18 Fimmtudagur 18. febrúar 1988
(UW*
r
Iþróttapunktar
* Drcgið var í 8 4iða úrslitum
bikarkeppni Körfuknattleikssam-
bandsins í beinni útsendingu hjá
Bjarna Fel. á laugardaginn var.
Þrjú Suðurnesjalið voru í pottin-
um, A og B-lið UMFN og
UMFG. Bikarmeistarar UMFN
fengu létta mótherja, UBK, B-
liðið fékk Hauka og Grindvíking-
ar fengu ÍR. Lcikið er heima og
heiman. I kvcnnadeildinni lentu
Kcflavíkurdömurnar á móti Stú-
dínum og UMFN fékk ???????
* Ekkert lát er á velgengni
yngri flokka ÍBK í körfuholtan-
um. Flestir flokkar eru á leið í úr-
slit bæði í kvcnna- og karlaflokki.
Sigurganga 2. flokks kvenna und-
anfarin ár fer þó án efa að nálg-
ast Islandsmet. Stúlkurnar hafa
ekki tapað leik í 4 ár og virðast
ekki vera á leiðinni að tapa lcik
næstu árin, slíkur er styrkleiki
liðsins.
* Eðvarð Þór Eðvarðsson,
sundinaðurinn snjalli úr Njarðvík
hefur staðið í ströngu að undan-
förnu. Hann hefur keppt i mótum
erlendis þótt órakaður sé. Um
siðustu helgi keppti hann á mjög
sterku móti í Bonn og setti Is-
landsmet í 50 m baksundi, synti
vegalengdina á 26,55 sek. og varð
í 9. sæti. Eðvarð lenti í 8. sæti í
100 m baksundi á 56,87 sek. og
síðan varð hann 11. i 200 m bak-
sundi á 2:04,05 mín.
* Reynismenn töpuðu fyrir
Skagamönnum í 1. dcild körfu-
boltans í Sandgerði sl. föstudag.
Lokatölur urðu 49:55.
* Félagar í Skíðafélagi Suð-
urnesja ætla að hittast á mánu-
daginn kemur. Ekki þó til að
skella sér i Bláfjöllin heldur til að
halda aðalfund i Holtaskóla, sem
hefst kl. 21.
* Aðalfundur Golfklúbbs
Grindavíkur var haldinn fyrir
skömmu. Halldór Ingvason var
endurkjörinn formaður. Grind-
víkingar ætla sér stóra hluti á
komandi sumri en völlur þeirra
við Húsatóftir þykir mjög
skcmmtilegur. Afkoma síðasta
árs var mjög góð hjá klúbbnum.
* Ekkert var leikið í 2. og 3.
deild handboltans um sl. helgi.
Njarðvíkingar slógu þó ekki slöku
við og léku æfingaleik við 1. deild-
arlið Breiðabliks. Njarðvíkingar
komu á óvart og gerðu jafntefli
við Evrópuliðið 30:30.
Hin aldna íþróttakempa úr
Garðinum, Jóhann Jónsson,
stökk 6,27 m í þrístökki án at-
rennu á innanhússmóti Víðis,
sem haldið var fyrir skömmu í
Garðinum. Með stökki þessu
bætti hann eldra íslandsmet sitt í
greininni um 46 cm. Jóhann
keppti í 65 ára aldursflokki, en
hann verður sjötugur í septem-
ber.
Jóhann á sjö önnur Islands-
met í 65 ára aldursflokki og eru
þau þessi: Spjótkast 30,94 m,
kringlukast 31,66 m, 100 m
hlaup 16,0 sek., langstökk með
atrennu 8,18 m, þróstökk með
atrennu 8,48 m, kúluvarp utan-
húss 8,93 m og kúluvarp innan-
húss 9,20 m.
Jóhann nrun keppa á móti 12.
rnars í Baldurshaga i Reykjavík,
og þá mun hann einnig keppa á
móti í Danmörku í september í
sumar.
ÍBK - UMFN [ KEFLAVlK:
Orslitaleikur um efsta
sæti úrvalsdeildar í kvöld
- Njarðvíkingar unnu íyrri leikinn með 11 stiga mun.
- Eru Keflvíkingar að komast á skrið?
