Víkurfréttir - 28.07.1988, Blaðsíða 20
yfÍKUR
Fimmtudagur 28. júlí 1988
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15. - Símar 14717, 15717.
TÉKKAREIKNINGUR
SPURÐU SPARISJÓÐINN
Tros sf. í Sandgerði:
Flytur út fersk-
an heilan humar
til veitingastaða
á Ítalíu
er eina fyrirtækið á Suðurnesj-
um sem hefur verið í úfflutningi
á lieilum humri og jafnframt hið
eina á landinu sem flytur hann
út ferskan.
Tros hefur selt humarinn til
Hollands og Belgíu í gegnuni
Voga hf. og til Flórens og
Rimini á Italíu í gegnum Stefni
hf. Italir hafa sýnt mikinn
áhuga á frekari kaupum og
næsta sumar er stefnt að því að
senda um 5 tonn vikulega til
Ítalíu.
- Én hvernig ganga llutn-
ingarnir i hitanum til Italiu?
„Flutningarnir eru stá:'fsta
vandamálið í þessum útflutn-
ingi. Humarinn þolir.ý' litla
geymslu, súrefnið gerir hann
svartan og þannig er hann ó-
seljanlegur. Annað er að beint
„Við höfum verið að þróa
þessa aðferð í 4 ár og teijum
okkur hafa dottið niður á góða
lausn við að halda humrinum
ferskum í vikutíma", sagði Logi
Formóðsson í ferskfiskvinnslu-
stöðinni Tros í Sandgerði, sem
hefur flutt út um 5 tonn af fersk-
um lieilum humri i sumar. Tros
Jónas Jónsson og Sigurður Jóhannsson, starfsmenn í Tros, flokka og hreinsa humarinn. Ljósm.: hbb.
fragtflug e_r ekki til Rimini og
Flórens. Italska heilbrigðis-
ráðuneytið leyfirekki innflutn-
ing á matvælum nema í gegn-
um tvo flugvelli, í Róm og
Mílanó. Þess vegna verðum
við að senda fyrst með Flug-
leiðunj til Kaupmannahafnar
og þáðan til Mílanó, og hins
vegar með Arnarflugi í gegn-
urn Amsterdam til Mílanó".
Aðspurður um verðmæta-
mun á humrinum sagði Logi
að sjómaðurinn fengi 30-60%
meira í sinn vasa fyrir að skila
humrinum heilum í stað þess
að slíta hann. „Erlendis er
humarinn borinn fram með
, klóm og öllu saman og þykir
mikið lqstæti", sagði Logi.
Tros er líklega eina fersk-
fiskvinnslustöðin á landinu
sem einbeitir sér eingöngu að
ferskfiski. Fyrirtækið flyturút
ferskfisk af öllum gerðum
heimshorna á milli, t.d. til
Japan og Saudi Arabíu. „A
allra daufasta tímanum gríp-
um við í saltfisk, svona rétt til
að ná okkur í atkvæði hjá SIF
til að geta kosið Dagbjart Ein-
arsson í stjórnina", sagði Logi
að lokum.
Grindavík:
Næturgestir
hættir að mæta
Tíð innbrot í víngeymslu varnarliðsins:
Stálu þremur kössum
af úrvals vodka
Síðasta helgi var fremur
róleg hjá lögreglunni í
Grindavík. Engin óhöpp
urðu í umferðinni I umdæmi
hennar og einungis einn öku-
maður var tekinn fyrir ölvun
við akstur.
Bláa lónið í Svartsengi
hefur fengið frið óboðinna
gesta að næturlagi. Af sem
áður var, segir lögreglan, og
ekki sálu að sjá í lóninu eftir
lokun.
Nokkuð mun hafa verið
um innbrot í vínlager varn-
arliðsins á Keflavíkurflug-
velliá undanförtium mánuð-
um. Víngeymslan mun ekki
vera varin með þjófabjöllu
og hafa þjófarnir því átt
fremur auðveldan aðgang að
henni. Þó gripu þeir til ör-
þrifaráða um síðustu helgi og
stálu þá Ivftara til þess að
brjóta upp hurð á bygging-
unni. Höfðu þjófarnir á
brott með sér þrjá kassa af
vodka og er talið að þeir hafi
farið beinustu leið að girð-
ingunni sem umlykur svæði
Varnarliðsins og klippt á
hana gat. Þar munu þeir hafa
komið þýfinu fyrir í bifreið
sinni og ekið á brott.
Ekki hefur tekist að hafa
hendur i hári þjófanna, cn
talið er að hér séu kunnáttu-
menn að verki, því faglega
var að öllu farið.
Nýtt útgerðarfyrirtæki í Grindavík - Sigluberg hf.:
„Styrkir stöðu beggja fyrirtækja"
- segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf, sem
ásamt Fiskimjöli og Lýsi hf. standa að stofnuninni
Nýtt útgerðarfyrirtæki liefur verið stofnað í Grindavík og ber það
nafnið Sigluberg hf. Er fyrirtækið stofnað af tveimuröðrum fyrir-
tækjum í Grindavík, Þorbirni hf. og Fiskimjöli og Lýsi hf.
Að sögn Eiríks Tómassonar,
framkvæmdastjóra þess fyrr-
nefnda, er Sigluberg hf. stofnað
í kringum loðnuskipin þrjú,
Hrafn GK-12, Hrafn Svein-
bjarnarson III. GK-11 og Gísla
Árna RE-375, og er því ætlað að
styrkja stöðu beggja fyrirtækj-
anna.
„Við náum með þessu betri
nýtingu á aflanum en verið
hefur. Hrafnarnir ásamt Gísla
Árna munu landa loðnunni
eftir því sem unnt verður i
Grindavík, og skapa þannig
verkefni fyrir Fiskimjöl og
Lýsi hf. Þorbjörn mun hins
vegar njóta góðs af botnfisk-
og rækjukvóta Gísla Árna,
sem hingað til hefur verður
gerður út á þær veiðar á
ísafirði".
Samtals mun nýja fyrirtæk-
ið hafa yfir u.þ.b. 57.000 tonna
loðnukvóta að ráða ef miðað er
við fyrra ár. Hlutafé fyrirtæk-
isins var ákveðið 20 milljónir,
en framkvæmdastjóri þess
mun verða Jóhann Pétur
Andersen.
Stútur
við stýri
Menn eru að skvetta í sig
alla vikuna, a.m.k. þurfti lög-
reglan í Keflavík að hafa af-
skipti af einum ökumanni fyrir
ölvunarakstur á mánudags-
nótt. Þrátt fyrir að um karl-
mann hafi verið að ræða í
þessu tilfelli, þá hefur ölvunar-
akstur kvenna aukist mikið
upp á síðkastið, að sögn Karls
Hermannssonar, aðstoðaryfir-
lögregluþjóns.
Þeir hafa greinilega verið að
birgja sig upp fyrir verslunar-
mannahelgina...