Víkurfréttir - 28.07.1988, Page 16
VÍKUR
16 Fimmtudagur 28. júlí 1988
Berg hf. er
í fullu fjöri
Tilkynnum viðskiptavinum vorum
að sú breyting hefur orðið á nafni
fyrirtækisins, að því hefur nú verið
breytt í BERG HF. (í stað Bifreiða-
verkstæðisins Berg) og höfum við
opið hér eftir sem áður.
Allar almennar bílaviðgerðir.
Verið velkomin til viðskipta.
Grófinni 14 - Keflavík
t
Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og jarðarför
HELGU ATLADÓTTUR
Houston, Texas.
Fyrir hönd barna, systkina og annarra vanda-
manna.
Kristin Ögmundsdóttir Garver
Sherry Sebek
Skrifstofur Víkur-frétta
verða lokaðar vegna sumar-
leyfa frá 1. - 7. ágúst. Opnum
aftur 8. ágúst.
Víkurfréttir
| jUttU
Grindvíkingar sigursælir í
sveitastjórnamötinu í golfi
Grindvíkingar komu sáu og sigr-
uðu í sveitastjórnamótinu i golfi
sem haldið vará Hólmsvelli í Leiru
i siðustu viku. Alls mættu II lið til
leiks, sent er mesta þátttaka I
mótinu l'rá upphafi, en það var nú
Italdið i 16. sinn.
B-sveit Grindavíkurbæjar kom
á óvart með frábærri frammistöðu
og sigraði á 74 böggunt. I liðinu
voru þeir Guðmundur Kristjáns-
son og Ólafur Guðbjartsson, en
meðspilarar voru þeir Jóhann
Benediktsson og Steinar
Sigtryggsson. A-sveit Sandgerð-
inga kom skammt á áeftir í 2. sæti
með 77 liögg en þeirra sveit var
skipuð þeim Agli Ólafssyni, Ólafi
Gunnlaugssynu og Sigurjóni
Jónssyni.
Annars urðu úrslit þessi:
3.-4. A-sveit Grindavíkur .. 80
3.-4. Sveit Njarðvíkur.. 80
5.-6. B-sveit Keflavíkur .... 82
5.-6. B-sveit Miðneshrepps . 82
7. A-sveit Keflavíkur .... 83
8. Sveit Hafnahrepps ..... 88
9. B-sveit Njarðvíkur .... 91
10. Sveit S.S.S.............92
11. Sveit Gerðahrepps ..... 95
Lins og venja er þá var sérstakt
púttmót sveitastjórnarmanna og
þar sigraði Bjarni Andrésson, nú-
verandi formaður S.S.S. Hann
munaði ekki um að leika hringinn
á 3 undir pari eða 33 höggum.
Arnar og Karen best
Opna hjóna- og parakeppni
G.S. var haldin í Leirunni á föstu-
dag. Yngsta parið í keppninni,
Karen Sævarsdóttir og Arnar Ást-
þórsson úr Keflavík, léku á besta
skorinu, 82 höggum, og urðu jafn-
framt í 2. sæti með forgjöf á 71
höggi. Sigurvegarar urðu þau Karl
Bjarnason og Hildur Þorsteins-
dóttir úr Keili á 70 höggum.
Grindvíkingar
vildu Jón Kr.
Körfuknattleiksmaðurinn
snjalli úr IBK, Jón Kr. Gíslason,
fékk mjög freistandi tilboð frá
Grindvíkingum um að taka að
sér þjálfun liðsins og að leika
með því. Jón Kr. afþakkaði gott
boð og ætlar að einbeita sér að
körfunni með félögum sínum úr
ÍBK í vetur, sern stefna á
titilsigra.
UMFN ekki með
meistaraflokk?
Njarðvíkmgar sitja sem kunn-
ugt er á botni 3. deildar íslands-
mótsins í knattspyrnu. Liðið
má muna sinn fífil fegurri en nú
biður lítið annað en fjórða deild-
in að öllum líkindum. Hafa
heyrst raddir um það að „hvila"
meistaralJokkinn næsta eða
næstu ár og leggja áherslu á
yngri flokkana.
Bogi Þorsteinsson sjötugur
Afmæliskveðja
Vinur rninn, Bogi Þorsteinsson,
ylir-llugumferðarstjóri, I Ijallaveg
7, verður 70 ára 2. ágúst n.k.
Bogi fæddist að Ljársskógarseli,
Laxárdalshreppi. Foreldrar hans
voru Þorsteinn Gíslason bóndi og
kona hans Alvilda F.M. Boga-
dóttir, en Bogi ólst upp hjá afa
sínum Boga Sigurðssyni
kaupmanni í Búðardal og seinni
konu hans Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur.
