Víkurfréttir - 05.05.1989, Blaðsíða 8
8 Föstudagur 5. mai 1989
mur<
(UWt
molar
Grín - Gagnrýni - Vangaveltur
Umsjón: Emil Páll
Dugnaður
við krabbann
Þeir félagar Eiríkur H. Ól-
afsson og Þorbjörn Daníels-
son hafa sem kunnugt er ver-
ið ötulir við að koma í verð-
mæti ýmsum lítið nýttum
sjávardýrum s.s. Kónga-
snigli o.fl. Þeir félagar eru
svo sannarlega ekki af baki
dottnir, því nú berast fréttir
af því að þeir hafi á dögunum
keypt krabbaverksmiðju
ofan af Skaga og flutt vélarn-
ar í verksmiðju sína í Sand-
gerði. Þá munu þeir hafa fest
kaup á 2000 krabbagildrum,
fengið humarleyfi og eru nú
u.þ.b. að senda loðnuskipið
Keflvíking með gildrurnar út
til að fanga lifandi humar,
sem verður fluttur þannig á
markað í Japan. Verður skip
þetta hið stærsta sem stund-
að hefur humarveiðar hér við
land.
Við eigum samlcið
Það var vel við hæfi, svona
skömmu eftirað bítlabærinn
Keflavík hélt upp á 40 ára af-
mæli sitt, að eini Keflvíking-
urinn í keppninni um Lands-
lagið ’89 skyldi sigra. Er Jó-
hann G. Jóhannsson vel að
sigrinum kominn með lag
sitt Við eigum samleið. Við
hér í bítlabænum sendum
honum því kveðju okkar.
Annars áttum við fleiri full-
trúa á staðnum, m.a. dans-
höfundinn Níels Einarsson
(Söring) og a.m.k. tveir af
þeim sem fram komu í tísku-
sýningunni eru héðan að
sunnan, þeir Þórir Telló og
annar til, sem Molahöfund-
ur man því miðurekki nafnið
á að sinni, en bætir úr því
þegar það kemur upp.
Undirbýður Spari-
sjóðurinn SBK?
Nokkur umræða hefur
verið um rútu frá Akranesi
sem ók með ferðahóp frá
Keflavík á dögunum. Hefur
nú komið í Ijós að umrædd
bifreið var í raun keypt frá
Steindóri á sínum tíma og
það sem meira er, þá er eig-
andi hennar sagður skulda
Sparisjóðnum í Keflavík allt
kaupverðið og því sé það í
raun Sparisjóðurinn sem eigi
bílinn en ekki viðkomandi
Skagamaður.
...og hvað meinar
KFUM og K?
Segir sagan að sá félags-
hópur, sem í þessu tilfelli
hafi leitað viðskipta við
Akranesbílinn, sé KFUM og
K í Keflavík. Hafa heyrst
fregnir af því að hugur bæj-
aryfirvalda í garð viðkom-
andi félagasamtaka sé allt
annað en góður, eftir að upp-
lýst var að þeir hafi ávallt
farið með viðskipti sín út
fyrir bæinn, en þó fengið
styrki frá bænum vegna hús-
næðis í þeirra eigu m.a.
Valdið á
fárra höndum...
Sjóefnavinnslan h.f. er
fyrirtæki sem er í eigu mjög
margra, þó einn aðili, Hita-
veita Suðurnesja, sé þar lang
stærsti hluthafinn. Síðasta
föstudag var aðalfundur
fyrirtækisins haldinn í Festi í
Grindavík að viðstöddum
níu manns. Af þessum níu
voru sjö sem tengdust stjórn
eða varastjórn, einn endur-
skoðandi og einn almennur
hluthafi, sem er utan þessa
hóps en mætti þó þarna
fremur sem blaðamaður.
Þrátt fyrir að mætingin hafi
verið dræm höfðu viðstaddir
umboð 99,9% hlutafjár, því
fulltrúi Hitaveitunnar einn-
ar hefur á bak við sig 98,8%
hlutafjár.
...hækkuðu við
sig launin
Þó Sjóefnavinnslan hafi
tapað miklum fjármunum á
síðasta ári bar fráfarandi for-
maður upp tillögu um hækk-
un á þóknun til stjórnar-
manna. Jón Gunnar Stef-
ánsson, en svo heitir maður-
inn, lagði tilaðstjórnarmenn
fengju 4% af þingfararkaupi
á mánuði fyrir setu í stjórn-
inni og formaðurinn tvö-
falda þá upphæð. Fær hver
stjórnarmaður því um 5000
kr. fyrir fundarsetu á mán-
uði og formaður 10.000. Var
tillagan samþykkt með at-
kvæðum þeirra sem fyrir eru
í stjórn og varastjórn en eini
almenni hluthafinn sem sat
fundinn sat hjá að sjálf-
sögðu.
