Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.11.1988, Page 19

Víkurfréttir - 10.11.1988, Page 19
\>iKun juíUt Fimmtudagur 10. nóvember 1988 19 Smáauglýsingar I.O.O.F. 13=17011148‘/2=E1. Úrbeining Tökum að okkur úrbeiningu. Uppl. í síma 14248. Sauma gardínur Tek að mér að sauma gardín- ur. Adda, sími 11407. íbúð til leigu 3jaherb. íbúðá l.hæðíblokk, sérinngangur, til leigu. Leig- ist í 3 ár. Uppl. í síma 13371. Ibúð til leigu 2ja herb. íbúð til leigu við Heiðarból í Keflavík. Uppl. í síma 91-53424. Dömur athugið Hef nú fengið ailar tegundir af Microdiet vörunum. Hafið samband. Jóhanna Kristins, Miðtúni 2, sími 11661. Barnavagn til sölu Silver Cross barnavagn til sölu, stærri gerðin. Uppl. í síma 12042. Til sölu Plus sófasett 3+2+1. Á sama stað Snowcap ísskápur, selst ódýrt. Uppl. í síma 13259. Stórmót Knattborðsstofu Suðurnesja og Gleraugnaverslunar Keflavíkur: Opna Suðurnesjamótið í snóker Stærsta snókermót, sem hald- ið hefur verið i Keflavík, verður á Knattborðsstofu Suðurnesja um helgina. Stórglæsileg verð- laun eru í boði fyrirfjögurfyrstu sætin í mótinu, svo og fyrir hæsta skorið. Það eru Gler- augnaverslun Keflavíkur og Knattborðsstofa Suðurnesja Til sölu efri koja skrifborði mjög vel 12385. með sambyggðu og fataskáp, lítur út. Uppl. í síma Lada st. til sölu Lada 1500 st. árg. ’87, ekinn aðeins 15.000 km, grjótgrind, dráttarkúla, sumar- og vetrar- dekk. Uppl. í vs. 13588 og hs. 14455. Til sölu Pioneer magnari, kasettu- tæki og geislaspilari, ásamt 2 100 watta hátölurum. Nánari upplýsingar í síma 14198 á milli kl. 19og20ogákvöldin. Opið hús Bahá’iar í Keflavík og Njarð- vík verða reglulega með opið hús á mánudagskvöldum kl. hálf níu að Túngötu 11 í Keflavík, þar sem sjónarmið Bahá’i trúarinnar til ýmissa málefna verða kynnt. Andlegt svæðisráð Bahá’ia Börkur Birgisson verður í eldlínunni í Opna Suðurnesjamótinu í snóker um helgina. Ljósm.: hbb. Barnasöngleikurinn „Eldmeyjan" I Stapa N.k. sunnudag, 13. nóv- ember kl. 14:00, munu kór og hljómsveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar flytja barna- söngleikinn Eldmeyjan eftir Robert Long, í boði Tónlistar- skóla Njarðvíkur. Um það bil 60 manna hópur nemenda á aldrinum 8 til 18 ára setur verkið upp á sviði félagsheim- ilisins Stapa. Eldmeyjan er nokkuð viða- mikið verk og fyrir utan ein- söngvara, kór og hljómsveit, er notuð sviðsmynd ásamt búningum, hljóðkerfi ogljósa- kerfi. Stjórnendur eru Guðrún Ásbjörnsdóttir og Kristjana Ásgeirsdóttir, báðar kennarar við Tónlistarskóla Hafnar- fjarðar, og tekur sýningin u.þ.b. eina og hálfa klukku- stund í flutningi, með stuttu hléi. Til gamans má geta þess að Guðrún Ásbjörnsdóttir er Njarðvíkingur. Eldmeyjan var frumflutt í Bæjarbíói, Hafnarfirði, s.l. vor af þessum sama hópi nem- enda T.H. við góðar undirtekt- ir áheyrenda. Tónlistarskóli Njarðvíkur býður börnum og unglingum á Suðurnesjumáþessaskemmti- legu sýningu, kennurum og öðru áhugafólki um barna- fræðslu, svo og öðrum Suður- nesjabúum. Sérstaklega mega tónlistarnemendur á svæðinu ekki láta Eldmeyjuna fram hjá sér fara. