Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.09.1988, Side 10

Víkurfréttir - 01.09.1988, Side 10
10 Fimmtudagur 1. september 1988 ... skoðar \>iKur< jUUU mur< juUit Fimmtudagur 1. september 1988 11 SL Máá ..Sameinar tvö áhugamál - segir Ölafur G. Sæmundsson, sem gefur út heilsutímaritið Lífsþrótt „Áhugi íslendinga á alhliða heilsurækt og heilsuvernd er mikill og eykst með hverju ári - og er það vel - enda þykir marg sannað að heilbrigð sál í hraustum líkama séu þættir sem hafi afgerandi áhrif á al- hliða líkamsstyrk og lífsvilja. En því miður finnast þó enn einstaklingar sem álíta að heilsurækt og heilsuvernd séu bæði sóun á tíma og fjármun- um - segja jafnvel: „til hvers að æfa, eins og það er nú leiðin- legt, og til hvers að afneita mat sem manni bragðast svo vel? Við deyjum hvort sem er öll einhverntíman.“ Mikið rétt, einhverntíman deyjum við öll enda er ástæða heilsuræktar og heilsuverndar ekki að gera menn ódauðlega eða að lengja líf manna um mörg ár, heldur er megin áhersla lögð á að fólk lifi lífi sínu á heilbrigðari og ánægjulegri máta. Með öðrum orðum; takmark heilsuræktar og heilsuverndar er að auka möguleika fólks á að lifa „eðli- legu“ lífi sem allra lengst, laust við erfiða spítalalégu, hreyfi- hömlun, eða annars konar krankleika, sem fólk á „besta“ aldri kennir sér og má oft rekja ti! slæmra lífsvenja." Þessi orð er að finna í rit- stjóragrein Ólafs G. Sæm- undssonar í nýju tölublaði Lífsþróttar, sem kemur út núna strax eftir helgina. I til- efni útgáfu blaðsins tóku Vík- urfréttir ntstjórann og útgef- andann Ólaf G. Sæmundsson tali. „Nú hef ég verið við nám er- lendis í ein fímm ár og fannst mér tími til kominn að auglýsa mig og nám mitt fyrir Suður- nesjamönnum. Mér hefur ætíð fundist gaman að skrifa og er ritað mál sá tjáningarmáti sem ég kann best við. Tímaritið sameinar þannig tvö áhuga- mál, þ.e. námið og skriftirn- ar.“ -Hvernig tímarit er Lífs- þróttur? „Lífsþróttur er heilsutíma- rit þar sem víða er komið við. Ólympíuleikarnir eru á næsta leyti og er Ólympíuliði Suður- nesja gerð góð skil, sagt er frá því starfí og þeim fórnum sem afreksfólkið/ hefur lagt á sig vegna þeirrar ströngu keppni sem framupdan er. I blaðinu er viðtal við Árna Hólm, sálfræð- ing, og greinir hann frá, á op- inskáan hátt, þeirri hlið sál- fræðinnar sem hefur að gera með mannleg samskipti. Kyn- ferðislegri fullnægingu er gerð nokkur skil, en það er fyrir- bæri sem flestir hafa áhuga á og hefur um tíðina hlotið mikla en ekki alltaf gáfulega umfjöllun. í Lífsþrótti er einn- ig ítarleg grein um blómafrjó- kornin og er rætt um gildi þeirra á mannlega heilsu á eins vísindalegan hátt og mögulegt er. Ásamt nokkrum öðrum stærri greinum og viðtölum er í tímaritinu fjöldi smærri greina og pistla.“ -Hvernig var efnisöfluninni háttað? „Öflun efnis í Lífsþrótt fór að mestu leyti fram í Banda- ríkjunum, þar sem ég stunda mitt nám. Ég fór á bókasöfn og las þar greinar í tímaritum og bókum. Það efni, ?em vakti áhuga minn, ljósritaði ég og vann úr þegar heim var kom- ið.“ -FramhaJd á útgáfunni? „Ég hef fullan hug á að halda þessu áfram þegar ég hef lokið námi, sem mun væntan- lega verða á fyrstu mánuðum næsta árs. Þá hef ég hug á að færa út kvíarnar og gefa út á landsvísu. Þetta er mitt annað tölublað og var ég all ánægður með út- komu fyrra blaðs og er bjart- sýnn á að blaðið, sem kemur á markað eftir helgina, seljist vel. Blaðið er 68 blaðsíður og þar af eru 18 í lit. Eintakið mun aðeins kosta 250 krónur. Ég skora á Suðurnesjamenn að kaupa Lífsþrótt, því ég trúi að flestir muni þar fínna eitthvað sem áhuga vekur og fróðleik gefur. Ef einhverjum líkar ekki efni blaðsins mun sá hinn sami að sjálfsögðu segja „nei“ næst þegar blaðið verður boðið til sölu. En mér finnst allt of al- gengt að fólk segi „nei“, áður en það hefur kynnt sér hvað til boða er.