Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.03.1992, Page 3

Víkurfréttir - 05.03.1992, Page 3
Réttargæsluheimilið: Njarðvík enn í myndinni Samkvæmt fréttum í DV í gær, er ekki búið að útiloka það að réttargæsluheimilið fari til Njarðvíkur. Er þar haft eftir heilbrigðisráðherra að liann „útiloki það ekki að með- ferðarheimilið rísi í Njarðvík, þó svo að hreppsnefnd í Olfusi samþykki það að Sogni. Eftir sé að semja við Náttúrulækn- ingafélagið um leigu eða kaup á hlula eignarinnar og gangi það ekki eftir verði leitað til Njarðvíkinga. Síðar segir hann í blaðinu að verði kröfur þeirra Náttúru- lækningafélagsmanna óásætt- anlegar fari hann með heimilið til Njarðvíkur. Virðist því það Ijóst að Njarðvík sé enrt inni í myndinni. Stjómarkjör hjá Verslunarmönnum: Magnús Gíslason hættir Magnús Gíslason sitjandi formaður Verslunarmanna- félags Suðumesja hefur á- kveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs næsta kjör- tímabil í VS. Magnús hefur starfað t'yrir félagið í 12 ár. Þegar er vitað um tvo fram- bjóðendur til formannskjörs, en framboðsfrestur rennur ekki út fyrr en 13. mars nk. Þeir eru Jóhann Geirdal sem mun leiða lista fráfarandi stjórnar og Valur Ketilsson sem bíður fram mótframboð. Þar sem í hvorugan frambjóðandann náðist áður en blaðið fór í prentun bíða nánari fregnir, síðari tíma. 3 VÍkurfréttir 5. mars 1992 Afmæli Til hamingju með hálf átt- ræðisaldurinn Amar! Frá nokkrum af gæða vill- ingunum. Hlöðuball- ið ekki í Stóru- milljón Á Nemendasíðu Fjölbrauta- skóla Suðurnesja aftar í þessu blaði er greint frá því að halda eigi hlöðuball í Stóru-milljón og þar eigi að líkja eins mikið eftir sveitarballi og hægt sé. Nú hefur komið í ljós að ekki verður hægt að halda ballið í Stóru-milljón, en hvar það verður lá ekki fyrir er blaðið fór í prentun. Að sögn fulltrúa Nemendafélagsins verður ný staðsetning auglýst nánar í skólanum. Kaffisopi í blíðunni! Þó svo veðurguðirnir hafi ekki verið blíðir nú síðustu daga, þá er ekki langt síðan ekki hreyfði hár á hötði og sól skein í lieiði. Myndin var tekin við ísverksmiðjuna í Sandgerði þegar smið- irnir tóku örstutt kaffihlé i blíðunni. Ljósm.thbb ii AÐALFUNDUR Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaga í Keflavík heldur aðalfund sinn þann 10. mars á Glóðinni kl 20:30. Fundarefni: 1. Lagabreytingar 2. Venjuleg aðalfundarstörf 3. Gestur fundarins: Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra 4. Önnur mál. Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæöisfélaganna í Keflavík SEM TALANDIER UM afslóttur af allri mólningu, teppum, dúkum og mottum Tilboðsverð á parketl fró kr. 2.400 pr. fm. Spónparket frá 1500 kr. fm. Fagleg þjónusta og ráðgjöf .Tárn & Skip v/Víkurbraut Sími 15405

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.