Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.10.1988, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 13.10.1988, Qupperneq 16
16 Fimmtudagur 13. október 1988 EYJA- STUD I' FESTI Góð aðsókn Suðurncsjamanna sem og annarra var að Lundaballinu. Ljósm.: hpc. Þúsund lundar liðu ljúflega í munn og maga Eyjamanna á 15 ára lundaballi þeirra í Festi í Grindavík síðasta laugardag. Eyjapeyjar og píur á öllum aldri skemmtu sér konunglega við undirspil hljómsveitarinn- ar Eymenn, sem kom gagngert frá Eyjum og hingað á fasta- landið til að spila fyrir Eyja- menn og gesti þeirra, alls tæp- lega 300 manns, sem hittust þarna á lundaballi Félags Vestmanneyinga á Suðurnesj- um. Auk þess að halda upp á 15 ára afmæli félagsins var þess einnig minnst að jafn langur tími er liðinn frá gosinu á Heimaey. Þó hann blási oft mikið hér á Suðurnesjum, þá blés ekki síður í Festi í formi tóna, ræðu- halda og bundins máls, en fjöldasöngur einkennir ein- mitt mjög þau mannamót, þar sem Eyjamenn koma saman. Ekki sakaði að hafa jafn lif- andi veislustjóra og Árna Johnsen, sem þarna stjórnaði stemningunni með mikilli reisn. Réttara hefði verið að lýsa kvöldi þessu á öldum einhvers ljósvakans heldur en í blaði sem þessu, slíkt var fjörið. Hvað um það, við látum myndirnar tala, þær segja meira en fátækleg orð, en við- staddir voru þarna mynda- smiðirnir Helga Pétursdóttir og Emil Páll og hér er árang- urinn. Afgreiðslustarf r Oskum að ráða stúlku til afgreiðslu- starfa hálfan daginn. Upplýsingar í bakaríinu. Valgeirsbakarí, Njarðvík. Matsveinn eða háseti Matsvein eða háseta vantar strax á línubát. Upplýsingar í símum 15791 og 15792. Stjórn og skemmtinefnd Félags Vestmannaeyinga á Suðurnesjum, ásamt veislustjóra. F.v.: Bjarni Ólafsson, Guðrún Pétursdóttir, Guðmundur Ingólfsson, Brynja Pétursdóttir, Jón Valdimarsson og Árni Johnsen. Ljósm.:epj. Friður færir okkur aukinn þroska Lionshreyfingin hefur um áraraðir lagt ýmislegt af mörk- um til að stuðla að friði í heim- inum. Leiðin sem þessi öfluga alþjóðahreyfing hefur kosið að fara nú í friðarmálum er að beita sér fyrir samkeppni með- al ungs fólks um allan heim um teikningu friðarvegg- spjalds. Markmiðið með sam- keppninni er að hvetja ungt fólk til að tjá skoðanir sínar á heimsfriði. Kjörorð sam- keppntnnnar er: Friður færir okkur aukinn þroska. Samkeppnin um gerð friðar- veggspjaldsins er fyrir nem- endur grunnskóla í fimmta, sjötta og sjöunda bekk. I hverju byggðarlagi, þar sem starfandi eru Lionsklúbbar, verður leitað til ellefu, tólf og þrettán ára grunnskólanema og framkvæmd samkeppninn- ar kynnt þátttakendum og skólamönnum. Efnt er til keppni þessarar með sam- þykki Menntamálaráðuneytis- ins. Skilafrestur rennur út 1. nóvember n.k. Myndir þátt- takenda fara í gegnum þrjú keppnisstig, fyrst í hverjum skóla, síðan er frekari úr- vinnsla á tveimur stigum inn- an Lionshreyfmgarinnar. Ein mynd af hálfu Islands verður valin á lokastigi af fjölum- dæmi Lions og send utan í al- þjóðakeppnina. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þann er þau hlýtur, en all- ir þátttakendur fá viðurkenn- ingarskjal í hendur frá Lions- hreyfingunni. Sá keppandi, er hlýtur fyrstu verðlaun fær pen- ingaverðlaun (um 23-25 þús. krónur) og ferð til New York fyrir sig og tvo fjölskyldumeð- limi. I New York verða verð- launin afhent í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna á „Degi Lions með Sameinuðu þjóðun- um“, sem er 13. mars 1989. Lionshreyfingin væntir góðs samstarfs við unga fólkið undir kjörorðinu: Friður færir okkur aukinn þroska. Lionessuklúbbur Keflavíkur Lionsklúbburinn Oðinn Ibúðir fyrir aldraða Þeir sem hafa áhuga fyrir íbúðum í fyrirhugaðri byggingu íbúða aldraðra sem Keflavíkurbær hyggst byggja á næsta ári, sæki um á Félagsmálastofnun, Hafnargötu 32, fyrir 1. nóv. næstkomandi. Eldri umsóknir eru í gildi. Félagsmálastjóri Þessar stúlkur héldu nýlega hlutaveltu í Keflavík og söfnuðu 1.455 krónum, sem þær hafa fært Sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishéraðs að gjöf. Þær heita Vigdís Jóhannsdóttir, Iris Ósk Kristjánsdóttir og Alda Jónsdóttir. Ljósm.: hbb

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.