Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.1992, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 24.04.1992, Blaðsíða 17
Mótorfákar Bifhjólamenn þeysa á Patterson: VILJA FRIÐ! Þeir eru ófáir sem hafa bölvað bifhjólamönnum á Suðurnesjum fyrir þann hávaða sem fylgir því þegar öflugum hjólunum er gefið rækilega inn á götum bæjarins. Þeir hafa líka oft verið með lögguna á hælunum, enda ekki alltaf á löglegum hraða. Nú eru bifhjólamenn á Suðurnesjum að taka sig saman f andlitinu og ætla að fara með hraðaksturinn af fbúðagötunum og hafa fundið sér stað til að spyma og ..þrykkja'* hjólunum. Á gamla Patterson-flugvellinum við Sorpeyðingarstöð Suðurnesja hafa þó nokkrir bifhjólamenn haldið sig undanfama góðviðrisdaga og „tekið mesta hrollinn" úr hjólunum eftir hvfldina í vetur. Strákarnir sem þar voru sögðu blaðamanni að þrátt fyrir að vera þarna langt frá mannabyggð og ónáðuðu engan, fengju þeir ekki frið, því iðulega kæmi lögreglan af Vellinum með reglulegu millibili og ræki þá í burtu. Kannski að „grænu karlarnir við kartöflugeymslurnar á Patterson" haldi að hjólin setji „kartöflurnar" úr skorðum. Á flugbrautinni utan girðingar geymir Hitaveita Suðurnesja ýmsilegt dót og sögðust strákamir gera sér fulla grein fyrir þeirri hættu sem því fylgdi ef þeir dyttu af hjólunum. Það breytti þó engu hvort það væri raf- magnskefli, húsveggur eða jafnvel bíll sem þeir lentu á. Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi á Patterson um bænadagana. Hver er eigandinn? Nokkrir ungir og atorkusamir menn í Garðinum hafa mikinn á- huga á að komast í samband við eiganda þessa báts, sem stendur í iðnaðarhverfi í Njarðvík. Þeim hefur reynst ógjörningur að hafa upp á eigandanum og höfðu því samband við blaðið í þeirri von að geta þannig náð sambandi við eigandann. Er hann beðinn um að hafa samband við Hilmar Braga á Víkurfréttum í síma 14717 eða í heimasíma 27064. Gledilegt sumar! - eina reglulega viku- blaðið á Suðurnesjum VARNARLIÐIÐ A KEFLA- VÍKURFLUGVELLI óskar eftir aö ráða menn í sumaraf- leysingar hjá slökkviliði varnarliðsins Umsækjendur hafi iðnmenntun sem nýt- ist í starfi slökkviliðsmanna eða sam- bærilega menntun og reynslu. Umsækj- endur verða að vera á aldrinum 20-28 ára, reglusamir, háttvísir og heilsu- hraustir. Æskileg reynsla við slökkviliðs- störf. Meirapróf skilyrði. Mjög góð enskukunnátta nauðsynleg. Nánari upplýsingar veittar í síma 92- 11973. Umsóknir sendist ráðningar- skrifstofu varnarmáladeildar, Brekkustíg 39, 260 Njarðvík, eigi síðar en 6. maí 1992. _________17 Víkurfréttir 24. apríl 1992 Flugmaður óskar eftir 4ra-5 herbergja íbúð eða raðhúsi, helst með bílskúr. Frá 1. maí. öruggar greiðslur. Uppl. í síma 91- 77594. Vogar Kennara og smið vantar íbúð til langfranta. Erum bindindisfólk á áfengi og tóbak. Uppl. í síma 91- 79229 (Hjálmar). Til leigu 140 fermetra raðhús á góðum stað, frá og nteð júlí nk. Leigist í 2-3 ár. Ymislegt fylgir. Á- hugasamir leggi tilboð inn á skrifstofu Víkurfrétta fyr- ir 1 maí. Merkt: „raðhús" Til sölu Philps ísskápur á 10.000.-, King size vatns- dýna ónotuð, verð kr. 25.000.-, burðarrúnt kr. 5 þúsund. Uppl. í síma 13227. Leðurlux sófasett Ikea hilla, nýr ísskápur, vatnsrúm king size nieð gafli. frystikista og sjón- varpsskápur selst ódýrt. Uppl. í síma 37688 og 15127. MMC. Lancer GLX '89 sjálfskiptur, sumar og vetradekk, útvarp, ekinn 52.000. Góður bíll, gott staðgreiðsluverð eða góð kjör. Bílanes uppl. í sínta 15944. Barnakerru vel með farinni td. Emmaljunga. Uppl. í síma 14938. Börnin og við Félagið Börnin og við heldur fræðslufund í Myllubakkaskóla þriðjudag 28. apríl. kl.20.30. Gestur fundarins verður séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir og mun hún ræða um fjöl- skylduna. Allir velkomnir. Fundargjald fyrir félags- menn kr. 100. en aðra kr. 300. Kaffiveitingar. Stjórnin EINA REGLULEGA VIKUBLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Símar: 14717- 15717

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.