“ -Er gróðahugur í þér, Ólaf- ur? „Auðvitað vonast ég til þess að bera eitthvað úr býtum, enda liggur mikil vinna að baki. En samt sem áður skipar fræðsluhugsjónin veigameiri sess heldur en gróðasjónar- miðið. Ég trúi að með þessum hætti takist mér að ná til fjölda manns, sem ella hefði ekki náðst í, og kynna þeim mikil- vægi heilsuræktar og heilsu- verndar á alhliða heilsu og heilbrigði.“ -Eitthvað að lokum? „Ég vil koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem hafa stutt mig og aðstoðað við þessa útgáfu. Þá vona ég að Suðurnesjamenn sýni þessu framtaki áhuga og tryggi sér eiAtak, annaðhvort af sölu- fólki eða á einhverjum sölu- staða blaðsins." TEXTI OG MYND: Hilmar Bragi Bárðarson Útsýnisflug yfir Suðurnes! © Tölvuskóli FS Eftirtalin tölvunámskeið verða haldin í september ef næg þátttaka fæst. 1. Wordperfect-ritvinnsla. 16 stundir. Verð kr. 8.000. Tími: 6. sept. kl. 20-22 7. sept. kl. 20-22 8. sept. kl. 20-22 10. sept. kl. 10-16 11. sept. kl. 10-16 2. Almennt grunnnámskeið. 16 stundir. Verð kr. 8.000. Tími: 17. sept. kl. 9-16 18. sept. kl. 9-16 19. sept. kl. 20-22 20. sept. kl. 20-22 Innritun fer fram á skrifstofu skólans, sem jafnframt veitir allar nánari upplýsingar. Námskeiðsgjald greiðist við innritun. Skráning er ekki tekin í gegnum síma. Skrifstofan er opin frá kl. 8-16. Fjölbrautaskóli Suðumesja S Stöðupróf Stöðupróf í tölvufræði og vélritun verða haldin þriðjudaginn 6. september kl. 17:00. Skráningu lýkur þann dag kl. 12:00. Gjald kr. 500. Skólameistari Útivistartími barna Samkvæmt lögum um útivistartíma barna á tímabilinu 1. september til 1. maí, er börnum 12 ára og yngri ekki leyfilegt að vera á almannafæri eftir kl. 20 nema í fylgd með fullorðnum. Sömuleiðis er börnum yngri en 15 ára óheimil útivist eftir kl. 22 nema í fylgd með foreldrum eða á heimleið frá viðurkenndri æskulýðsstarfsemi. Bamavemdarnefnd Keflavíkur Gjaldheimtan innheimtir fyrir Njarðvík og Sandgerði Gjaldheimta Suðurnesja hefur tekið við innheimtu álagðra aðstöðugjalda og út- svara 1988 fyrir Njarðvíkur- bæ og Miðneshrepp. Að sögn Ásgeirs Jónssonar í gjald- heimtunni er hér um að ræða gjöld álögð 1988 vegna 1987 og útsvarsgjöld af öðrum tekjum en beinum launatekj- um, sem nú eru innheimt með staðgreiðslukerfinu. Önnur sveitarfélög á Suður- nesjum sjá ennþá um þessa innheimtu sjálf en vegna breytinga á rekstri hafa fyrr- nefnd sveitarfélög óskað eft- ir því að gjaldheimtan taki við innheimtu þessara gjalda um þessi mánaðamót. Um næstu áramót kemur gjaldheimtan svo til með að taka við innheimtu allra gjalda fyrir sveitarfélögin. Þó er óvíst með fasteigna- gjöldin sem sum hafajafnvel hug á að innheimta sjálf. I flestum sveitarfélögun- um eru nú í gangi hertar inn- heimtuaðgerðir á ógreiddum gjöldum. Eldur í bakarofni Lögreglu og slökkviliði var í síðustu viku tilkynnt um eld í íbúð við Ásabraut í Kellavík. Var eldurinn, sem reyndist vera í bakara- ofni, fíjótt slökkturán þess að verulegt tjón hlytist af. Afmæli Laugardaginn 3. september munBjörn Þórhallur Jóhannes- son halda upp á 21 árs afmæli sitt. Hann mun skála við vini og vandamenn í söngolíu á óþekkt- um stað og síðar það kvöld, að- dáendum til mikillar ánægju, mun hann láta sjá sig i Glaum- bergi. Holta- W skóli Skólastarf hefst með kennarafundi 1. september kl. 10:00. Nemendur komi í skólann sem hér segir: Þriðjudaginn 6. september: 9. bekkur mætir kl. 10:00 8. bekkur mætir kl. 11: 00 Miðvikudaginn 7. september: 7. bekkur mætir kl. 10:00 6. bekkur mætir kl. 11: 00 Athugið: Nemendurhafimeðsérblöð og skriffæri. Skólastjóri Flugfélagið Suðurflug verður með útsýnisflug fyrir Suðurnesjamenn laugardaginn 3. sept. og sunnudag- inn 4. sept. 500 kr. pr. mann. Sjáið skagann úr lofti! SUÐURFLUG HF. Keílavíkurflugvelli - Sími 92-5-7140 Leiguilug Kennsluflug Útsýnisflug Auglýsingaflug HARGREIÐSLUSTOFÁ SVANDISAR VALLÁRGÖTU11 SANDGERÐI . Permanent - Litanir Klippingar - Strípur olástur - Djúpnæringar Tímapantanir í síma 37850 - Verið velkomin. SVANDÍS GEORGSDÓTTIR hársnyrtir

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.