Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.10.1988, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 13.10.1988, Blaðsíða 13
\>iKiin jtiUU „Með í mag- anum að koma upp byggða- safni“ - segir Ásgeir Hjálmarsson, sem safnað hefur gömlum hlutum Fimmtudagur 13. október 1988 13 Þessi áttæringur kom í safn Ásgeirs fyrr í sumar. Hann var byggður á Hvalsnesi árið 1912. Afi Ásgeirs, Oddur Jónsson í Presthúsum, gerði áttæringinn út í 12-14 ár, en þaðan fór hann til Keflavíkur og síðast gerður út af Gvendi á Garðstöðum allt fram á síðasta ár. Ljósm.:hbb. Síðustu ár hefur Ásgeir nokkur Hjálmarsson haft það áhugamál að safna hlutum sem heyra fortíðinni til og haldið þeim til haga. Við frétt- um af þessu áhugamáli Ás- geirs og því var ekki um annað að ræða en spjalla við mann- inn. „Undanfarin ár hef ég verið að safna að mér gömlum hlut- um, sem heyra fortíðinni til. Ég hef verið með í maganum að koma upp byggðasafni en hvort það er hægt í svona litlu byggðarlagi, eins og Garður- inn er, veit ég ekki. Hreppur- inn yrði að vera á bak við þetta. Ég hef rætt um þetta við menn en það vantar húsnæði.“ -Nú ert þú búinn að vera að safna að þér hlutum í nokkur ár. Hvaða hlutir eru þetta helst? „Þetta eru hlutir sem hætt er að nota, sem notaðir voru við sjósókn og tilheyrðu búskap- arháttum á fyrri tíð.“ Meðal þess sem Ásgeir á er áttæringur frá 1912, smíðaður á Hvalsnesi. Oddur Jónsson í Presthúsum átti m.a. bátinn í 12-14 ár, en þá var búið að setja í hann vél. Er báturinn mikill forngripur og hyggst Ásgeir reyna að koma bátnum í upprunalegt horf og ganga þannig frá honum að báturinn skemmist ekki meira en orðið er. „Ég vil endilega að fólk hafi samband við mig ef það á gamla hluti í geymslum, sem það vill halda í byggðarlaginu. Ég trúi ekki öðru en að það séu til fleiri hlutir en ég er búinn að safna að mér,“ sagði Ásgeir að lokum. Hraðf rystihús Keflavíkur hf.: Ingólfur Fals- son ráðinn Á stjórnarfundi í Hrað- frystihúsi Keflavíkur, sem haldinn var á mánudag, var samþykkt að ráða Ingólf Fals- son sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Tekur hann við stöðu þessari af Héðni Eyjólfs- syni. Er reiknað með að Ingólfur heQi störf hjá fyrirtækinu nú fljótlega, að sögn Gunnars Sveinssonar, stjórnarfor- manns H.K. Slender You er fyrir alla... LÍKA ÞIG! SUBARUog NIZZAN eru á leiðinni suður....

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.