Víkurfréttir - 10.11.1988, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 10. nóvember 1988
mun
jUOU
Körfufréttir:
Annnað
tap ÍBK
Keflvíkingar töpuðu óvænt
fyrir nýliðum Tindastóls á
Sauðárkróki á sunnudags-
kvöldið 76:85, eftir að heima-
menn höfðu leitt í leikhléi 52:39.
ÍBK náði aldrei að sýna sitt
rétta „andlit". Tindastolsmenn
léku skynsamlega og unnu
sanngjarnt. Sigurður Ingi-
mundarson skoraði mest
ásamt Guðjóni Skúlasyni, 20
stig hvor.
Sigur hjá
Grindavík
Grindvíkingar fóru góða ferð
norður og sigruðu þar Þór á Ak-
ureyri 68:78. Guðmundur
Bragason var stigahæstur
UMFG með 24 stig.
Reynir
vann
1. deildarlið Reynis í körfu-
knattleik lék gegn Breiðabliki
um helgina og sigraði örugg-
lega 75:50.
Úrslit á þriðjudag:
Valur - UMFN .. 83:92
UMFG-IS .... 81:65
Anna María Sveinsdóttir
íslandsmeisturum ÍBK í
körfuknattleik kvenna hefur
gengið mjög vel það sem af er
timabilinu og hafa þær unnið
alla sína leiki, eða fjóra tals-
ins. Þær unnu Hauka 71:60,
Njarðvík 42:32, Grindavík
65:34 og ÍS 58:28. Þjálfari
stúlknanna er enginn annar en
íþróttakennarinn Jón Kr.
Gíslason, einn af máttarstólp-
um karlaliðs ÍBK í körfu. Til
að forvitnast nánar um körfu-
boltann hjá stelpunum þótti
við hæfi að taka einn máttar-
stólpa liðsins tali, en það er
Anna María Sveinsdóttir.
„Deildin leggst bara mjög
vel í okkur og við ætlum okk-
ur ekkert annað en sigur
annað árið í röð. ÍS-stelpurn-
ar, sem voru sterkar í fyrra,
reyndust slakari en við áttum
von á en KR-ingar og ÍR-
ingar geta örugglega orðið
erfiðir mótherjar."
-Hvernig hafa þessir leikir
gengið það sem af er?
„Þeir hafa yfirleitt gengið
ágætlega, nema helst leikur-
inn á móti Njarðvík, sem var
afleitur. Þaðgekkekkert upp
og við hittum illa. Hins vegar
má segja að Njarðvíkur-
stelpurnar hafi tekið miklum
framförum frá því í fyrra.“
-Hvenær byrjaðir þú í
körfunni?
„Ætli ég hafi ekki byrjað
þegar égvarsvona 11-12 ára
Anna María fagnar hér sigri í íslandsmótinu í fyrra, ásamt vin-
konu sinni og meðherja í körfunni, Björgu Hafsteinsdóttur.
og hef æft alveg stíft síðan.
Ég hef verið í fótbolta á
sumrin og körfu á veturna,
en núna æfi ég líka hand-
bolta með meistarafiokki
ÍBK sem leikur í 2. deild.“
-Hvernig gengur í hand-
boltanum?
„Það hefur gengið ágæt-
lega þar sem af er í handbolt-
anum. Við höfum unnið þrjá
leiki og gert eitt jafntefli. Við
höfum mjög góðan þjálfara
núna, Olaf Lárusson, og með
sama áframhaldi eigum við
jafnvel möguleika á sæti í 1.
deild.“
-Er ekki erfitt að samræma
báðar íþróttirnar og er þetta
ekki tímafrekt?
„Mér hefur ekþi reynst
það erfitt að samræma þess-
ar íþróttir, en hitt er annað
mál að þetta er frekar tíma-
frekt og tekur mikinn tíma
frá lærdómnum.Égeráupp-
eldisbraut í FS og það má
segja að námið sitji svona
frekar á hakanum,“ sagði
Anna María Sveinsdóttir
íþróttagarpur að lokum.
Anna María skorar hér í
handboltalvik.
fmælisafsláttur á
ðalstöðinni
I tilefni 40 ára
afmælis Aðal-
stöðvarinnar
bjóðum við 10%
afslátt í bíla-
þvottastöð út
nóvembermánuð
-þjónusta í 40 ár