Það verður fjör á fjölum
Iþróttahúss Keflavíkur í kvöld
en þá leiða saman hesta sína
ÍBK og UMFN í seinni umferð
undankeppni Úrvalsdeildar
körfuboltans. Njarðvíkingar
unnu fyrri leikinn með 11 stiga
mun og mega þeir því tapa
leiknum ef munurinn verður
minni en það til að halda efsta
sætinu. Þá gerum við ráð fyrir
því að engin óvænt úrslit verði
gegn öðrum liðum í þeim leikj-
um sem eftir eru. En þannig er
að í úrslitakeppninni ieika sam-
an liðið í 1. sæti og liðið í 4. sæti
og svo liðin í 2. og 3. sæti.
Leikurinn í kvöld
Það er ljóst að það verður
hart barist í íþróttahúsinu í
Keflavík í kvöld og troðfullt
hús áhorfenda. Eftir slæmt
gengi IBK í kringum áramót,
m.a. tvö töp fyrir UMFN í bik-
arnum, virðist liðið vera að
smella saman á ný og er því til
alls líklegt. UMFN hefur leik-
ið létta leiki undanfarið gegn
lakari liðum deildarinnar en
fær nú aftur verðugan and-
stæðing. Keflvíkingar leika nú
gegn fullskipuðu Njarðvíkur-
liði að undanskildum Sturlu
Örlygssyni sem er meiddur en í
síðari bikarleiknum var liann
og Valurstórskytta Ingimund-
arson báðir fjarri góðu gamni.
En þá sýndu Njarðvíkingar
hvers vegna þeir eru íslands-
og bikarmeistarar. Með ótrú-
legri baráttu og seiglu tókst
þeim að sigra ÍBK þrátt fyrir
þessi skakkaföll.
Kominn tími
til að vinna þá
„Ef við náum sömu baráttu
og í síðustu leikjum þá er ég
bjartsýnn á leikinn við Njarð-
víkinga. Það er kominn tími til
að við vinnum þá,“ sagði Jón
Kr. Gíslason, fyrirliði IBK um
leikinn i kvöld.
Megum ekki tapa
„Þetta er mjög mikilvægur
leikur upp á fyrsta sætið í
deildinni að gera. Eg á von á
því að Keflvíkingar verði mjög
erfiðir, en þeir verða að leika
vel til að vinna upp 11 stiga
mun síðan úr síðasta leik því
við ætlum okkurekkert annað
en sigur í leiknum og deild-
inni,“ sagði Valur Ingimund-
arson, þjálfari og leikmaður
UMFN.
Fullt hús?
Þá er ekki annað eftir en að
hvetja Suðurnesjamenn til að
fjölmenna á leikinn sem hefst
Kvennakarfa:
UMFN glopraði unnum sigri
„Við vorum með unnin leik í
höndunum en glopruðum honum
niður á síðustu mínútunum",
sagði Sigríður Guðbjörnsdóttir,
leikmaður með 1. deildarliði
UMFN, sem tapaði fyrir I laukum
í Njarðvík á föstudagskvöldið,
42:43. Haukastúlkurnar skoruðu
sigurkörfuna örfáum sekúndum
fyrir Igikslok.
UMFN var með lorystu mest
allan leikinn, mest 8 stig, og voru
yhr í leikhléi 19:16. A lokamínút-
unum gekk ekkert upp hjá þeim og
Haukadömurnar sigu framúr og
skoruðu sigurkörfuna rétt fyrir
leikslok.
Sigríður skoraði mest hjá
UMFN, 16 stig, Þórdís var með 9
stig og Þórunn 5.
ÍBK vann efsta liðið
Möguleikar ÍBK stúlkna á
íslandsmeistaratitlinum í
körfuknattlcik jukust er þær
unnu helsta kcppinaut sinn,
IR, í Keflavík á laugardaginn
62:58 eftir að hafa leitt í leik-
hléi 34:30.
Leikurinn var allan tím-
ann mjög jafn en ÍBK hafði
þó yfirleitt frumkvæðið. Þeg-
ar komið var yfir miðbik
seinni hálfleiks náði ÍBK 8
stiga forskoti og þrátt fyrir
mikla baráttu hjá ÍR-stúlk-
unum tókst þeim ekki að
vinna þann mun upp nema
til helmings. Keflavíkur-
stúlkurnar léku skynsamlega
og uppskáru eftir því. Björg
Hafsteinsdóttir og Anna
María Sveinsdóttir voru at-
kvæðamestar og skoruðu 22
og 21 stig. Allt stefnir í hrein-
an úrslitaleik þessara liða um
titilinn en það verður jafn-
framt síðasti leikurinn í
deildinni.
kl. 20 í kvöld og það er vissara
að mæta snemma.
