Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.05.1989, Qupperneq 7

Víkurfréttir - 05.05.1989, Qupperneq 7
Föstudagur 5. maí 1989 7 ERTU FATALAUS? -það er óþarfí! Full búð af nýjum barnafötum, sumarbolum, gallabuxum og sundfatnaði. Eitthvað fyrir alla! Sandgerði Verslið þegar ykkur hentar. Opið til kl. 23 öll kvöld. Sími 37415. Bunky. , sem Rósa, og Egill Egilsson í hlutverki Hvað segir mamma við því?: Vel heppnuð leiksýning Litla leikfélagið í Garði frumsýndi í síðustu viku gaman- leikinn Hvað segir mamma við því? eftir einn þekktasta Samhjálp kvenna Félagsskapurinn Sam- hjálp kvenna á Suðurnesjum stendur fyrir opnu húsi á Flug Hóteli næsta þriðjudag, þann 9. maí, kl. 20:30. Félag þetta er elsti stuðningsaðili landsins með aðild að Krabbameinsfélaginu. En félagið er fyrir konur sem gengist hafa undir brjóstaað- gerð og var stofnað 1979. A opnu húsi mun Sigurður Björnsson flytja erindi um brjóstakrabbamein. Þá munu konur úr Samhjálp kvenna í Reykjavík mæta á fundinn og rekja sögu Sam- hjálpar. Eru konur hvattar til að mæta vel og taka með sér gesti. skemmtunarmann ísraela, Ephraim Kishon, en bæði sögur og leikrit eftir hann hafa verið þýdd á fjölda tungumála. Sex leikarar koma fram í sýningunni ásamt tríói sem kallast Kibbúts. Leikstjóri er Edda V. Guðmundsdóttir. Gamanleikurinn gerist allur í borðstofunni hjá „hjónun- um“ Daníel og Ellu, sem leikin eru af Sigfúsi Dýrfjörð og Sig- urbjörgu Ragnarsdóttur. Pípulagningameistarinn Daníel, sem Sigfús Dýrfjörð leikur (t.h.), ásamt þeim Gunnrúnu Theodórs- dóttur (t.v.) sem Vicky, og Sigurbjörgu Ragnarsdóttur, sem eiginkona Daníels, Ella. Ljósmyndir: hbb.. Dóttir þeirra, Vicky (Gunn- rún Theodórsdóttir), er að fara að gifta sig Róberti nokkrum, sem kemur úr strangtrúaðri fjölskyldu. Róbert er leikinn af Braga Einarssyni. Leikverkið snýst aðallega um pappíra sem móðir brúð- gumans heimtar að fá í hendur áður en hún leggur endanlega blessun sína yfir ráðahag hinna væntanlegu hjóna. Fjölskyldufaðirinn gerir grín að öllu saman og tekur þessu létt, en þegar í ljós kem- ur að þau „hjón“ hafa ekkert vígsluvottorð í höndunum, vegna þess að ekki gafst tími fyrir giftingu fyrir 25 árum vegna bilaðrar 65 hestafla dælu, þá fer gamanið að kárna. Inn í þennan gamanleik, sem er uppfullur af glensi og gamni frá upphafi til síðustu mínútu, fléttast síðan Rósa nokkur, sem leikin er af Guðnýju S. Harðardóttur og Bunky, sem leikinn er af Agli Egilssyni. Eg vil nota hér tækifærið og þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessari sýningu fyrir frábæra skemmtun, en allir leikarar komust hnökralaust í gegnum verkið og léku af miklu öryggi. Það er vonandi að sem flest- ir Suðurnesjamenn sjái sér fært að fara í leikhús í kaffihúsastíl hjá Litla leikfélaginu í Garði, því leikararnir eiga það svo sannarlega skiiið. Hilmar Bragi Bárðarson ,Viltu flétta saman mitt líf og þitt?“ NÚ ER ÞAÐ EUROVISIONDAGURINN 6. MAÍ MUNIÐ OKKAR VINSÆLU SKYNDIRÉTTI EÍdbakaðar pizzur, kjúklínga- bitar og margt fleira. HeiSdSavík cími14777

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.