Víkurfréttir - 18.02.1988, Side 24
mun
ýtitUt
Fimmtudagur 18. febrúar 1988
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15. - Símar 14717, 15717.
TÉKKAREIKNINGUR
SPURÐU SPARISJÓÐINN
KARP VIÐ AFGREIÐSLU
fjárhagsAætlunar
Fjárhagsáætlun Keflavíkur-
bæjar var naumlega samþykkt
á í'undi bæjarstjórnar Kefla-
víkur á þriðjudaginn. Mjög
harðar umræður urðu á fund-
inum, þar sem meirihlutinn
sakaði minnihlutann m.a. um
að vera óábyrga gerða sinna.
Minnihlutinn vísaði þessu á
bug sem rökleysu og sagðist
ekki geta sætt sig við vinnu-
brögð meirihlutans, þar sem
fjárhagsáætluninni hefði víða
verið breytt án samráðs við þá
milli fyrri og síðari umræðu í
bæjarstjórn.
Mátti merkja skapvonsku
sumra meirihlutamanna undir
umræðunum í hita leiksins. En
að lokum var fjárhagsáætlun-
in samþykkt með atkvæðum
meirihlutans, en minnihlutinn
gerði sérstaka bókun og lagði
fram fyrirspurn, sem voru svo-
hljóðandi:
BÓKUN:
Fjárhagsáætlun sú sem lögð var
fram I bæjarstjórn 26. janúar sl.
var unnin af bæjarráði ásamt bæj-
arstjóra, og hvað varðar rekstrar-
liði var hún unnin i fullu samstarfi
við fulltrúa minnihlutans. Hvað
varðar tekjuliði var stuðst við upp-
lýsingar bæjarritara og bæjar-
stjóra án athugasemda.
Hér, við þessa seinni umræðu, er
lögð fram fjárhagsáætlun sem í
stórum dráttum cr mjög frábrugðin
þeirri áætlun scm unnin var i
bæjarráði, en í henni kom fram að
rekstrarafgangur væri 66,6 mkr.,
en í þeirri sem hér liggur frammi er
rekstrarafgangur 95,1 mkr. Hvað
varðar tekjur þá var gert ráð fyrir
að þær yrðu 460,6 mkr., en í þeirri
áætlun sem hér liggur fyrir er gert
ráð fyrir að tekjur verði 476,8 mkr.
Minnihluta hefur verið gerð
mjög takmörkuð grein fyrir þeim
breytingum sem orðið liafa á fram-
lögðum fjárhagsáætlunum.
Þess vegna treystum við okkur
ekki til þess að taka þátt i af-
greiðslu fjárhagsáætlunar 1988 og
sitjum því hjá.
FYRIRSPURN
um skuldastöðu bæjarsjóðs við
eftirtaldar stofnanir og fyrirtæki:
Sparisjóðinn í Keflavík, sameigin-
legar reknar stofnanir sveitarfé-
laga, Sjúkrasamlag Keflavíkur,
svo og aðra viðskiptaaðila.
Svar óskast eigi síðar en á næsta
bæjarstjórnarfundi.
Tveir þátt-
takendur í
Er síðast fréttist hafði ekki
tekist að ná Grindavíkurbátn-
um Hrafni Sveinbjarnarsyni
III af strandstað á Hópsnesi
við Grindavík. Hefur báturinn
verið dæmdur ónýtur at trygg-
ingarfélagi hans. Var Slysa-
varnadeildinni Þorbirni gefið
skipið á strandstað og munu
þeir selja úr því það sem nýti-
legt er, á staðnum. ■
Komið hefur í Ijós að þegar
báturinn sigldi í strand voru
flestir skipverja að störfum
frammi á millidekki. Tveir
voru þó í koju og stýrimaður-
inn í brúnni. Mun hann hafa
sofnað í brúnni og ekki vakn-
að fyrr en um seinan. En bát-
urinn var á leið til lands af mið-
unum út af Reykjanesi ogþví á
réttri siglingastefnu en átti að
taka beygju skömmu áður en
hann kom að nesinu.
Hrafn Sveinbjarnarson III
er 175 tonna stálbátur, yfir-
byggður, og var í eigu Þor-
björns hf. í Grindavík.
„Ungfrú
Suðurnes ’88“
kynntir í
miðopnu.
Hrafn Sveinbjarnarson III á strandstað á föstudagsmorgun. Ljósm.: hpé/Grindavík.
Strandið við Grindavík:
Stýrimaðurinn
sofnaði á
verðinum
Úskir um skauta-
sveil í Kefiavík
Iþróttaráð Keflavíkur
hefur mælt með því að sett
verði upp skautasvell í
Keflavík. Leggur ráðið til
að svæðið við Heiðarból
verði sléttað og lagfært
þannig að hægt verði að
nota það jöfnum höndum
fyrir skautasvell á veturna
og boltaleiki á sumrin.
Keflavík:
Stað-
greiðslu-
afsláttur
fasteigna-
gjalda
hækkaður
í 10%
Sem kunnugt er samþykkti
bæjarráð Keflavíkur nýverið
að betrumbæta tillögu Drífu
Sigfúsdóttur um 6% stað-
greiðsluafslátt til þeirra er
greiddu fasteignagjöld sín
fyrir 15. feb. Hljóðaði sam-
þykkt bæjarráðs um 8%, ef
greitt yrði fyrir 1. mars.
Er samþykkt þessi kom fyrir
bæjarstjórn Keflavíkur á
þriðjudag bar Jón Olafur
Jónsson upp breytingartillögu
um að hækka þetta upp í 10%,
svo það hefði hvetjandi áhrif.
Urðu miklar umræður um
þetta, þarsem minnihluti bæj-
arstjórnar fagnaði þessu, en
meirihluti taldi að menn
mættu ekki skipta svona ört
um skoðun.
Þegar tillagan var borin upp
sat meirihlutinn hjá, að und-
anskildum flutningsmanni,
sem greiddi atkvæði með
minnihlutanum, og því var til-
laga Jóns Olafs samþykkt með
5 atkvæðum, en 4 bæjarfull-
trúar sátu hjá.
Skyldu óskir Óskars
rætast?