Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.05.1989, Síða 15

Víkurfréttir - 05.05.1989, Síða 15
\)mn (UtUt__________ Keflavík Nýir vegvísar ofan við bæinn Hugmyndir Vegagerðarinn- ar um nýtt kerfí vegvísa á þjóð- vegum og hvernig það snertir merkingar á Reykjanesbraut gagnvart Kefíavík, voru kynntar á fundi umferðar- nefndar Keflavíkur þann 19. apríl sl. Að sögn Guðmundar R.J. Guðmundssonar, sem sæti á í umferðarnefnd, er hér um áþekkt kerfi að ræða og fólk kannast við þegar það á leið upp í Breiðholt í Reykjavík, þar sem bogi er yfír götuna með skilmerkilegum merking- um, þar sem hvertmu erskipt í einingar, í heimaslóð og fjar- slóð. Er hér um að ræða álíka merkingar, þó svo að ekki sé um að ræða boga yfir Reykja- nesbrautina. A fyrirhuguðum skiltum verður Keflavík skipt niður í hverfí og verður merkt hvar t.d. Heiðarhverfi er og Teig- arnir, svo eitthvað sé nefnt. Þá verða Garður og Sandgerði einnig merkt á fyrirhuguðum skiltum, þar sem Reykjanes- braut hefur ekki verið fram- haldið út að Sandgerðisvegi. Hugmyndir Vegagerðarinnar að nýjum merkingum ofan við Kefla- vík verða í likingu við þessar, sem staðsettar eru við Breiðholt í Reykjavík. Þar eru einstakir hverfíshlutar merktir og leiðir í önnur byggðarlög. Ljósm.: hbb. Verður D-álman aldrei byggð? Föstudagur 5. maí 1989 15 Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja slökkva í mosanum ofan við Garð á föstudagskvöld. Ljósm.: hbb Brunavarnir Suðurnesja: 14 brunaútköll í síðustu viku Alls bárust slökkviliði Brunavarna Suðurnesja óskir um að slökkva elda í fjórtán tilfellum frá sunnudegi til jafn- lengdar um síðustu helgi. Þrettán tilfellanna voru vegna sinu- og mosabruna og í einu tilfellinu var eldur laus í báti. Annars staðar í blaðinu er greint nánar frá eldinum í Víði II GK. Sinubrunarnir voru víðsvegar um starfssvæði BS en það nær yfír fimm af sjö sveitarfélögum Suðurnesja, þ.e. öll sveitarfélögin nema Miðneshrepp og Grindavík. Einn sinubrunanna var einnig í mosa, sem er yfirleitt mun verra að slökkva í. Á þetta brunaútkall nokkuð óvanalegan aðdraganda sem rakinn verður hér: Það var á föstudagskvöld sem vart varð við mikinn reyk yfir stórum byggðarhluta í Ut- Garði. Vegna stillu í lofti gekk mjög erfíðlega að finna elds- upptökin, en það var lögregl- an og íbúar sem leituðu. Að lokum fundust eldsupptökin í mosa ofan byggðar og voru farin að nálgast hjalla þar skammt frá. Kom þá í ljós að búið var að loga þarna í mos- anum á annan sólarhring, en vindáttin hafði snúist á föstu- dagskvöldið, þannig að reyk- inn lagði yfír plássið. Eftir að eldstaðurinn var fundinn var slökkviliðið kall- að til og tók slökkvistarfið um eina klukkustund. Umræður í bæjar- stjórn Keflavíkur Heilbrigðisráðherra hefur, að tilmælum samstarfs- nefndar um málefni aldr- aðra, ákveðið að engin fjár- veiting verði til D-álmu sjúkrahússins úr Fram- kvæmdasjóði fatlaðra þetta árið. Vegna þessa urðu mikl- ar umræður um málið á fundi bæjarstjórnar Kefla- víkur á þriðjudag. Hóf Ingólfur Falsson um- ræðu ummáliðoggatþess að skoðun sín væri sú að álma þessi yrði aldrei byggð. Væri það ákvörðun valdhafa, hvar í flokki sem þeir væru, að standa að því að svo yrði. Virtist þeim I engu skipta hugur Suðurnesjamanna til málsins. Magnús Haraldsson taldi fulla ástæðu til að horfa með döprum huga á mál þetta. Sagðist hann óttast að því miður ættu orð Ingólfs við rök að styðjast. Væri það stefna stjórnvalda að gera sjúkrahúsið hér að elliheim- ili og gera ekkert frekar fyrir það. Undir þessa skoðun tóku bæði Guðfínnur Sigur- vinsson og Hannes Einars- son, en Guðfinnur taldi að ríkið yrði að fara að taka ákvörðun í máli þessu. Njarðvíkurbær auglýsir eftir starfsfólki til að vinna við fjölbreytilegustu störf í sumar Okkurvantar m.a. flokkstjóra vinnuskólans, verkamenn til almennrar verkamannavinnu og starfsmenn til garðyrkju- vinnu undir stjórn garðyrkjumanns. Einnig vantar starífs- mann á traktor. Við viljum ráða hresst fólk sem er tilbúið að leggja á sig mikla vinnu í sumar, því við ætlum að halda áfram aðfegra bæinn þar sem frá var horfið á síðasta hausti. Góð laun í boði, ráðningartími eftir samkomulagi. BÆJARSTJÓRI

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.