Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.11.1988, Page 13

Víkurfréttir - 10.11.1988, Page 13
\)iKur< jutUt Atriði úr Spæjaranum. Ingimundur Magnússon, Jón Ragnar Ást þórsson og Sóiveig Pétursdóttir. Ljósm.: hbb. Litla leikfélagið, Garði: Ástæðu- laus ótti Litla leikfélagið í Garði frumsýndi um síðustu helgi þrjá einþáttunga eftir þýska leikritahöfundinn Bertolt Brecht, Himnaríki Hitlers eða Ótti og eymd Þriðja rík- isins. Himnaríki Hitlers er 22. verkefni Litla leikfélags- ins frá því það var stofnað fyrir tólf árum. Einþáttungarnir gerast allir í Þýskalandi á tímabil- inu frá 1933 til 1935, sá fyrsti Gyðingakonan í Frankfurt árið 1935, Spæjarinn í Köln 1935 og síðasti einþáttungur- inn, Krítarkrossinn, í Berlín 1933. Ellefu leikarar fara með hlutverk í leikverki þessu, sem fjallar um „andnas- isma“ á stríðsárunum. Mörg ný andlit sjást á sviðinu að þessu sinni, leikarar sem hafa ekki leikið með félaginu í nokkurn tíma, auk tveggja leikara sem ekki hafa leikið með Litla leikfélaginu áður. Leikstjóranum, Þóri Steingrimssyni, hefur tekist vel upp með leikurunum og hefur fengið þá til þess að sýna sitt besta. Himnaríki Hitlers eða Ótti og eymd Þriðja ríkisins er ekki gamanleikur, heldur verk sem flytur boðskap og heldur vissri spennu í áhorf- andanum frá upphafi til enda sýningar. Nú á tímum sjónvarps og útvarps, sem glymur i eyrum landsmanna hvern einasta dag, er vel þess virði að skella sér á sýningu hjá Litla leik- félaginu í Garði. Það er ástæðulaust að óttast að þú verðir fyrir vonbrigðum með kvöldstund í kaffihúsastíl í Garðinum. Leikfélagsfólk, til hamingju með sýninguna. „Beltið bjarg- aði mér“ S.l. föstudag, 4. nóvember, var ég að aka niður Vestur- götu. Nokkru áður en ég nálg- ast gatnamót Kirkjuvegar gaf ég stefnuljós til vinstri. Þegar ég er nýbyrjaður að beygja kom bifreið á mikilli ferð aftan á hægra horn stuðarins með þeim afleiðingum að bifreið mín snerist í hálfhring. Við höggið skall ég með höf- uðið í stýrið, með þeim afleið- ingum að það kom skurður á vinstri augabrún. Var ég keyrður strax upp á sjúkrahús, þar sem skurðurinn var saum- aður. Astæðan fyrir því að ég segi frá þessu er sú, að ef ég hefði ekki verið í bílbeltum hefði ég lent á framrúðunni og skorist meira eða minna og hefði e.t.v. ekki verið til frásagnar. Daglega heyrast og sjást fréttir í fjölmiðlum, þar sem sagt er frá stórum og smáum slysum í umferðinni, sem í sumum tilfellum hefðu verið sársaukaminni ef allir væru í bílbeltum. Mörgum finnst ekki taka því að setja á sig belti þegar ekið er innanbæjar. Slys- in gera ekki boð á undan sér. Munið að spenna beltin áð- ur en þið akið af stað, hvort sem leiðin er stutt eða löng. Tökum höndum saman sem einn maður og forðum slysum með aðgát í akstri og högum akstri eftir aðstæðum að nóttu sem degi. Þú veist aldrei hve- nær kemur að þér. Foreldrar: Framundan er svartasta skammdegið og allra veðra von. Látið börnin aldrei fara út á göturnar, í skólann eða út í búð, án þess að næla á þau sjálflýsandi merki. Það gæti bjargað lífi þeirra. Gleymum ei þeim góða sið á göngu ykkar um veginn, að gefa börnum góðan frið við götuna beggja megin. Páll Þór Jónsson Fimmtudagur 10. nóvember 1988 13 Margrét (Sossa) Björnsdóttir við tvö verka sinna. Göð aðsökn hjð Sossu Fjölmennt var við opnun myndlistarsýningar Margrét- ar Soffíu Björnsdóttur, Sossu, í sal Innrömmunar Suðurnesja á laugardag. Margrét vinnur sínar mynd- ir í þurrnál með sérstakri lita- meðferð. Sýningin í sal Inn- römmunar Suðurnesja er fjórða einkasýning Sossu, en einnig hefur hún tekið þátt í mörgum samsýningum, bæði hérlendis og erlendis. Eins og áður hefur komið fram í blaðinu er sýningin opin til 13. nóvember, frá kl. 13 til 18 virka daga og 14-21 um helgar. gæða parket PARKETHLIFAR 6 stærðir - 660 kr. pk. r 10 pör í pk. jdiopinn HAFNARGÖTU 90 230 KEFLAVÍK SÍMI 14790 VARI leysir vandann með sjálfvirkum öryggisbúnaði er hentar sérhverjum aðstæðum á m Brunavarnakerfi og sjálfvirk slökkvi- kerfi. Sjálfvirk þjófavarnakerfi tengd öryggismiösföö. ✓ Sjálfvirkir vatnsskynjarar tengdir öryggismiöstöö. Peningaskápar - læsingar - aögangskerfi (töluborðogaðgangs- kort) Sérfræðingar okkar verða á Suðurnesjum eftir helgina og gera tillögur og kostnaðaráætlanir fyrir þá er þess óska, án allra skuldbindinga og kostnaðar. Hafðu samband við öryggismiðstöð okkar sem er opin allan sólahringinn og bókaðu tíma í síma 91-29399. Eftirtaldir aöilar eru meöal þeirra fjölmörgu fyrirtækja á Suöurnesjum sem notfæra sér nú þjónustu Vara á sviöi öryggismála: Trésmiöja Þorvaldar Ólafssonar Apótek Keflavíkur Apótek Grindavíkur Aldan Sandgerði Golfklúbbur Suðurnesja Skipaafgreiðsla Suðurnesja Vöruafgreiðslan Iðavöllum Tryggingarmiðstöðin Bókhaldsþjónustan Sævar Reynisson Hárgreiðslustofan Brá Póstur og Simi Keflavik íslenskur markaður Iðavöllum VARI, sérhæfð öryggisþjónusta Þóroddsstöðum, v/Skógarhlíð, Pósthólf 1101, 121 Reykjavík, sími 91-29939 ### 29.104 augljós

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.