Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.1988, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 01.09.1988, Blaðsíða 4
mw 4 Fimmtudagur 1. september 1988 muR Útgefandi: Víkur-fréttir hf. Afgreiösla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15-Simar 14717,15717-Box 125-230 Keflavík Ritstjórn: Emil Páll Jónsson heimasími 12677 Páll Ketilsson heimasími 13707 Fréttadeild: Emil Páll Jónsson Hilmar Bragi Báröarson Auglýsingadeild: Páll Ketilsson Upplag: 5500 eintök, sem dreift er ókeypis um öll Suðurnes. Eftirprentun, hljóöritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getiö. Setnmg filmuvinna og prentun GRÁGÁS HF., Keflavik Keflavíkurhöfn: Lítil skúta hrökklast undan veðri Lítil seglskúta leitaði skjóls í Keflavíkurhöfn á sunnudag. Hafði skútan hrökklast undan veðri inn til hafnarinnar. Skút- an er frá Vestur-Þýskalandi, skráð í Berlín og heitir Kikam. Að sögn hafnarskrifstofunnar í Keflavík er nokkuð um það að leitað sé skjóls í Keflavíkur- höfn, þegar siæm veðurganga yfir, eins og var um helgina. Skútan Kikam frá Berlín í Keflavíkurhöfn. Ljósm.: epj. - BRIDS - vetrarstarfið að hefjast Nú fer vetrarstarf Bridsfél- ags Suðurnesja senn að hefjast. Við byrjum á því að Ijúka bik- arkeppni félagsins, sem staðið hefur yfir í sumar, með þátt- töku 9 sveita. Urslitaleikurinn fer franr, eins og áður var aug- lýst á Glóðinni, þann 10. sept. Ekki er enn Ijóst hvaða sveitir þar munu keppa en væntan- lega skýrast málin á næstu dögum. Reynt verður að skýra frá því í næsta biaði Víkur- frétta. Eftir úrslitaleikinn verður síðan árshátíð félagsins með verðlaunaafhendingu fyrir síð- asta keppnistímabil. Þeir sem áhuga hafa að mæta eru beðnir að hafa samband við einhvern stjórnarmeðlim sem fyrst. A mánudeginum eftir árs- hátíð verður aðalfundur fél- agsins í Golfskálanum í Leiru kl. 20, þar sem kosin verður ný stjórn meðal annars. Eftir að- alfundinn verður að sjálfsögðu gripið í spil. Mánudaginn 19. sept. verð- ur fyrsta spilakvöld vetrarins. Stjórnin jtUUt Grunnskólinn, Sandgerði: Fækkun í forskóladeild Nemendum fækkar í for- skóladeild Grunnskólans i Sandgerði á milli ára. Að sögn skólastjóra, Guðjóns Þ. Krist- jánssonar, stendur nemenda- I jöldi í stað, þar sem tuttugu nemendur l'óru upp i níunda bekk. Er forskóladeildin ekki eins fjölmenn og i fyrra og vissi skólastjórinn ekki ástæðuna, nema þá að vertíð hafi verið góð hér um árið. Búið er að ráða fjóra nýja kennara en ennþá vantar tvo. A þessu skólaári verður tekin i notkun að fullu nýbygging sé. er verið hefur í smíðum undan- farin fjögur ár. I henni eru fimm kennsjustofur, þar af tvær sérbúnar. Þá ætlar skól- inn að minnast þess i haust að 50 ár eru liðin frá setningu lians á þeim stað er liann stendur nú. FASTEIGNASALAN Hafnargötu 27 - Keflavík - Sími 1 14 20 KEFLAVÍK: Rúmgóð 2ja herb. íbúð við Ásabraut, með sérinngangi. 1.500.000 3ja herb. íbúð viðHeiðarból í góðu ástandi. Skipti á stærra húsnæði möguleg . 3.300.000 Ránarvellir 4, Keflavík: Raðhús í smíðum. Húsinu verður skilað fullgerðu að ut- an, með frágenginni lóð, en óinnréttuð. Til afhendingar fljótlega. Áhugavert hús. 3.600.000 Grófin 6B, Keflavík: Samkomuhús. Á n.h. ca. 200 ferm. salur, 2 herb., eldhús og salerni. Á e.h. salur og herb. Húsið er fullfrágengið og gefur mikla möguleika. Nánari uppl. á skrifstofunni. Tilboð Suöurgarður 6, Keflavík: Rúmgott raðhús ásamt bíl- skúr á eftirsóttum stað, í góðu ástandi .... 6.800.000 Faxabraut 2A, Keflavík: 4ra-5 herb. íbúð á efstu hæð. Rúmgóð íbúð með fallegu út- sýni. Laus strax ... 2.750.000 Brekkustígur 3, Sandgerði: Glæsilegt hús á tveim hæð- um. 3ja4ra herb. íbúð á n.h. með sérinngangi. Söluverð kr. 2.500.000. Á efri hæð er4ra herb. vönd- uð íbúð með sérinngangi. Söluverð kr. 3.700.000. Vel ræktuð lóð. Hátún 34, Keflavík: 5 herb. e.h. með bílskúr. Sér- hæð með nýjum gluggum og hin vandaðasta ....4.500.000 Vallargata 8, Sandgerði: 3ja herb. n.h. með sérinn- gangi. íbúðin er í góðu ástandi .......... 2.500.000 Hólabraut 10, Keflavík: Efri hæð ásamt risi og bíl- skúr. fbúð sem gefur mikla möguleika og er í góðu ástandi ...........Tilboð Eignamiðlun Suðurnesja Hafnargötu 17 - Keflavík - Sími 1-17-00, 1-38-68 Tjarnargata 41, Keflavík: Vönduð eign, sem skiptist í e.h.: 160 ferm. sérhæð ásamt 55 ferm. bílskúr; og n.h. sem er 110 ferm. rúmgóð 3ja herb. íbúð. Góður staður, nánari upplýsingar á skrif- stofu. Hátún 34, efri hæð, Keflavík: Góð 5 herb. sérhæð ásamt bílskúr. Góður staður. 4.500.000 Góð sérverslun í Keflavík. Góð umboð, eigið húsnæði. Nánari upplýs. á skrifstofu, ekki í síma. Hólabraut 10, efri hæð og ris, Keflavík: Rúmgóð 5-6 herh. íbúð ásamt bílskúr. Eign með mikla möguleika. 4.800-4.900.000 Hringbraut 68, neðri hæð og kjallari, Keflavík: Rúmgóð eign, stærð alls 240 ferm. Efri hæð er 4ra herb. sérhæð og neðri hæð er 3ja herb. íbúð, sér inngangur, laus fljótlega .... Tilboð Iðavellir 3, Keflavík: Vandað iðnaðarhúsnæði á tveimur hæðum, stærð alls 340 ferm. Laust strax. Góð kjör, nánari upplýs. á skrif- stofu. Háteigur 16, Keflavík: Glæsileg 3ja herb. íbúð ásamt bílskúrssökkli. Parket á gólfum, mikil og góð sam- eign, sér þvottaherb. og geymsla í sameign, góður staður .............. Tilboð Gónhóll 3, Njarðvík: Gott einbýlishús á tveimur hæðum, stærð alls 205 ferm. Rúmgóð herb., miklir mögu- leikar á neðri hæð, m.a. sér inngangur, 30 ferm. bílskúr. Tilboð Lyngbraut 13, Garði: 132 ferm. einbýlishús ásamt 40 ferm. bílskúr. Góður stað- ur .............. 4.500.000

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.