Sveitarfélögin
valda vonbrigðum
I máli Jóns Gunnars Stef-
ánssonar, stjórnarformanns
Sjóefnavinnslunnar h.f., á
aðalfundinum á dögunum
kom fram að það hefði vald-
ið stjórninni vonbrigðum að
ekki hefur náðst samkomu-
lag um greiðslu hlutafjár og
skiptingu aðstöðugjalda
milli sveitarfélaganna, sem í
upphafi keyptu land og hita-
réttindi á Reykjanesinu.
Vegna þessa var upplýst að
Njaðrvíkurbær skuldaði enn
kr. 1.065.685 í hlutafé.
Rólegur fundur
Sérleyfisnefnd Keflavíkur
og bæjarfulltrúar í Keflavík
héldu í síðustu viku fund
með starfsfólki SBK, bæði
þeim gömlu og þeim armi
sem kom frá Steindóri. Var
hugmyndin að talað yrði
hreint út svo lægja mætti all-
ar öldur, þar sem orðið hafði
vart urgs meðal starfsmanna
í garð hvors hóps fyrir sig.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
fékkst enginn óánægja upp á
yfirborðið og lauk fundi því
á rólegri nótunum. Er þess
því vænst að hóparnir jafni
sig og samstarfið gangi vel,
enda hefur starfsmannahópi
Steindórs nú verið lofað
störfum a.m.k. fram á haust.
Jóhanna Sigurðardóttir
Lítill baráttuandi
Þó talað hafi verið um há-
tíðar- og baráttufund í Stapa
á 1. maí fór lítið fyrir bar-
áttuandanum. Fremur var
um huggulega menningar-
samkomu að ræða þar sem
félagsmálaráðherra flutti
enn eina pólitísku ræðuna
um húsbréfafrumvarpið sitt,
málefni sem flestir launþeg-
ar eru fyrir löngu orðnirleið-
ir á að hlusta á, enda búið að
tröllríða fjölmiðlum að und-
anförnu, þó frumvarpið sé
trúlega gott út af fyrir sig.
Vegna ávarpsins mættu
dyggustu flokksbræður
ráðherrans til að hlýða á,
jafnvel menn sem eiga dag-
lega lítið sameiginlegt með
verkalýðsstéttinni. Kannski
er þetta það sem koma skal á
1. maí. Engin kröfuspjöld á
lofti, engin kröfuganga, að-
eins góðar menningarsam-
komur þar sem fólk gleymir
stund og stað við góð veislu-
föng. Þar sem hlustað er á
ræðuhöld sem segja ósköp
lítið, eða pólitískar fram-
boðsræður.
Bæjaryfirvöld beiti sér gegn
fækkun lögregluþjóna
rýni sem fram hefur komið
og telur vafalaust, og reynd-
ar þegar fram komið, að
hraðaakstur og önnur um-
ferðarlagabrot muni færast í
aukana þegar dregið er úr
eftirliti. Því skorar nefndin á
bæjaryfirvöld að beita sér
fyrir því að fækkunin nái
ekki fram að ganga.
MESSUR
Keflavíkurkirkja
Laugardagur 6. maí:
Jarðarför Guðrúnar St. Berg-
mann, Sólvallagötu 6, Keflavík,
fer fram kl. 14.
Sunnudagur 7. maí:
Guðsþjónusta kl. 11. Hádegis-
verður í Kirkjulundi eftir messu og
síðan aðalsafnaðarfundur, þar
sem m.a. verður tekið fyrir 6. mál
Kirkjuþings 1988 um skipan
prestakalla og prófastsdæma.
Sóknarprestur
Þorri sveitarfélaga á Suð-
urnesjum hafa ályktað um
þá fyrirætlan stjórnvalda að
fækka í lögregluliðinu á Suð-
urnesjum um atta lögreglu-
þjóna og gagnrýnt það harð-
lega. Umferðarnefnd Kefla-
víkur tekur undir þá gagn-
SKIPTING
GRÓFIN 19, 230 KEFLAVÍK, SÍMI 92-13773 —
• Almennar bílaviðgeröir
• Sjálfskiptingar
• SUN-vélastillingar
• Bremsuviðgerðir
Mikið úrval af varahlutum:
• í bremsukerfi
• í kveikjukerfi
• í sjálfskiptingar
Hjöruliðskrossar og legur - Pakkdósir
Úrval smáhluta - þurrkublöð, viftureimar
o.fl.
DRATTARBÍLL
ALLTAF TIL TAKS.
Bílas. 985-23774
Verkst. 13773