Víkurfréttir - 28.07.1988, Side 19
\)iKur<
Utuut
Fimmtudagur 28. júlí 1988 19
Lfkamsræktaræði
í Keflavík
Það litur út fyrir að lausn
hins lata Suðurnesjamanns sé
fundin, því um miðjan ágúst
mun opna líkamsræktarstöð
að Hafnargötu 25 i Keflavík.
Er umrædd stöð í anda þeirrar
stöðvar sem Oskar Færseth er
að opna við hliðina. Var stöð
af þessari tegund fyrst kynnt í
Evrópu á liðnu hausti, en
líkamsræktarstöðin er banda-
rísk að uppruna og heitir
„Splender You“, sem stendur
saman af sex mismunandi
bekkjum, sem eru rafknúnir
og hver um sig notaður í tíu
mínútur í senn.
Að sjálfsögðu er líkams-
ræktarstöðin ekki einungis
ætluð lötum einstaklingum,
því nokkuð er um að íþrótta-
menn stundi tækin. Algengur
árangur er að 17 sentimetrar
hafi horfið utan af notendum
eftir fjórar til fimm umferðir í
tækjunum.
Eigendur stöðvarinnar að
Hafnargötu 25 eru Ólafur Eyj-
ólfsson og Bergþóra Jóhanns-
dóttir.
Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur:
Nýr Benz f flotann
Nýr 33 manna fólksflutn-
ingabíll af gerðinni Mercedes
Benz 0-303 árgerð 1988 bætist
í flota SBK í dag. Bíllinn er
búinn öllum helstu þægindum
sem hægt er að hafa. Þar má
telja hægindastóla fyrir
farþega og bílstjóra, litað
gler, ísskáp o.fl. Bíllinn er
keyptur beint frá Þýskalandi,
þar sem honum hefur verið
ekið 20.000 km.
Að sögn Vilhjálms Ketils-
sonar bæjarstjóra, mun þessi
bíll koma í góðar þarfir bæði í
hópferðir sem og áætlunar-
ferðir sem minna er um
farþega. SBK hefur haft nóg
að gera í hópferðum í sumar og
hefur verið skortur á bílum
frekar en hitt.
Kaupverð bifreiðarinnar er
um 8V2 milljón.
Smáauglýsingar
Garöaúðun
Úða með nýjustu áhöldum. 100%
árangur. Sími 12794 og 15880.
Sturlaugur Ólafsson
Garðaúðun
Tek að mér að úða garða. Úða
einnig gegn roöamaur. Emil Krist-
jánsson, símar 14885 og 14622.
Ökukennsla
Kenni á nýja bifreið. Gylfi Guð-
mundsson, ökukennari,
sími 14380.
Stúlka óskast
Ungur og efnilegur bifvélavirki
óskar eftir að kynnast stúlku til að
eyða með verslunarmannahelg-
inni. Splæsi á útihátíðina á Mel-
gerðismelum, einnig fari fram og
til baka. Á gott tjald og svefnpoka.
Uppl. i síma 11310.
Til sölu
1/4 hluti i TF-SPK, sem er Piper,
er til sölu. Upplýsingar í síma
15969 eftir kl. 20.
Iðnaðarhúsnæði
Til leigu 85 ferm. iðnaðarhús-
næði í Grófinni. Uppl. í síma
11746 eða 11950.
Til leigu
2ja herb. íbúð. Fyrirframgreiðsla.
Upplýsingar í síma 15369 eða 91-
675219.
Blár og hvítur
páfagaukur fannst nýlega við
Kirkjuveg 19 i Keflavík. Upplýs-
ingar í síma 12126.
Til leigu
Nýlegt 130 ferm. einbýlishús til
leigu nú þegar i Höfnum. Uppl. í
síma 16900 eftir kl. 17.
Til sölu
ný vatnsrúmdýna ásamt hitara og
hitastilli, stærð 215x150. Einnig 2
notaðar springdýnur. Uppl. i sima
12357.
Atvinna og húsnæði óskast
Hjón með,4 börn óska eftir at-
vinnu og husnæði. Skilyrði að
gott húgheéði fáist. Uppl. í síma
91-79039.'
