Víkurfréttir - 28.07.1988, Side 11
10 Fimmtudagur 28. júli 1988
VUimnm*
murt
juiUt
- segir Öskar Færseth,
sportbúðareigandi,
í Víkurfrétta-viðtali
sko, hann gaf mér bara ekki
nógan séns“.
Þýðir ekkert að
gefast upp
Svo berst talið að fótboltan-
um í dag. „Þetta er náttúrlega
ekki nógu gotteinsogstendur.
Það býr meira í liðinu en þeir
hat'a sýnt. Það er nógur kraftur
í þessum strákum, en þá
vantar allt spil í lcikinn. Svo
finnst mér iíka að það eigi að
gefa ungu leikmönnunum
lleiri tækifæri, því það fer að
koma að svipaðri endurnýjun
og var ’77. Ungu strákarnir
þurfa líka að læra það, að stór
nöfn tákna ekki neitt í fót-
bolta, heldur það, hvernig þeir
standa sig inni á vellinum. Þeir
þurfa svolítið sterkari
karaktcr ef þeir ætla sér að
spila í 1. deildinni. Það þýðir
ekkert að gefast bara upp og
skipta um lið. Ég held að það
sé eitt stærsta vandamálið hjá
liðinu i dag, hve mikið ungu
strákarnir tlýja í burtu. Svo
held ég líka að það sé spurning
hvort það cigi að vera að ráða
þessa erlendu þjálfara hingað.
Þetta er happdrætti um hvers
konar menn við fáum, auk
þess sem þeir virðast bara ekki
ná nógu vel til strákanna, oft á
tíðum vegna tungumálaerfið-
leika".
Gaman í „Old boys“
Óskar er sjálfur ekki af baki
dottinn í fótböltanum og er nú
á fullu með „Old boys“. „Það
er mjög gaman í „Old boys“,
þetta er afslappað og menn
mæta þegar þeir vilja. Við
höfum staðið okkur mjög vei
hingað til og unnið alla þrjá
leikina sem við höfum spilað.
Framtiðin er líka björt hjá
okkur, því ég tel að við eigum
von á mörgum sterkum
leikmötinum sem ganga upp
úr meistaraflokki á næstu
árum“, segir Óskar og hlær
við.
En hann er mikill dellukarl
og því fer fjarri að hann láti
fótboltann einan nægja. „I
LÖGÐUM
ALLT
UNDIR
I lann hefur sjómannsblóð í æðuni, hann lck knattspyrnu
með meistaraflokki IBK um árabil, hann starfaði sem
smiður í níu ár, fór í miliitíðinni á sjóinn em byrjaði síðan í
verslun og viðskiptum er hann hóf störf hjá Byggingavali,
|>ar sem hann varð síðan verslunarstjóri. Upp frá þessu fékk
hann brennandi áhuga á verslunarmennsku og lagði allt sem
hann átti undir til að eignast eigin verslun, sem hlaut nafnið
SPORTBÚÐ ÓSKARS. Maðurinn er Óskar Færseth.
Óskar er Keflvíkingur í húð
og hár, eins og hann segir sjálf-
ur, þó hann cigi ættir sínar að
rekja norður í land og lil Vest-
mannaeyja. Hér hefur hann
búið alla sína ævi og er ekkert
á leiðinni í burtu. Óskar, sem
senn heldur upp á þrítugsaf-
mæli sitt, fluttist ungur að
árum að heiman og hóf
búskap mcð konu sinni Ásdísi
Guðbrandsdóttur. Þau hafa
eignast saman tværdætur, þær
Sylvíu Þóru, sem er á 7. ári, og
Andreu Dögg, sem er 20
rnánaða.
Mamma saumaði
stuttbuxur
Á sínum yngri árum stund-
aði Óskar fótboltann af miklu
kappi og er reyndar enn að.
„Ég man að ég byrjaði sjö ára i
að æfa fótbolta hjá Sigga
Steindórs í KI'K. Þá fórég nið-
ur á Birkiteig til Sigga og
spurði hann hvort ég mætti
koma á æfingu. Hann sagði já
og þá var hlaupið heirn og
mamma látin sauma stuttbux-
ur. Upp frá því var fótboltinn
númer eitt, tvö og þrjú". Þeg-
ar Óskar var 18 ára komst
hann í meiataraflokkslið IBK.
