Víkurfréttir - 13.10.1988, Blaðsíða 7
VlHWAíutíu
Fimmtudagur 13. október 1988 7
Tipp-Topp:
Versl-
unar-
dyrnar
inn-
siglaðar
Að ósk skiptaréttar Reykja-
víkur hefur bæjarfógetinn í
Keflavík innsiglað dyr tísku-
verslunarinnar Tipp-Topp við
Tjarnargötu í Keflavík. Teng-
ist beiðni þessi gjaldþroti
Islensk-Portúgalska verslun-
arfélagsins í Reykjavík.
Innsiglið við innganginn í verslunina Tipp-Topp. Ljósm.: epj
Keflavík:
Gunnar Hámundarson GK
á toppnum
Mokfiskirí var hjá Gunnari
Hámundarsyni GK í net í síð-
ustu viku. Landaði hann 17,8
tonnum úr þremur róðrum.
Svanur kom næstur með 8,2
tonn úr jafnmörgum róðrum.
Búrfellið var efst á blaði
hvað varðar línubáta með 14,9
tonn en Barðinn og Albert Ól-
afsson voru báðir með 14,4
tonn. Vel gekk hjá Baldri á
snurvoð og fékk hann 15,4
tonn í voðina í síðustu viku.
Farsæll 13,4 tonn og Haförn
12,3, aðrir minna.
Landlega var hjá flestum í
þrjá daga vegna brælu og
handfærabátar lönduðu um
hálfu tonni í síðustu viku.
Bongóblíða var aftur á móti
um helgina og þá lönduðu
flestir handfærabátar hjá
kaupendum í Garði.
HÚSGAGNASPRAUTUN
- SPRAUTUM HÚSGÖGN,
flNNIHURÐIR OG MARGT FLEIRA
bílarétting
“T: m rs.'._: 4'íQAA A Ulc 1
Grófin 20A - Sími 13844 • Hs. 11868
ORÐSENDING
r' til húsbyggjenda
frá Hitaveitu Suðurnesja
Þeir húsbyggjendur, sem vilja fá hús
sín tengd hitaveitu eða rafveitu í haust
og vetur, þurfa að sækja um tengingu
sem fyrst og eigi síðar en 15. október
n.k. Hús verða ekki tengd nema þeim
hafi verið lokað á fullnægjandi hátt,
gólfplata steypt við inntaksstað og lóð
jöfnuð í skurðstæðinu. Með umsókn-
inni skal fylgja afstöðumynd.
Ef frost er í jörðu þarf húseigandi að
greiða aukakostnað sem af því leiðir að
leggja heimæðar við slíkar aðstæður.
Hitaveita Suðurnesja
Annar gúmmíbátanna sem sprengdur var upp. Ljósm.: hbb.
Hálf meðvit-
undarlausir
af pilluáti
Um helgina var brotist
inn i tvo björgunarbáta í
Keflavíkurhöfn og stolið
þaðan sjóveikistöflum.
Síðar var komið að tveim-
ur piltum, 16 og 17 ára
gömlum, hálfmeðvitund-
arlausum á götu í Keflavík.
Voru þeir þegar fluttir á
sjúkrahús og hresstust þar
fljótlega.
Kom í ljós að hér voru á
ferðinni þeir sömu og
höfðu farið í björgunarbát-
ana og höfðu þeir innbyrt
pillurnar ofan í víndrykkju
með fyrrgreindum afleið-
ingum.
ETRI
ÍLASALA
VEGNA MIKILLAR
SÖLU BRÁÐVANTAR
NÝLEGA BÍLA Á
SKRÁ OG Á STAÐINN
- OPIÐ Á LAUGARDÖGUM FRÁ KL. 13-17