Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.1991, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 07.11.1991, Qupperneq 12
12 Frá Björgunarsveitinni Ægi Félagsvist aflýst Vegna liins hörmulega sjó- slyss við Hornafjarðarós á dög- unum þegar félagi okkar, Bjarni Jóhannsson, lét lífið í skips- skaða, en félaga hans úr Kefla- vfk er enn saknað, hefur stjóm Björgunarsveitarinnar Ægis á- kveðið að fella niður félagsvist sem vera átti í Sæborgu, húsi Verkalýðs- og sjómannafélags Gerðahrepps, í kvöld ki. 20:30 Af óviðráðanlegum orsökum fellur vistin einnig niður nk. fimmtudag en þá er húsið upp- tekið vegna annarrar starfsemi. Biðjum við fólk að virða þetta við okkur. Við munum auglýsa það vel þegar við byrjum aftur. Stjórn Björgunarsveitarinnar Ægis GJALDHEIMTA SUÐURNESJA LÖGTAKSÚRSKURÐUR Aö beiöni Gjaldheimtu Suöurnesja úrskuröast hér meö aö lögtök geta farið fram vegna vangoldinnar staögreiöslu opinberra gjalda í Keflavík, Grindavík, Njarðvík, Sandgeröisbæ, Geröa- hreppi, Vatnsleysustrandarhreppi og Hafnahreppi, þ.e. van- skilafé, álag og sektir ásamt dráttarvöxtum og kostnaði fyrir tímabilin 06, 07, 08 og 09 1991 (júní til og meö september 1991), á grundvelli 1. tl. 1. gr. og 4. gr. laga nr. 29/1885 og 29. gr. laga nr. 45/1987, sbr. 14. gr. laga nr. 90/1987. Lögtök geta farið fram aö 8 dögum liðnum frá birtingu úrskurðar þessa ef ekki hafa verið gerö skil fyrir þann tíma. Keflavík, 4. nóvember 1991. Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu GJALDHEIMTA SUDURNESJA LÖGTAKSÚRSKURÐUR Aö kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtu Suöurnesja og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveönum 5. þ.m., veröa lögtök látin fara fram fyrir vangoldnum opinberum gjöldum utan staö- greiöslu álögöum 1991 í Keflavík, Njarövík, Grindavík, Sand- gerðisbæ, Geröahreppi, Vatnsleysustrandarhreppi og Hafna- hreppi, skv. 98. gr., sbr. 109. og 110. gr. laga nr. 75/1981, sbr. einnig 8. kafla laga nr. 45/1987. Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, veröbætur á ógreiddan tekju- skatt, eignarskattur, lífeyristryggingargjald atvr. skv. 20. gr., slysatryggingagjald atvr. skv. 36. gr., kirkjugarösgjald, vinnu- eftirlitsgjald, útsvar, veröbætur á ógreitt útsvar, aöstööugjald, atvinnuleysistryggingagjald, iönlánasjóösgjald og iðnaðar- málagjald, sérstakur skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæöi, slysatryggingagjald v/heimilisstarfa, sérstakur eignaskattur og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra. Ennfremur nær úrskurðurinn til hvers konar gjaldhækkana. Keflavík, 5. nóvember 1991. Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvík og Grindavík. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. * Gistihciniilið Grindvískt gistiheimili í Orlando Islendingar hafa lengi kunn- að vel að meta íslenska ferða- þjónustu á erlendri grund. I nýjasta vinabæ Keflavíkur. Or- lando í Bandaríkjunum, tekur grindvísk kona, Rangheiður Jo- nes, á móti ferðamönnum. Hún leigir út tvær fbúðir í ein- býlishúsahverfi miðsvæðis í borginni. Stærri íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og hentar vel fyrir 1-2 fjölskyldur eða fjóra fullorðna með böm. Sú minni er sniðin fyrir hjón eða einstaklinga. Ragnheiður Jones er búin að búa í Bandaríkjunum yfir 20 ár, kom þangað sem „au pair“ stúlka, en er nú gift kona með fjölskyldu. Þau hjónin keyptu einbýíishús við hliðina á sínu húsi og innréttuðu í tvær íbúðir, sem þau leigja ferðamönnum. Ragnheiður gaf gistiheimilinu nafnið Brautarholt. Aðstaða er öll mjög góð í Brautarholti. Stór bakgarður með heitum nuddpotti, kaldri smálaug, leiktækjum fyrir börn og góðri sólbaðsaðstöðu. í næsta nágrenni við heimilið eru hinir vinsælu skemmtigarðar, sem börn og fullornir eru jafn hrifin af, Disney World. Heimilisfang Ragnheiðar er: 5865 Tomoka Drive, Orlando, Florída 32809. Sími: 901-407- 859-6827. Fyrir þá sem hafa faxtæki má benda á faxnúmer hennar, en það er: 901-407- 856-2328. • Hulda Lárusdóttir, Einar Ásbjörn Ólafsson, Guðbjörg Fríða Guðmundsdóttir og Einar Guðniundsson, láta fara vel um sig í heitum potti á gistiheimilinu. * Ragnheiður Jones í nióttökunni

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.