Bogi er frá árgangi 1933-1936
við Reykholtsskóla, og tók loft-
skeytapróf 1941 og starfaði sem
loftskeytantaður á ýmsum skipum
á striðsárunum. þar á meðal e.s.
Dettifossi, er honum var sökkt í
febrúar 1945.
Til Flugmálastjórnarinnar á
Reykjavíkurflugvelli réðst hann
1946 og tók próf í flugumferðar-
stjórn árið 1947, fór utan í fram-
haldsnám til Bandaríkjanna 1951
til 1954 ásamt ýmsum námsferð-
um viðvíkjandi starfi á árunum
’51-’57.
Bogi var skipaður flugumferð-
arstjóri 1948 og svo yfir-flugum-
ferðarstjóri á Keflavíkurflugvelli
1. júní 1951 og gegndi því starfi
þar til hann fór á eltirlaun í ágúst
1985. Bogi var einnig settur flug-
vallarstjóri á Keflavíkurflugvelli
1955-1956 og svo oftar styttri
tímabil í fjarveru llugvallarstjóra.
Afskipti Boga af félagsmálum
eru margvísleg og breytileg, en
llestir hér á Suðurnesjum sent og
víðar þekkja ltann vegna afskipta
af körfuknattleik, og er hann þvi
réttnefndur faðir (afi) körfuknatt-
leiksins á Islandi. Hann þýddi til
dæntis fyrstu Alþjóðakörfuknatt-
leiksreglur FIBA yfir á íslensku,
varð lyrsti forntaður K.K.Í., eða
frá stofnun þess 1961 til 1969.
Stofnandi og formaður ÍK 1951
til 1959, en ÍKF urðu fyrstu ís-
landsmeistarar í körfuknattleik
1952. Bogi var aðalhvatamaður
þess að ÍKF gengi í UMFN og
stofnaði körfuknattleiksdeild þar
sem allir landsmenn kannast vel
við í dag, varð síðan formaður
UMF’N 1970 til 1978.
Bogi hefur setið í stjórn íþrótta-
bandalags Suðurnesja 1952 til
1953 og 1957 til 1958, i stjórn
F.R.Í. 1952 til ’54, í stjórn knatt-
spyrnudómstóls K.S.Í. 1956-1958
og að sjálfsögðu fulltrúi KKÍ í
Olympíunefnd um árabil, farar-
stjóri íslenska landsliðsins i körfu-
knattleik i fjölda ferða til útlanda,
nt.a. Bandaríkjanna og Canada,
og sótti fjöldan allan af alþjóða-
þingunt körfuknattleiksmanna í
þrent heimsálfum.
Að auki var Bogi formaður
sjálfstæðislélagsins Mjölnis, sem
starfaði á Keflavíkurflugvelli frá
1955 til 1961, svo og formaður
sjálfstæðisflégsins Njarðvíkings i
tvö ár, sat í vmsum nefndum fvrir
Njarðvíkurbæ, síðast í sáttanefnd
1978 til 1981. Fréttarilari Morg-
unblaðsins á Keflavíkurflugvelli
var hann um árabil.
Bogi var í stjórn Félags flug-
málastarfsmanna ríkisins frá 1946
til 1950, í stjórn Lionsklúbbs
Njarðvíkur 1984 til '85 og í undir-
búningsnelnd að stofnun (stoln-
andi) að Gollklúbbi Suðurnesja.
Bogi hefur hlotið ýntsar viður-
kenningar fyrir störf sín að félags-
málum, þará meðal Afmæliskross
ÍSÍ - 1960 Gullmerki K.K.Í. og
Í.S.Í., svo og frá Knattspyrnufé-
lagi Vals og Club-de Luxemborg,
Silfurmerki frá F.R.Í. og körfu-
knattleikssambandi Danmerkur.
Bogi var kjörinn ævifélagi
UMFN 1978 og heiðursfélagi
körfuknattleiksnelndarinnar í
mars 1985.
Eg hefaf veikum ntætti reynt að
telja upp hin margvíslegu störf
Boga um árin, og ef ég færi að ritja
upp allar skemmtilegu ferðirnar á
„íitla gula jeppanum” í hinar
ýmsu keppnisferðir sent og aðrar
santverustundir með honum,
þyrfti ég heilt blað, þvi fórnfúsari
og kunnugri manni unt hin ýmsu
málefni er erfitt að finna og vænti
ég þess að ég og íjölskylda min eigi
eftir að njóta þess um ókomin ár,
sem ég veit að vinir og kunningjar
taka undir með mér.
Með þessum fátæklegu upprifj-
un óska ég Boga til hamingju nteð
afmælið, en hann mun taka á móti
gestum í Sjálfstæðishúsinu í Njarð-
vík, Hólagötu 15, þriðjudaginn
2. ágúst n.k. kl. 20-22.
lngi Gunnarsson