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill meðan húsrúm leyfir. Þessi sýning er gott dæmi um hvað gera má mikið með börnum og unglingum. Með kveðju, Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri. Sigurvegararnir reyna með sér Getraunaleikur Víkur- frétta hefst nú á nýjan leik með því að sigurvegararnir frá í fyrra, Gísli Heiðarsson og Jón Halldórsson, reyna mcð sér í fyrstu umferð. Það hefur verið viðtekin venja að sigurvegarar frá tímabilinu áður hafa fengið tækifæri á að verja titilinn. Gísli tippaði um síðustu helgi og segist ánægður með breytingarnar á fyrirkomu- laginu. ,,Mér gekk að visu ekki vel í fyrstu umferð, fékk aðeins 6 rétta” sagði Gísli. Jón gleymdi sér fyrir síðustu helgi en sagðist einnig vera mjög ánægður með nýja seð- ilinn. „Eg hef trú á þvi að þátttaka í getraunum eigi eftir að aukast rnikið” sagði Jón. Eins og getraunaspeking- ar hafa séð eða heyrt, þá hef- ur getraunaseðillinn tekið stökkbreytingum til hins betra. Útfærsla hans er ekki ólík lottóseðli enda eru sömu töivukassar notaðir, og seðl- ar fást á sjoppum. Ein veru- leg breyting í átt til batnaðar er að skilafrestur rennur nú ekki út fyrr en kl. 13 á laug- ardögum og munar urn minna fyrir þá sem búa utan Reykjavíkur. Við höfum þetta ekki lengra að sinni en minnum tippara á að muna eftir félagsnúmerinu þegaf þeir fylla út seðilinn. Jón (íísli .1. G. 1. Charlton-Everton X 2 2. Coventry-Luton 1 1 3. Derby-Manch.Utd. X 1 4. Liverpool-Millwall 1 1 5. Middlesbr.-Q.P.R. 1 1 6. Newcastle-Arsenal 2 2 7. Norwich-Sheff.Wed. 1 1 8. Southampt.-Aston V. 1 1 9. Tottenh.-Wimbled. 1 1 10. West Ham-Nott. For. X 1 11. Lceds-W.B.A. 2 2 12. Manch. City-Watford 1 X sem standa saman að mótinu. Leikið er með útsláttarfyrir- komulagi (fjórir leikir unnir) en sjálfur úrslitaleikur mótsins verður sýndur í beinni útsend- ingu í Ríkissjónvarpinu, laugar- daginn 19. nóvember. Þetta verður í fyrsta skipti sem Ríkis- sjónvarpið sýnir beint frá snók- er hér á landi og er það skemmti- legt fyrir okkur Suðurnesja- menn. Búist er við um 60 þátt- takendum en allir, sem einhvern tíma hafa komið við kjuða, geta tekið þátt í mótinu. Allir bestu snókerspilarar landsins hafa skráð sig til þátttöku en að öllum líkindum koma þeir ekki inn í mótið fyrr en í 2. eða 3. umferð. Þátttökugjald er 2000 kr. en helmingi minna fyrir 16 ára og yngri eða 1000 kr. Það er óhætt að spá því að ein- hverjir Suðurnesjamenn verði í efstu sætunum því mikil upp- sveifla hefur verið í íþróttinni. Að sjálfsögðu eru þeir líklegastir til að blanda sér í toppbaráttuna þeir Börkur Birgisson og Tómas Marteinsson, en á eftir þeim koma margir snjallir spilarar, yngri sem eldri. Skipstjóri Skipstjóra vantar á 15 tonna bát, strax, sem rær frá Sandgerði. Uppl. í síma 37558. VORONN 1989 Innritun nýnema á vorönn 1989 er hafin og lýkur 10. desember 1988. Hársnyrtibraut - 3. stig. r A vorönn 1989 verður kennt 3. stig hárgreiðslu ef næg þátttaka fæst. Umsóknir berist skrifstofu FS fyrir 10. desember 1988. Vélaverðir - Vélstjórn 2. stig. Á vorönn 1989 verður kennt á námsbraut VÉLAVARÐA ef næg þátttaka fæst. Námið tekur eina önn (lýkur í maí 1989) og veitir vél- stjórnarréttindi á skip með allt að 220 KW (300 HÖ) vélar. Innritun lýkur 10. desember 1988. Þá verð- ur kennt til 2. stigs vélstjórnar en það veitir vélstjórnarréttindi á skip með allt að 750 KW og tekur 4 ann- ir (2 ár). Sjúkraliðanám Á vorönn 1989 verður kennt á námsbraut sjúkraliða. Námiðerað mestu verklegt og lýkur um ára- mót 1989/90. Námið veitir full réttindi sjúkraliða. Skólameistari

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.