Víkurfréttir - 24.04.1992, Síða 1
argangur
Út af Eldey:
Njósna-
kapall
sagaður
í sundur
Lokið er sjóprófum í auka-
dómþingi Gullbringusýslu
vegna þess atviks er tog-
báturinn Þór Pétursson, frá
Sandgerði festi trollið í kapli
úl af Eldey á dögunum. Við
sjópról'in kom annað ekki
fram, en að hér væri á fetðinni
njósnakapall frá Varnarliðinu
sem væri ekki getið um á sjó-
kortum. sjómönnum til við-
vörunar.
Þá kom fram að Land-
helgisgæslan hafði farið frant
á að kaplinum og veiðarfærum
yrði slakað niður er þetta kom
upp með trollinu. Einnig kom
fram að þessi kapall hefði áður
verið sagaður eða brendur í
sundur. er bátar festu troll sín
í honum. Voru nefnd tvö dæmi
þar sem heyrst hefur um aðra
báta en Þór Pétursson, er lent
hafa í þessu og á hinum báðum
var kapallinn tekinn í sundur
til að losa trollið frá honum.
Vegna málsins hefur útgerð
Þórs Péturssonar lagt frant
bótakröfu á hendur Vam-
arliðinu. fyrir veiðarfæri þau er
feslust í kaplinum.
Handtekinn
eftir hóska-
lega siglingu
Lögreglumenn úr Grindavík
handtóku mann eftir háskalega
siglingu í innsiglingunni og í
höfninni í Grindavík um
páskahelgina. Maðurinn, sem
sigldi 10 tonna plastbát þótti
helst til of glannalegur og
sigldi farkostinum þvers og
kruss í innsiglingunni. Um
tíma var haldið að maðurinn
ntyndi sigla upp í Hópsnesið.
Sigurður Agústson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn, sagði
í santtali við blaðið að þegar
bátnuin hal'i verið sigit að
bryggju hafi hann skemmst
þegar hann sigldi fyrst á
bryggjuna og síðan á annan bát
sent lá í höfninni. Manninn um
borð sakaði ekki. en hann
reyndist vera ölvaður.
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ A SUÐURNESJUM
LANDSBt
SAFNAHÚSI.
HVERFISGÖT'
101 REYKJ
Föstudagur 24. apríl 1992
Landsbankinn:
AÐALÚHBÚID
VERDURÍ
KEFLAVÍK
Landsbankinn hefur ákveðið að setja upp svæðis-
útibú á sex stöðum um landið, sem um leið yrðu að-
alútibúin hvert á sínu svæði. Fyrir Suðumesin yrði
slíkt útibú staðsett í Keflavík.
Að sögn Brynjólfs Helgasonar. hjá. markaðssviði
Landsbankans, snýst málið um betri þjónustu sem um
leið gerir það að verkum að viðskiptavinirþurfi minna
að leyta eftir fyrirgreiðslu til Reykjavíkur. nema ef um
mjög stóra fyrirgreiðslu er að ræða. Mun aðalútibúið
hafa hærri útlánaheimild en var áður fyrir hendi, auk
þess sem þaðan verður fylgst með öllum útlánum frá
öðrum útibúum bankans á svæðinu og verður að-
alútibúið í Keflavík aðili að þeim lánum.
Sem kunnugt er rekur Landsbankinn útibú í Kefja-
vík, Sandgerði. Grindavík og Keflavíkurflugvelli.
Atvinnumálabókun Sambands sveitarfélaga
á Suöurnesjum:
Ríkisstjórnin styðji
mnrknðssetningu
Suðurnesjn
Stjóm Satnbands sveit-
arfélaga á Suðumesjum hefur
samþykkt samhljóða ítarlega
bókun unt atvinnumál. Þar
kemur m.a. fram að krafist er að
íbúar á Suðurnesjum gangi fyrir
vinnu sem til fellur við sum-
arafleysingar hjá vinnu-
veitendum og verktökum á
svæðinu. í Leifsstöð og á
Keflavíkurflugvelli.
Þess verði gætt við útboð
sveitarfélaganna á Suð-
umesjum að Suðurnesjamenn
sitji með einunt eða öðrunt
hætti fyrir verkefnum. Verði
ekki hjá því komist að verktakar
komi til að vinna á svæðið við
einstök verk, er þess krafist að
þeir láti einstaklinga eða und-
irverktaka af Suðurnesjum
ganga fyrir.
Þá er þess krafist að rík-
isstjórnin veiti fjármagn til að
vinna skipulega að mark-
aðssetningu Suðumesja með
tilliti til nýrra atvinnutækifæra.
Einnig að kannað verði í sam-
ráði við Fiskmarkað Suðurnesja
eða hagsmunaaðila hvort
möguleg sé að á vegum þeirra
verði allur sá aflakvóti sem til
sölu kann að verða á svæðinu
boðin innan þess.
Að lokum segir þetta orðrétt
um Vamarliðið: „Tryggja þarf
að einn aðili komi fram við
samninga gagnvart Vamarliði
og stjórnvöidum í Banda-
ríkjunum, hvernig sem verk-
töku á varnarsvæðum verður
háttað. Einnig þarf að gæta til
fullustu hagsmuna íbúa og
sveitarfélaga á svæðinu, verði
unt breytingar að ræða í starf-
semi eða verktöku frá því sem
nú er á vamarsvæði og innan
flugvallar."
ÁTTAÍ
FJÖR-
HEIMA-
FEGURÐ
Átta stúlkur úr Njarðvík
munu á laugardag keppa um
titilinn Ungfrú Fjörheimar
1992. Þessi fegurðarsam-
keppni er orðin að árlegunt
viðburði í félagslífinu í Njarð-
vík.
Keppnin fer fram í Stapa og
byrjar dagskráin kl. 20:30.
Auk fegurðarsamkeppninnar
verður boðið upp á dans-
sýningu og diskótek sem
stendur til kl. 02. Miðaverð er
kr. 500 og veröur rútuferð í
innra hverfið að loknu diskó-
teki.
Stúlkumar sem laka þátt í
keppninni heita Guðrún Jóna
Guðjónsdóttir, Dagný Helga
Hafsteinsdóttir, Þórey Guð-
laugsdóttir, Kristín S. Krist-
insdóttir, Berglind Sigþórs-
dóttir, Sólveig S. Bjamadóttir,
Laufey G. Jóhannesdóttir og
Ólöf Magnea SveiTÍsdóttir. Á
meðfylgjandi Ijósmynd vantar
eina stúlkuna sem tekur þált í
keppninni. hún heitir Laugey
G. Jóhannesdóttir.
AUGLÝSINGAR • RITSTJÓRN • AFGREIÐSLA ® 14717,15717 • FAX ® 12777