30 innbyrðis leikir
Svona til gamans tókum
við saman úrslit leikja í
innbyrðis viðureignum
þessara liða frá því ÍBK
komst í úrvalsdeild 1982.
Þeir eru 30 talsins ogeru úr
Islandsmótum, bikar-
keppni og Reykjanesmót-
um. UMFN hefur unnið 21
sinni en IBK hefur unnið 9
leiki, þaraf 5 leiki árið 1982
sem er besta ár Keflvíkinga
í úrvalsdeildinni til þessa.
Þess ber einnig að geta að
þeir léku í 1. deild tímabil-
ið 1984-85. Stigaskor í
leikjunum er þannig að
Njarðvíkingar hafa skorað
2390 stig en Keflvíkingar
2205, munurinn er 185 stig
sem gerir rétt rúmlega 6
stiga mun i leik. Það sýnir
best hve leikir liðanna hafa
verið jafnir.
Valur með 628 stig
Valur Ingimundarson
hefur leikið 28 af þessum
30 leikjum. Hann hefur
skorað hvorki meira né
minna en 628 stig, sem er
rúmlega 22 stig að meðal-
tali í leik. Minnst hefur
hann skorað 5 stig en mest
44 stig í einum Ieik. Jón Kr.
Gíslason kemur næstur
með 417 stig sem gerir 13,9
stig að meðaltali í leik en
Jón Kr. hefur einn leik-
manna ÍBK og UMFN
leikið alla þessa 30 leiki.
ii
„Stefnum á bikarúrslitin
- segir Eyjólfur Guðlaugsson, Grindvíkingur
Það koni á daginn, eins og Gunn-
ar Þorvarðarson, þjálfari ÍBK,
sagði fvrir leikinn gegn UMFG í
Grindavík sl. fimmtudagskvöld, að
heimamenn yrðu erfiðir. Grindvík-
ingar áttu alla möguleika á að sigra
og höfðu 8 stiga forskot þegar tæpar
2 mín. voru til leiksloka, 66:58. Þá
kom það sér vel fyrir IBK-liðið að
vera skotglaðasta liðið utan 3ja
stiga línunnar, því það sem eftir var
pressuðu Keflvíkingar stíft og
drituðu svo fyrir utan línuna á körf-
una. IBK tókst hið ótrúlega, með
tveimur 3ja stiga körfum Jóns Kr.
og einni körfu frá Magnúsi Guð-
finns, að jafna leikinn, 66:66, og
knýja fram frandengingu. Þar var
aldrei vafi hvort liðið var betra.
Grindvíkingar voru „búnir“ og
skoruðu aðeins 3 stig i franilcng-
ingunni gegn 7 Keflyíkinga. Loka-
tölur urðu því 69:73. í leikhléi leiddi
UMFG 32:30.
„Menn hættu að trúa því að það
væri hægt að vinna Keflvíkinga.
Við héldum ekki haus og færðum
IBK stigin á silfurfati. Þaðerótrú-
legt að tapa svona leik eftir að vera
búnir að spila eins og herforingjar
allan leikinn og vera betra liðið“.
sagði Eyjólfur Guðlaugsson,
Grindvíkingur, eftir leikinn. „Við
hefðum átt góða möguleika á að
komast i úrslitakeppnina ef við
hefðum sigrað ÍBK. Nú þurfum
við að treysta á önnur lið ef það á
að takast. Annars þurfum við ekki
að vera svartsýnir, þetta hefur
gengið vonum framar í vetur og
bikarinn er eftir. Við ætlum okkur
í úrslit þar, það er engin spurn-
ing“, sagði Eyjólfur.
Já, það var mikill darraðardans
í Grindavík og mikið fjör. Heima-
menn sýndu það og sönnuðu að
þeir eru komnir I flokk betri liða i
deildinni, - og eru komnir til að
vera I úrvalsdeildinni. Leikmenn
liðanna voru jafnir aðgetu, enginn
skaraði verulega framúr að þessu
sinni. Þó ber að geta þáttar Jóns
Kr. í lokin. Þarna sýndi hann
hvað hann getur þegar mikið ríður
á og viljinn er fyrir hendi.
Axel Nikulásson var stigahæst-
ur Keflvíkingaoger óðum aðnálg-
ast sitt gamla góða lorm. Hann
skoraði 17 stig, Sigurður I. 13 og
Jón Kr. 11 komu næstir. Jón Páll
skoraði mest hjá UMFG, 16 stig,
Guðmundur Braga 14, Eyjólfurog
Rúnar Arna voru með 11 stig.