TIL HÖFUÐS
SJÁVARSELTUNNI
ÞAKLEKI - RYÐVÖRN
HÚSMÁLUN - EINANGRUN
10-20 ÁRA ÁBYRGÐ
Bjóöum bandaríska hágæ’ðavöru til þéttingar
þaka og húsa (jafnvel ryðgaðraj, pappa
(asfalt), asbest- og steinsteypuþökum
(t.d. bílskúrsþök) t -
Ráðleggjum og gerum tilbcjö eftir.óskum og
án skuldbindinga. Séndum bæk'Jmga.
Otrúlega hagstætt vterð..
GARÐASMIÐJAN S/F
Lyngási 15, Garðabæ
simi 53679, kvöld- og helgarsimar 51983/42970
orðvar
Njarðvík breyttist úr
ljótum andarunga í
fallegan svan
Sjaldan eða aldrei liefur
annað eins átak verið gert i
umhverfismálum á Suðurnesj-
um og nú í sumar. Svo almenn
og árangursrík er þátttakan í
þessu átaki, að þess sér ulls
staðar nierki, í öllum sveitar-
félögunum. Umsjónarmenn
Flugstöðvarinnar niega gjrn-
an taka sig á, cf fram heldur
sem hprfir, í snyrtimennsk-
unni. Aburðardreifing Land-
græðsluvélarinnar er lofsverð,
hún breytti grámyglulegum
móanum í kring um stöðina í
fagurgrænt engi, séð úr hæfi-
legri Ijarlægð. Einhvcrn tíma
verður afgangurinn af skreið-
arhjöllunum fjarlægður og
lagast þá umhverfið enn meir.
„Bragð er að þá barnið
finnur“, segireinhversstaðar.
Siðustu helgar hefur brugðið
svo við, þegar fjölskvldan fer í
hina hefðbundnu sunnudags-
ökuferð urn nágrennið, að
börnin hafa sagt einum rómi:
„Við skulum fara inn í Njarð-
vík og sjá hvað hefur breyst í
vikunni". Þó ýmislegt sé enn
ógert í fegrunarmálum Njarð-
víkinga, þá hefur bærinn
þeirra breyst úr Ijóta andar-
unganum í svan á nokkrum
vikum. Þar eru grcinilcgustu
merkin tim hvað hægt er að
gera, ef Itugur fylgir máli.
Helsta andlitslyfting Kefla-
víkurbæjar er án efa Flug-
hótelið við Hafnargöluna.
Snyrtilegur Irágangur bygg-
ingarinnar vekur ósvikna
aðdáun þeirra sem nenna að
líta í kringum sig. Þrátt fyrir
stórar og miklar bygginga-
frainkvæmdir í Grindavík, er
bærinn hreinn og snyrtilegur.
Öðruin bæjum fremur aí
skaganum ber hann einkenni
velmegunar og framsýni. í
sama dús er hægt að nefna öll
smærri sveitarfélögin á Suð-
urnesjum.
Lífskúnstnerinn Kikki í
Höfnunum kom þeirri snjöllu
hugmynd á framfæri, að fólk
ætti að taka fiag í fóstur.
Margir hafa farið að hans
ráðum, og kemur árangur
þess eflaust í Ijóseftirnokkur
ár, þegar grænar vinjar konia
í ljós víða í nágrenninu. En af
hverju taka fjölskyldur sig
ckki saman, eða félagasam-
tök, og taka t.d. Stapann eða
Miðnesheiðina í fóstur? Með
sameiginlegu átaki er ýmis-
legt hægt að gera, sem skapar
ánægjulega útivist og þjappar
íbúunum saman. Fyrir um 40-
50 árum stóð fámennur fé-
lagsskapur í því að planta
trjám í Háabjalla. Árangur-
inn er löngu kominn í Ijós og
sannar að þannig gæti allur
Stapinn einhvern tíma litið út,
kannski eftir 10, 20 eða 30 ár.
Þegar ekið er eftir Garð-
veginum framhjá Mánagrund
og golfvellinum, er eins og öll
óræktarsvæðin á Skaganum
hrópi á mann og segi: Hvers
eigum við að gjalda, hvenær
kemur að okkur? Suðurnesja-
menn, tökum höndum saman
og sýnuin umhverfinu
viðeigandi virðingu og rækt-
arscmi, það er hluti af lífinu
og tilvcrunni. í faliegu
umhverfi líður manni best.
ORÐVAR
m
%
Po/ehlon
Hafnargötu 19