Víkurfréttir - 07.11.1991, Qupperneq 5
Fréttir
Víkurfréttir
7. nóv. 1991
Keflavíkurbær kaupir iðn
aðarhús á 14,5 milljómr
TRÉ-5« BTOGINÍJWÖRW
Bæjars'tjórn Keflavíkur
samþykkti samhljóða án um-
ræðu á fundi sínum á þriðju-
dag tillögu bæjarráðs um
kaup á húseigninni Iðavellir
7 í Keflavík. En Þorvaldur
Ólafsson í Tré-x hafði boðið
eignina til sölu.
Var samþykkt að kaupa hús-
eignina á kr. 14.500.000.- og
fela bæjarstjóra að ganga frá
samningum. Ekki fengust
upplýsingar frá bæjarsjóði
um það, hvað þeir ætluð að
gera við eignina.
• Iðavellir 7, sem bæjarsjóður Keflavíkur hefur nú ákveðið
að kaupa á 14, 5 milljónir króna. Ljósm.: epj
• Peran komin á skipið.
Að neðan er unnið við
lagfæringar við skrúfu.
Skipasmíöastöö Njarðvíkur:
Vel lukkuð smíði
ú perustefni
Lokið er smíði á perustefni hjá Skipasmíðastöð
Njarðvíkur hf. á Grindavíkurbátinn Sigurð Þorleifsson
GK 10. Þykir mönnum að breytingarnar hafi tekist mjög
vel og peran samsvari ótrúlega vel byggingarlagi skips-
ins. Sést það best á meðfylgjandi mynd sem Hilmar
Bragi tók nú í vikunni í Njarðvíkurslipp.
Stýrimaðu r-vélstjóri
Réttindamenn vantar á 42 tonna snur-
voðabát, vél 250 kw, 340 hö.
Nafn og símanúmer leggist inn á skrifstofu
Víkurfrétta.
Geirnytaveiöar á Baldri GK:
TUTTUGU TONN I HALI
Sálarrannsóknar-
félag Suðurnesja
auglýsir
Enski skyggnilýsigamiðillinn, Iris Hall,
verður með fjöldafund í húsi félagsins að
Túngötu 22, í kvöld, fimmtudaginn 7.
nóvember kl. 20.30.
Fólk má koma með blómagreinar jiví
miðillinn verður með hlutskyggni.
Stjórnin
i
• Geirnyt flökuð í Nesfisk hf. í Garði á dögunum.
Ljósm.:hbb
Baldur GK hefur stundað
veiðar á geimyt (rottufiski) fyrir
Nesfisk hf. í Garði að und-
anförnu. Hefur fiskurinn verið
handllakaður í Garðinum og
seldur á erlendan markað. A und-
anförnum mánuðum hefur Nes-
fiskur og fyrirtækið Bakkafiskur
á Eyrarbakka staðið fyrir til-
raunastarfsemi með vinnslu á
þessum furðufiski.
I nýútkomnum Fiskifréttum er
greint frá veiðunum og þar kemur
fram að Baldur hafi verið að fá
allt að 20 tonn af geimyt í hali
sem þykir mjög gott. Nýtingin á
fiskinum í vinnslu er ekki góð,
þar sem flökin eru ekki nema 17-
18% prósent af fisknum. Geimyt
mun bragðast líkt og skötuselur.
Starfsmaður
í áhaldahús
Sandgerðisbær auglýsir eftir starfsmanni í
áhaldahúsið.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu bæjarins, Tjarnargötu 4 og í á-
haldahúsi.
Allar nánari upplýsingar veitir verkstjóri.
Verkstjóri
ST0RLEIKURI HANDB0LTANUM
HKN-AFTURELDING
nk. sunnudag 10. nóv. í iþróttahúsi Keflavikur kl. 20.00.