Víkurfréttir - 05.05.1989, Blaðsíða 20
Föstudagur 5. maí 1989
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717.
I—!)= œ ffl ,
im gg nn m
BB
Útlit í norður (Faxabraut).
Viðbyggingin við Hlévang:
i Mýjar tillögur fá
g ððar undirtektir
Keflavík:
Rekstur sund-
miðstöðvar
boðinn út?
Garðar Oddgeirsson, bæj-
arfulltrúi, lagði fram til-
lögu á fundi bæjarstjórnar
Kellavíkur á þriðjudag þess
efnis að kosin yrði 3ja manna
nefnd til að kanna
hagkvæmni þess að bjóða út
rekstur sundmiðstöðvarinn-
ar og nýja dagheimilisins við
Heiðarbraut í Keflavík. Var
samþykkt með öllumgreidd-
um atkvæðum að vísa tillögu
þessari til bæjarráðs.
Hlutafélag
um SBK?
Á vegum samgöngunefnd-
ar SSS hefur veriðrætt umað
SBK taki að sér allan skóla-
akstur á Suðurnesjum og
rekstur almenningsvagna á
Suðurnesjum. Þá er einnig
rætt um að breyta tíðni áætl-
unarferða SBK.
Er málið var til umræðu í
bæjarstjórn Keflavíkur á
þriðjudag upplýsti Guðfinn-
ur Sigurvinsson bæjarstjóri
að komið hefði upp hug-
mynd um stofnun hlutafél-
ags um rekstur SBK með að-
ild allra sveitarfélaganna á
Suðurnesjum.
Nýjar tillögur að viðbygg-
ingu við dvalarheimilið Hlé-
vang í Keflavík hafa verið
lagðar fyrir bæjarráð og bæj-
arstjórn Keflavíkurogstjórn
DS. Er hér um að ræða
tveggja hæða hús, 615 m2
hvor hæð, ásamt 113 m2
kjallara. Tuttugu og sjö her-
bergi verða í nýju álmunni en
níu herbergi í eldra húsnæði
verða óbreytt. Heildarflatar-
mál eldra húss er 375 m2,
þannig að samtals verður
húsið 1718 m2. Sparnaðuraf
því að notast við núverandi
liúsnæði svo til óbreytt hljóð-
ar upp á rúmar 20 milljónir
króna. Vistfólk á ekki að
þurfa að yfirgefa húsið á
meðan á framkvæmdum við
nýbygginguna og breyting-
arnar stendur.
Teikningar að nýja hús-
næðinu hafa hvarvetna feng-
ið góðar undirtektir. Teikn-
ingar af húsinu eru ekki full-
frágengnar, en þær voru
lagðar fyrir byggingarnefnd
Keflavíkur á miðvikudag
sem fyrirspurn.
DS mun halda annan fund
nú á mánudag, þar sem skýr-
ari línur munu fást varðandi
teikningarnar. Hermann
Ragnarsson, formaður DS,
sagði í samtali við blaðið að
hann ætti ekki von á því að
eitthvað stæði í veginum fy rir
því að umrædd tillaga næði
að ganga í gegn.
Sjóefnavinnslan hf.:
Rúmlega 50 mkr. tap
Tap á rekstri Sjóefnavinnsl-
unnar h.f. á síðasta ári varð um
51,6 milljónir króna. Kom
þetta fram á aðalfundi félags-
ins sem haldinn var síðasta
föstudag. Tekjur námu aðeins
3,5 milljónum króna, rekstrar-
gjöld 46,4 milljónum og tjóna-
bætur sem féllu á fyrirtækið
4,2 milljónum króna.
Kom fram á fundinum að
staða þessi var nánast öll til
komin á fyrri helmingi ársins,
en á þeim hluta ársins gerði
stjórn fyrirtækisins sér vonir
um að ná mætti áætlaðri salt-
framleiðslu og var öllu til kost-
að, sem talið var að stuðlað
gæti að árangri. Þó hefði að-
eins tekist að framleiða á
fyrstu fimm mánuðum ársins
578 tonn af salti, 106 tonn af
kolsýru og 8 tonn af þurrís. Þá
var fullreyndur, án árangurs,
nýr saltframleiðslubúnaður
sem kostaði um 20 milljónir
króna.
22. júlí sl. var undirritaður
samningur við Phaiimaco h.f.
og Delta h.f. um sölu á orku og
afnot af framleiðslutækjum
verksmiðjunnar. Hefði samn-
ingur þessi gefið 15 milljónir
króna á þessu ári og farið stig-
hækkandi upp í um 40 milljón-
ir á árinu 1992. 23. september
1988 var samningnum rift og
tilgreind sú ástæða að forsend-
ur fyrir samningsgerðinni
hefðu reynst rangar. Er nú
skaðabótamál á hendur fyrir-
tækjunum tveimur í undirbún-
ingi af hálfu Sjóefnavinnsl-
unnar h.f.
í október var síðan gengið
til samninga við Jarðvarma
h.f. og er þess vænst að tekjur
fari að koma frá þeim samn-
ingi, auk þess sem Roð h.f.,
þurrkstöð fyrir fiskmeti, er í
námunda við fyrirtækið á
Reykjanesi og hefur notið
orku þaðan. Eru tekjur vænt-
anlegar þaðan á næstunni.
Eru því miklar vonir bundn-
ar við þá starfsemi sem nú er á
staðnum, auk þess sem þess er
vænst að hægt verði að hefja
viðræður við ríkissjóð um
lækkun áhvílandi skulda.
Stjórn Sjóefnavinnslunnar
er í dag skipuð eftirtöldum að-
ilum: Björgin Ó. Gunnarsson,
Ólafur Thordersen, Jóhann
Einvarðsson, Jón Gunnar
Stefánsson og Þórarinn St.
Sigurðsson. Eina breytingin
frá fyrra ári var að Ólafur kom
úr varastjórn í skiptum við
Hannes Einarsson, sem er
starfsmaður fyrirtækisins.
Nú getur bæjarritarinn fyrr-
verandi farið og keypt dýra
lambakjötið í llagkaup . . .
—^
m m * _ w —fc. V V
TRÉ
TRÉ-X INNIHURÐIR
TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR IÐAVÖLLUM 7 KEFLAVÍK SÍMI 14700
_____________CL_____________