Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.1991, Síða 16

Víkurfréttir - 07.11.1991, Síða 16
16 Víkurfréttir 7. nóv. 1991 Fréttir/Nýjungar Námskeið Fiskvinnslufóik Verkalýös- og sjómannafélagið hefur ákveöiö aö halda fisk- vinnslunámskeið nú í lok nóv- ember ef næg þátttaka fæst. Vinsamlega hringiö í síma 15777 á skrifstofutíma fyrir 12. nóv- ember nk. Stjórnin VERSLUM HEIMA NSn Hver er réttur þinn? Neytendasamtökin halda opinn fund um hagsmunamál neyt- enda í kvöld 7. nóvember kl. 20.30. á Flughófeli. Frummælendur: Jóhannes Gunnarsson og Drífa Sigfúsdóttir. Fundarstjóri: Páll Ketilsson. Stjórn Neytendafélags Suöurnesja Kaupfélagið velur afgreiðslukerfi frá EJS Fyrr á þessu ári gerði Sam- starfsnefnd Samvinnuverslana útboð vegna fyrirhugaðra kaupa tíu Kaupfélaga á af- greiðslukerfi. Kerfi frá Einari J. Skúlasyni hf., EJS, var sett upp í Borgarnesi til prófunar. Eftir ítarlegar prófanir var ákveðið að ganga til samninga við EJS og var samningurinn und- irritaður þann 11. október sl. í fyrstu munu tuttugu verslanir víðsvegar um landið taka kerfið í notkun, þar með verslanir Kaupfélags Suðurnesja. Um er að ræða NCR af- greiðslukassa ásamt strik- amerkjalesurum og eru kass- arnir af sömu gerð og Hagkaup festi kaup á fyrr á árinu. Það verða því á þriðja hundrað slíkir afgreiðslukassar í notkun hér á landi. Kassar kaupfélaganna munu tengjast Victor tölvum sem sjá um úrvinnslu ganga s.s. uppgjör, birgðaskráningu, verðlagningu, viðskiptamanna- og félagsskrá o.fl. Það er fyr- irtækið Rökver sem hannaði hugbúnaðinn í samvinnu við EJS. • Frá undirritun samnings: Örn Andrésson sölustjóri EJS, Olgeir Kristjónsson framkvæmdarstjóri EJS, Björn Jó- hannsson ráðgjatl og fulltrúar kaupfélaga Skúli Skúlason og Guðmundur Búason. • Ragnhildur Árnadóttir og aðalbókavörður Kópavogs, Hrafn Harðarson, við móðurtölvuna. ^ Fjölbrautaskóll ' hp Suðurnesja Öldungadeild Meistaranám Innritun á vorönn 1992 fer fram á skrif- stofu skólans og lýkur 22. nóvember. í tengslum viö öldungadeild veröur boöiö upp á almennt meistaranám fyrir allar iðngreinar. Námiö er skipulagt sam- kvæmt námskrá Menntamálaráðu- neytisins frá 1990 og fer kennsia fram frá kl. 17.00 til 22.00. Innritunargjaldið ræöst af umfangi námsins og nemendafjölda en veröur a.m.k. 9500 kr., eins og í öldungadeild. Allar nánari upplýsingar gefur skrifstofa skólans í síma 13100 frá kl. 9.00 til 15.00. Aðstoðarskólameistari Tölvuvædd útlún í Bókasafni Keflavíkur I síðustu viku hóf Bæjar- og héraðsbókasafnið í Keflavík tölvuvædd útlán. Skráð er eftir forriti frá Ara Richardssyni en tölvuvætt útlán hefur áður verið reynt í bóka- söfnunum Kópavogs og Hafn- arfjarðar með góðum árangri. Hér í Keflavík hóf Jakobína Ólafsdóttir skráningu safn- gagna fyrir tveimur árum síðan en þegar hún fluttist til Reykja- vfkur tók Ragnhildur Árnadóttir við þessu verki. Notaðar eru tvær PS og ein PC tölva en móðurtölvan er á Bæjarskrifstofunum. Safnið hefur fengið marháttaða hjálp og fyrirgreiðslu hjá Eiríki Jóns- syni, tölvumanni Kefla- víkurbæjar. Að undanskildum tfmaritum er nú meginhluti bókakostsins skráður. Marg- háttuð hagræðing verður af þessu fyrirkomulagi þegar starfsfólkið hefur fengið fulla þjálfun. Þessi breyting knýr enn frek- ar á að Keflavíkurbær láti safn- inu í té viðunandi húsnæði svo gestir þess geti notið þessarar þjónustu í mannsæmandi um- hverfi. Hilmar Jónsson • Guðlaug Gunnarsdóttir tekur við búk frá Erlu Helga- dóttur í afgreiðslu sal'nsins.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.