„Þetta var '11 þegar Gullald-
arárin voru að renna sitt skeið
og „Hóbbi" var fenginn til að
taka við liðinu sem samanstóð
af mjög mörgum ungum
strákum, sem lítið höfðu leikið
með meistarílokki. Allirspáðu
okkur bcinu falli í 2. deild, en
við hnekktum öllum spám,
héldum okkar sæti og fengum
viðurnefnið „Ungu Ijónin".
Eins og knattspyrnuáhuga-
menn muna ellaust, þá lék
Óskar stöðu bakvarðar ásamt
Guðjóni Guðjónssyni og
höfðu menn það oft á orði að
þar færi minnsti og besti bak-
varðadúett í heimi.
Árið 1980 komst Óskar í
landslið Islands og lék með því
tvo leiki, gegn Finnum (1:1) og
Færeyjum (2:1). „Síðan fórég
líka í keppnisferð með lands-
liðinu til Noregs og Svíþjóðar,
en hanu Guðni (Kjartansson)
u -..
Hér er baþvörðurinn
bakvörð, bæjarstjórann sjálfan, Vilhjálm Ketilsson.
Æskudraumur eð opna
sportvöruverslun
Talið berst nú að fyrri störf-
um Óskars. 1 lann byrjaði sext-
án ára að læra sniíðar hjá
„Alla Kreml" og var 4 ár hjá
honum i útivinnu. Þaðan lá
leiðin til Þorvaldar Ólafsson-
ar og vann Óskar þar á verk-
stæðinu í 5 ár. „Ég kláraði
samt aldrei sveinsprófið og sé
reyndar svolítið cftir því í dag.
Þetta var hins vegar lærdóms-
ríkur tími, senr ég hefði ekki
viljað missa af“.
Eftir rúm níu ár við smiðar
taldi Óskar sig vera búinn að
fá nóg og sótti um starf sem af-
greiðslumaður i nýrri bygg-
ingavörubúð, Byggingavali,
sem opna átti við_ lilið Tré-
jsmiðju Þorvaldar Ólafssonar.
Var Óskar ráðinn þar, og eftir
rúma 8 mánuði í starfi var
hann gerður að verslunar-
stjóra. „Þá kviknaði verslun-
aráhuginn fyrst af alvöru ogég
fór að hugsa með mér að það
gæti verið gampn að eignast
eigin verslun. Allt frá því ég
var gutti hafði það reyndar
an hans, en kom ser vel fyrtr
okkur Pálu, sem bæði þurftum
orðið á stærra húsnæði að
halda. Það varð úr að ég tók
jarðhæðina fyrir búðina og
hún 2. hæð fyrir hárgreiðslu-
stofu sína. Við þurftum að
gera mjög mikið við húsið, því
það var í fremur fátæklegu
ásigkomulagi að innan, og
gamli hlutinn var orðinn svo
illa farinn að við léturn rífa
hann".
Eftir að Óskar flutti sig um
set hafa honum opnast fleiri
möguleikar varðandi verslun-
ina, auk þess senr stækkunin
helur gert honum kleift að
auka mjög vöruúrvalið. Hefur
hann nú á boðstólum rneira
úrval sportfatnaðar en nokkru
sinni hefur þekkst í Kellavík,
auk golfvara, veiðiútbúnaðar,
skíðabúnaðar og reiðhjóla.
„Ég hef reynt aðauka þjónust-
una jafnt og þétt, og ég finn að
fólkið hérna kann vel að meta
það. Ég held að það leiti ekki
orðið til Reykjavikur nema
það nauðsynlega þurfi“.
Ný líkams-
ræktarstöð
En Óskar lætur ekki sport-
vöruverslunina eina duga.
Nýjasta nýtt hjá honum er al-
hliða líkamsræktarstöð sem
opnar núna á næstu dögum.
„Þetta eru svokallaðir „Tone-
master“-bekkir, sem við
höfum ákveðið að kalla „Fínt
form“. Þessi tæki liafa náð.
mikilli útbreiðslu í Bandaríkj-
unum og það eru 3 aðilar sem
eru að opna svona stöðvar hér
á SV-horninu, auk mín eru
það Dansstúdíó Dísu í Garða-
von á því að fólk flykkist í nýju líkamsræktarstöðina mína"
verið draumur minn að opna
sportvörverslun".
Erfiður dagur
Svo var það í ársbyrjun 1986
að Rúnar Helgason í Sportvík
bauð Óskari lager sinn til
kaups og hann ákvað að grípa
gæsina á rneðan hún gafst. „Ég
man að það var erfiður dagur
þegar ég fór heim og spurði
konuna hvort hún væri ekki til
í að selja húsið sem við bjugg-
um í. Hún tók vægast sagt ekki
vel í þá hugmynd. Þetta er
nefnilega gífurlega mikií fjár-
festing að kaupa svona lager í
svona búð og við urðunr að
leggja allt okkar undir. Það
varð ofan á að t'ara út í þetta og
ég byrjaði strax á því að leita
eftir húsnæði við Hal'nargöt-
una“.
