Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.10.1988, Side 1

Víkurfréttir - 13.10.1988, Side 1
Metsala hjá Hauki GK í Þýska- landi Sandgerðistogarinn Hauk- ur GK 25 átti á mánudag met- sölu í Bremerhaven í Þýska- landi. Var sala þessi hin hæsta hvað meðalverð varðar hjá togara frá síðustu áramótum. Seld voru þarna 150 tonn og 446 kg fyrir kr. 12.372.165. Var stærsti hluti aflans karfi og varð meðalverð kr. 82,24. Að sögn Eyþórs Jónssonar, útgerðarstjóra skipsins, er há- setahluturinn úr þessari veiði- ferð 180 þúsund krónur. Stokkavör gjaldþrota Enn eitt fiskvinnslufyrir- tækið á Suðurnesjum hefur nú verið tekið til gjaldþrota- skipta. Er það Stokkavör h.f. í Keflavík, en það var tekið til þessarar meðferðar á þriðju- dag. Stokkavör er fiskverkunar- fyrirtæki við Hrannargötu í Keflavík í húsnæði því sem Baldur h.f. hafði áður til um- ráða. Eldur í Gunnari Hámundar Skipverji sá, er fyrstur mætti til skips á Gunnari Hámund- arsyni GK aðfaranótt mið- vikudagsins, varð var við mik- inn reyk fram í bátnum og lét slökkvilið BS þegar vita. Tók slökkvistarfið skamma stund en eldsupptök voru í blásara við eldavél. Mun tjón aðallega hafa orðið í lúkarnum af völd- um reyks. ÍBK gjaldþrota? „Þetta er alvarlegasta mál sem komið hefur upp í íþrótta- hreyfingunni í Keflavík frá upphafi,“ sagði ónefndur for- ráðamaður í íþróttahreyfing- unni í Kefiavík um stóran skuldahala knattspyrnuráðs ÍBK. Ráðið ntun skulda um 8 milljónir króna. Reksturinn hefur verið í ntolum undanfar- in ár. Engu að síður hefur ekk- ert verið slakað á klónni og fyrir síðasta keppnistímahil, sem var að Ijúka, voru „keypt- ir“ leikmenn og dýr erlcndur þjálfari ráðinn. Menn standa ráðþrota frammi fyrir þessunt vanda. „A GÆSLO4 . Þessar litlu hnátur léku sér í makindum í rólunum á gæsluvellinum við Heiðarból í Keflavík. Hugmyndir eru uppi um það að honum verði breytt í leikskóla vegna lélegrar nýtingar á gæsluvöllum. Hnáturnar, þær Elva Björk, Sóley og Guðrún, hafa litlar áhyggjur af þcssum hugsanlcgu breytingum og halda áfram að leika sér í rólunum. Ljósm.: hbb. Lendir hann á bandalaginu eða niunu aðildarfélög þess, UMFK og KFK, taka skuld- irnar á sig? Eða lendir Kefla- víkurbær í súpunni? Sjá nán- ari umljöllun á bls. 2. Útvegsmiðstöðin búin að loka: Of dýrt að kaupa fisk á markaðnum Útvegsmiðstöðin h.f. í Kefiavík hefur sagt upp öllu starfsfólki sínu, um 35 manns, og lauk vinnslu í húsinu á mið- vikudag í síðustu viku. Að sögn Þorsteins Arnasonar eru ástæðurnar fyrir lokun fyrir- tækisins tvær. Önnur er sú að rækjuvinnslukvótinn er búinn, en verið er að kanna kaup á rækju erlendis frá, s.s. frá Kan- ada og Grænlandi. Hin ástæð- an er hið háa verð sem er nú á fiskmörkuðum. Um síðarnefnda atriðið sagði Þorsteinn orðrétt: ,,Við treystum okkur ekki til að vinna þann fisk sem við verð- um að kaupa á fiskmörkuðun- um, hann er okkur of dýr og málin ganga því ekki upp. Er því eins gott að loka húsinu ein því eins gott að loka húsinu eins og að vinna slíkt hráefni." Una í Garði tekin í landhelgi Una í Garði GK-100 var staðin að meintum ólöglegum veiðum út af Dýrafirði á þriðjudagskvöld. Reyndust möskvar í vörpunni vera of smáir. Varðskip fylgdi Unu til hafnar á lsafirði, en málið er í höndum sýslumannsins þar. Samkvæmt heimildum blaðsins var Una að veiða í siglingu og var að verða full- fermd þegar varðskip stöðv- aði veiðarnar. Útlendingar á atvinnuleysisskrá I verkamenn, sem starfaðhafa I Að sögn Hjördísar Árna- I Hjþrdís að um langvarandi I til búið væri að útvega þeim Við skoðun á atvinnuleys- hjá Brynjólfi hf. Hafa er- dóttur, félagsmálastjóra rekstrarstöðvun væri að aðra vinnu, ef einhverja isskrá í Njarðvík kemur í ljós lendu verkamennirnir misst Njarðvíkurbæjar, voru út- raíða hjá fyrirtækinu og væru vinnu væri að hafa. aðtólfafþrettánmanns.sem vinnuna í kjölfar uppsagna lendingarnir ráðnir til 19. þeir nú allir á atvinnuleysis- eru á skrá, eru erlendir | hjá fyrirtækinu. | febrúar á næsta ári. Sagði I skrá hjá Njarðvíkurbæ, þar |

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.