Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.1991, Síða 15

Víkurfréttir - 07.11.1991, Síða 15
Tónlist Tónlistarnámskeið fyrir börn í Keflavík Um SUZUKI aðferðina Forsendan fyrir aðferð jap- anska fiðluleikarans Shinichi Suzuki, er að sérhvert bam sé fætt með margskonar hæfileika (tónlistarhæfileika, mála- hæfileika, o.s.frv.), en að bamið verði að fá hina réttu hvetjandi reynslu til þess að þessir hæfi- leikar geti blómstrað. Suzuki nefnir hliðstæðu, þ.e.a.s. hvernig börn læra sitt eigið móðurmál. An mál- fræðilegrar ítroðslu lærir lítið barn að tala með því að hlusta og herma eftir máli hinna full- orðnu. A sama hátt geta börn einnig lært að spila og öðlast þannig hlutdeild í þeim fjársjóði sem tónlistin er. Suzuki nefnir sjálfur þessa kennsluaðferð „móðurmáls- aðferðina". Barnið á að hlusta á tónlist og reyna að líkja eftir því sem það hefur hlustað á, þegar það fer að spila á hljóðfærið sitt, án þess að nota nótur eða fræðilegar útskýringar. Þegar börnin stækka læra þau auðvitað líka nóturnar. Það verður auðveldur lærdómur. þar sem bömin þekkja hljóð- færið sitt vel og eru nú vön að hlusta á tónlist. Suzuki kerfið er byggt á markvissum skrefum í kennslu. Frá byrjun er lögð áhersla á að tónninn sé fallegur. Börn eru nefnilega svo músíkölsk frá fæðingu, að hljómi hljóðfærið illa, hættir þau fljótlega að langa til að spila. Fyrir lítil börn er erfitt að æfa sig heima á virks stuðnings frá foreldrum. Þess vegna er það skilyrði að a.m.k. annað for- eldranna (eða samsvarandi fullorðinn) taki þátt í hinum vikulegu kennslustundum hjá kennaranum. Hér næst beint samband milli skólans og heimilisins, sem hefur af- gerandi þýðingu. Hjálp foreldranna á bæði að vera hógvær og stuðla að því að Tónlistarfélag Kellavíkur og nágrennis stóð fyrir sínum fyrstu tónleikum vetrarins næst síðasta mánudag. Voru það tónleikar með Kammersveit Reykjavíkur í Ytri-Njarðvíkurkirkju sem flutti dagskrá undir nafninu „Kvöldstund nieð Mozart“. Þá las Suðurnesjamaðurinn Gunnar Eyjólfsson sögur af Mozart og úr bréfum lians. Tónleikarnir voru vel sóttir eða um 100 manns en þeir voru styrktir af Prentsmiðjunni Grágás í Keflavík. ________15 Víkurfréttir 7. nóv. 1991 Helgarnámskeiði Suzuki sambandsins lauk með tónleikum í Keflavíkurkirkju. Hér má sjá Kjartan Má Kjartansson, skólastjóra stjórna fiðluhópnum. Ijósm. pket. bestur árangur náist. Hrós fyrir það sem nemendanum hefur tekist að læra er mikilvægt. Sé um leiðréttingar að ræða skal gæta þess að einbeita sér aðeins að einum hlut í einu. Suzuki aðferðin byggir ekki á að nemendur séu valdir úr fyrirfram ákveðnum hópi barna. Allir sem vilja geta verið með. Tilgangurinn er heldur ekki sá að skapa „tónlistarséní“ eða að ýta börnunum út í at- vinnumennsku í tónlist, heldur að nota tónlistina sem tæki til persónulegs þroska. Það er nrikilvægt takmark í kennslunni að bömin missi ekki áhugann á því að spila. Til þess að hverja, og auka áhugann eru börnin látin spila saman og einnig hvert fyrir annað. Þannig er hinn félagslegi þáttur virkj- aður, en hann er líka til staðar í öðru starfi, eins og til dæmis sumarnámskeiðum. Börnin eru aldrei beðin um að spila verk opinberlega sem þau ráða ekki við að fullu. (Hefur ekki mikið af tónlista- rmenntun farið forgörðum, vegna þess að nemandinn átti að spila eitthvað sem hann rétt réði Andri Stefánsson, ungur Keflvíkingur, einn Suzuki nemenda leikur á píanóið undir leiðsögn Kristins Arnar Kristinssonar, kennara. ljósm. pket. við?) Einbeiting barnanna er þjálf- uð. Líkamlega verða þau betur samhæfð og fá þjálfun í því að vinna með öðrum, en sérstök á- hersla er lögð á þroska þeirra sem einstaklinga. Hið mikilvægasta er þó gleð- in sem börnin upplifa við það að taka þátt í markvissari Iist- sköpun. VIÐSKIPTA & ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR ®'S 14717 Smurstöð og hjólbarðaþjónusta Björns & Þórðar Vatnsnesvegi 16 - sími 14546 SKIPAAFGREIÐSLA SUÐURNESJA KRANALEIGA LYFTARALEIGA SÍMI Auglýsing í VÍKURFRÉTTUM margborgar sig. W \ \TRYfi(il\G\FHL\C ISLWDS HF Umboðsniaður: Hafnargötu 58 - Keflavík Guðlaugur Eyjolfsson Heimasími 12293 1 >48*80 Skrifstofustjóri: Gunnar Guðlaugsson Heimasími 12721 E ALLAR IYGGINGAVÖRUR lárn & Skip V/ VÍKURBRAUT Sími15404 I r. drepinn Sími 14790 Málning - Gólfteppi Parket - Flísar Leigubílar - Sendibílar QQ □ □ T A X I 14141

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.