Þann 3. febrúar I986opnaði
Óskar síðan verslun sína að
Hafnargötu 61, Vatnsnes-
torgi. undir nafninu „Sport-
búð Óskars". Þar rak hann
verslunina í 22 mánuði, en
flutti liana þá í núverandi hús-
næði að Hafnargötu 23.
Víkurbæjarhúsið keypt
Það vakti mikla athygli
þegar Óskar ásamt föður sín-
um og Pálu systur sinni ákvað
að kaupa „Víkurbæjarhúsið"
svokallaða. „Það bar þannig
til að fjölskyldan kom saman
þegar óskað var tilboða í
húsið. Það vildi til að pabbi var,
nýbúinn að selja útgerð sína á
þessum tíma og þurfti að fjár-
festa í einhverju. Þetta hefði í
raun og veru aldrei verið hægt
segir Óskar.
Ljósm.: pket. - Viðtal GKV.
bæ og Dansstúdíó Sóleyjar
í Reykjavík. Hver stöð
er saman sett af sjö bekkj-
um og fer leikfimin þannig
fram að vikomandi leggst í
bekkina og síðan sjá þeir um
alla vinnuna. Fólk á öllum
aldri getur komið hérna inn í
æfingagallanum og gengið út
ósveitt. Þetta er einnig tilvalið
fyrir hópa sem vilja æfa
saman, því sjö geta verið
saman í hóp í hverjum tíma.
Tækin styrkja alla vöðva
líkamans og fólk grennist
rnjög fljótt. Það er sagt að
tveir 50 mínútna tímar í svona
leikfimi á viku jafngildi urn 14
klukkutímum af gólíleikfimi
og ég á von á að fólkið hérna
eigi eftir að flykkjast í þetta,
því það er mikill áhugi fyrir
almennri líkamsrækt hér á
Suðurnesjum".
Ætla mér ekkert meira
en ég ræð við
Þegar minnst er á framtíðar-
áætlanir hjá Óskari segir hann:
„Takmarkið er að halda áfram
við það sem ég er búinn að
byggja upp. Reyna að leigja út
3. og 4. hæðina að Hafnargötu
23 auk verslunarplássanna
þriggja sem í byggingu eru þar
sem eldri hluti hússins var.
Sjálfur ætla ég mér ekkert út í
neitt meira en ég ræð við, en
hyggst halda áfram uppbygg-
ingu verslunarinnar og auka
úrvalið og þjónustuna enn
frekar. Takmarkið er að hafa
viðskiptavininn alltaf ánægð-
an og svo vonar maður bara að
gæfan og lukkan fylgi manni
hér eftir sem hingað til“.
„Es á
fyrra byrjaði ég í golfinu, og nú
er það veiðin. Veiðin er gott
fjölskyidusport, sem konan
getur líka tekið þátt í. Ég hef
mjög gaman af því að komast
út í náttúruna og kasta fyrir
lax og silutig. Það má segja að
það eigi hug minn og hjarta
eins og er. Mér líkargolfið líka
mjög vel, og ég hvet alla sem
geta til að drífa sig út í Leiru og
prófa. Sjálfur hef ég því miður
ekkert komist í sumar vegna
mikilla anna í versluninni".
\
I
Fimmtudagur 28. júlí 1988 11
Sætaferðir SBK
föstudaginn 29. júlí:
í GALTALÆK:
Frá Sandgerði kl. 17.00 - Frá Garði kl. 17.10
Frá Keflavík kl. 17.45
Til baka eftir mótsslit á mánudag.
ÞJÓÐHÁTÍÐ í VESTMANNAEYJUM:
Farið verður frá SBK kl. 15.30 til Þorlákshafnar.
Til baka kl. 20.30 á mánudagskvöld.
Sætaferðir verða á aðrar hátíðir, ef næg þátttaka fæst.
Nánari upplýsingar og farmiðasala í afgreiðslu SBK, sími 11590.
Sérleyfisbifreiðir Kefiavíkur
Leiktæki í sumarbústaðinn
Reiðhjól í öllum stærðum • Tjaldofn og grill
Leiktæki í miklu úrvali. (samastykkið)
REIÐHJÓLA-
VERSLUN MJ Hafnargötu 55, simi 11130