Víkurfréttir - 05.03.1992, Side 15
Fréttir
________15
Víkurfréttir
5. mars 1992
Óánægja meö snjómokstur á gangstéttum í Keflavík:
„Misstum þetta
þjónustustig niður"
All mikil óánægja er
meðal ýmissa bæjarbúa í
Keflavík og þá sérstak-
lega þeirra af eldri kyn-
slóðinni, með það hve
gangstéttir hafa verið illa
hreinsaðar í ófærðinni að
undanfömu. Segja þeir
sem rætt hafa við blaðið
að snjónum sé mokað upp
á gangstéttimar. en því
ekki sinnt að sumir veg-
farenda þurfa að komast
um þær.
Vegna þessa hafði
blaðið samband við Jó-
hann Bergmann, yfirmann
verklegra framkvæmda
hjá Keflavíkurbæ. Sagði
hann þessa gagnrýni eiga
rétt á sér, ástæðan væri sú
að: „í veturhefði tekist vel
að hreinsa snjóinn af
gangstéttum samhliða
götunum, en í síðasta
snjókomuáhlaupi hefðu
menn einfaldlega misst
niður um sig og ekki tekist
að ná upp um sig aftur að
þessu leyti.
Við réðum ekki við á-
standið og kannski var of
mikil áhersla lögð á göt-
urnar. Vonandi tekst að
halda báðum þessum
þjónustustigum samhliða í
framtíðinni," sagði Jóhann
í samtali við blaðið.
Jón Marinó
formaður
Stakks
Nýr formaður, Jón Marinó
Jónsson, var kjörinn fyrir
Björgunarsveitina Stakk, á að-
alfundi sveitarinnar í síðustu
viku. Fráfarandi formaður Guð-
björg Jónsdóttir, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs.
Með Jóni Marinó eru eft-
irtaldir í stjórn sveitarinnar:
Sigrún Omarsdóttir, Olafur B.
Bjarnason, Arni Amason og
Þórður Ragnarsaon.
Keflavík:
Douðagildra
við Heiðarbraut?
Ökumenn þeirra bíla er ann-
ast skólaaksturinn í Keflavík
hafa mjög miklar áhyggjur af
hættuástandi $ horni Heiðar-
brautar og Heiðarholts í Kefla-
vík. Samkvæmt ökuleið vagn-
anna ber þeim að snúa þar við,
þrátt fyrir mjög slæmar að-
stæður og mikla slysahættu,
sem þeir nefna raunar dauða-
gildru.
Er bílarnir koma t.d. í há-
deginu, fylgir þeim oft röð ann-
arra bíla sem eru á leið inn í
Heiðarholtið. Tekst öku-
mönnum vagnanna að snúa
hinum sérhönnuðu stræt-
isvögnum á staðnum með því að
brjóta umferðarlögin og aka yfir
gras sem búið er að gróðursetja
við honrið. Er eldri bílamir
koma. verða þeir hins vegar að
taka beygju upp í holtið og
bakka síðan niður eftir til að
snúa við og aka síðan eftir
grasinu. Við að bakka skapast
mikil hætta af bömum sem eru
að missa af vögnunum og
hlaupa því fyrir þá.
Er blaðamaður fylgdist með
þessu á mánudag voru aðstæður
eins og best verður á kosið, en
hann hefði ekki viljað vera
þarna við slæmaraðstæður s.s.
stórhríð, hélaða spegla eða
myrkur. Að sögn eins vagn-
stjórans má koma í veg fyrir
hættur þarna með því að heim-
ila vögnunum akstur út Garð-
veg og upp tengibrautina upp í
Heiðarholt og koma þar með í
veg fyrir að snúa við á við-
komandi homi. Það hefur hins
vegar mælst illa hjá foreldrum
við enda Smáratúns, því þá
þurfa þeir að láta börn sína fara
upp að biðstöð við Heiðarbraut.
„Segjast þessir foreldrar það
vera of mikla áhættu fyrir
bömin að fara yfir Vest-
urgötuna. Engu að síður er það
algengt að sjá þessi sömu börn
eftir skóla í sendiferð í Spar-
kaup og þá kvarta foreldrar ekki
þó börnin fari yfir Vestur-
götuna og síðan Hringbrautina
einnig“, sagði einn bílstjóranna
í samtali við blaðið.
• Þegar þessi mynd var tekin voru aðstæður mjög góðar,
birtuskilyrði góð og aksturskilyrði einnig. Ljósm.: epj.
W
Astvaldur
formaður BS
Þar sem Júlíus Baldvinsson,
fulltrúi Garðmanna í stjóm
Brunavarna Suðurnesja og for-
maður stjórnarinnar hefur sagt
af sér störfum í stjóminni, hefur
nýr fonnaður verið kjörinn.
Sá er Astvaldur Eiríksson.
fulltrúi Njarðvíkinga í stjóm-
inni.
>>>>>>>:ww>:w>:w:%%%%%%*>>>>!w>>>>:%%%%w>>>ro>>>>>>>>>>>>>MOT>>>>>>Mo>>>>>>>>>>>>>>>>>>>
Veröur ATARI Tölvukynning í
Ljósboganum.
Atari 1040 STE
er einföld í
notkun og meö henni
geturðu sinnt nömi, leik,
tónlist, grafík og þínum sér
óskum. Komið og kynnist ATARI.
LJÓSBOCjINN
HAFNARCÖTU 25 - KEFLAVÍK
SÍM111535
MEÐ ATARI INN í FRAMTÍÐINA