Víkurfréttir - 07.11.1991, Síða 1
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
SíSnBoarW,
101
44. tölublað 12. árgangur
Fimmtudagur 7. nóv. 1991
BffRINN KRAFINN
UM 43 MIIUÓNIR
Stefnur hafa verið birtar Njarðvíkurbæ
vegna bæjarábyrgða sent veittar voru Vél-
sntiðju Ol. Olsen hf., sem nú er til skipta-
meðferðar til gjaldþrota, samtals að fjárhæð
um 43 milljónir króna. Um er að ræða kröfu
frá Islandsbanka upp á 36 milljónir og frá
Iðnlánasjóði upp á tæpar sjö milljónir
króna.
Að sögn Kristjáns Pálssonar, bæjarstjóra
í Njarðvík, telja bæjaryfirvöld sig ekki eiga
að greiða kröfur þessar að fullu. Kemur það
til af því að bæjaryfirvöld telja að upp-
boðsandvirði á eignum þrotabúsins um sjö
og hálf milljón, hafi átt að ganga upp í hlut
ábyrgðarinnar hjá Útvegsbanka sem þá var.
Eins telja bæjaryfirvöld að aldrei hafi verið
veitt heimild fyrir því að krafa Iðnlánasjóðs
haft verið tekin fram fyrir kröfu Út-
vegsbankans.
Sem fyrr segir hafa bæði Iðnlánasjóður
og Islandsbanki nú stefnt Njarðvíkurbæ og
hafa bæjaryfirvöld því ráðið lögmann til að
skoða málið.
Bæjarstjórn Keflavíkur:
Aðsföðugjöld
af nýsköpun í
atvinnurekstri
felld niður
Anna Margrét Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi
Alþýðuflokks lagði fram tillögu á fundi bæj-
arstjómar Keflavíkur á þriðjudag. Var tillagan
þess efnis að ekki yrði innheimt aðstöðugjöld
af fyrirtækjum fyrstu tvö starfsárin, ef um væri
að ræða nýsköpun í atvinnurekstri, þ.e. at-
vinnutækifæri sem væm önnur en fyrir væru í
bæjarfélaginu.
Kom fram í máli Önnu að hún teldi að þetta
gæti orðið til þess að frekar væri hægt að koma
fótum undir ný atvinnutækifæri í Keflavík.
Eftir þó nokkrar umræður um tillöguna var hún
samþykkt einrónta 9:0.
Á leikskóla
í Grindavík
Við Túngötu 9 í Grindavík er rekinn IítiII
leikskóli þar sem mörg börn koma á hverjum
degi og leika sér meðan foreldrar stunda sína
vinnu. Litlir árabátar eru vinsælt leiktæki, þó
svo þeir þjóni oft hlutverki sandkassa. Ljós-
myndarinn okkar, Hilmar Bragi, tók með-
fylgjandi mynd af þessari litlu hnátu á dög-
unum. hún lék sér ásamt hinum krökkunum í
bátnum. en gaf sér þó tíma til að líta upp og
horfa glaðlega í linsu myndavélarinnar.
Stjórn SSS um
áfangaskýrslu um
sameiningu sveit-
arfélaga:
Ekki eðlilegt
að þröngur
kópur af-
greiði mólið
Stjóm Sambands sveit-
arfélaga á Suðurnesjum
fjallaði í síðustu viku um á-
fangaskýrslu þá er sam-
eininganefnd sveitarfélaga
á vegum félagamála-
ráðuneytis hefur skilað af
sér. Var eftirfarandi bókað
um ntálið:
„Varðandi 26. lið fund-
argerðar Sambands ísi.
Sveitarfélaga frá 4. okt.
199I leggur stjóm SSS til
við Sambandi íslenskra
sveitarfélaga að landsþing
sambandsins verði kallað
sainan til að ræða og álykta
um tillögur og áfanga-
skýrslu sameiningamefndar
sveitarfélaga. Stjórnin telur
ekki eðlilegt að þröngur
hópur sveitarstjómarmanna
á fulltrúaráðsfundi geri á-
lyktanir um svo viðamikið
mál og afdrifaríkt eins og að
fækka sveitaifélögum úr
200 í 25."
30 ný
atvinnu-
tækifæri til
Keflavíkur
Sjávariðnaðarfyrirtækið
Sjávarréttir hafa ákveðið að
flytja alla starfsemi sína frá
Þorlákshöfn til Keflavíkur.
Er ástæðan sú að þeir ntisstu
leigusamning á húsnæði
sínu eystra. Munu þeir hafa
aðsetur í Básnunt í Keflavík.
þar sent Útvegsmiðstöðin
var áður til húsa. Með fyr-
irtækinu bjóðast 30 at-
vinnutækifæri aðallega fyrir
konur.
Þetta sania fyrirtæki sótti
á sarna tíma og Islenskur
gæðafiskur, fast eftir að
komast inn í Sjöstjörnuhúsið
í Njarðvík, en þau ntál
gengu ekki upp á þeim
tíma.
Bæjarábyrgö Njarövíkurbæjar fyrir Vélsm. Ol. Ölsen:
AUGLÝSINGAR • RITSTJÓRN • AFGREIÐSLA ® 14727,15717 • FAX ^ 12777